Fara í efni

Undirverktakar

Kaupirðu verk af öðrum verktökum sem nota Unni geturðu fylgst með þeim verkum, tilboðum og verkbeiðnum á síðunni Undirverktakar og tengt hvert verk við þitt eigið verkefni.

Þegar þú kaupir verk af undirverktaka sem notar Unni getur hann deilt verkinu með þér. Á Undirverktakar sérðu þá framvindu verksins, tilboðin hans og verkbeiðnirnar þínar til hans, og á þínu eigin verkefni sérðu dagbók, reikninga og skráningar undirverktakans.

Hvað undirverktakinn þarf að gera

Kafli: „Hvað undirverktakinn þarf að gera“

Verk birtist hjá þér þegar undirverktakinn hefur:

  1. skráð fyrirtækið þitt sem verkkaupa, með kennitölu fyrirtækisins,
  2. kveikt á verkkaupavefnum fyrir þann verkkaupa,
  3. merkt verkið Sýnilegt verkkaupa.

Undirverktakinn þarf auk þess að vera með Allan pakkann og verkkaupavefinn virkan hjá sér.

Hann ræður líka hvað þú sérð af verkinu, til dæmis dagbók, reikninga eða tímaskráningar. Sjá Verkkaupavefurinn.

Flipinn Verkefni á Undirverktakar sýnir öll verk sem undirverktakar deila með þér.

Tvö verk frá Blikki og loftræstingu. Annað er tengt verkefni 26-041, hitt bíður eftir verkefni.
Tvö verk frá Blikki og loftræstingu. Annað er tengt verkefni 26-041, hitt bíður eftir verkefni.
  • Verktaki: undirverktakinn sem vinnur verkið.
  • Verkefni: þitt eigið verkefni sem verkið tilheyrir.
  • Staða og Áætlað: staða verksins og áætluð byrjun og lok hjá undirverktakanum.
  • Dagbók: dagsetning nýjustu dagbókarfærslu, ef undirverktakinn sýnir dagbókina. Haltu bendlinum yfir dagsetningunni til að sjá textann.

Verk sem eru ekki tengd eigin verkefni eru efst, og talan við Undirverktakar í valmyndinni er fjöldi þeirra. Smelltu á heiti verks til að sjá það eins og undirverktakinn sýnir það.

Tengja aðkeypt verk við eigið verkefni

Kafli: „Tengja aðkeypt verk við eigið verkefni“
  1. Smelltu á Veldu verkefni… í línu verksins.
  2. Leitaðu að verkefninu og smelltu á það. Tengingin vistast strax.
Fellilistinn Veldu verkefni... opinn við verk sem er ekki tengt, með leit að Hring.
Fellilistinn Veldu verkefni... opinn við verk sem er ekki tengt, með leit að Hring.

Hvert aðkeypt verk tengist einu verkefni, en á eitt verkefni geta verið mörg aðkeypt verk. Þú getur skipt um verkefni seinna með sama fellilista, en ekki fjarlægt tenginguna alveg.

Flipinn Undirverktakar á verkefninu

Kafli: „Flipinn Undirverktakar á verkefninu“

Flipinn Undirverktakar er á öllum verkefnum. Þar sérðu aðkeypt verk sem eru tengd verkefninu. Á verkefni án þeirra stendur „Ekkert aðkeypt verk á þessu verkefni.“

Flipinn Undirverktakar á verkefni 26-041: aðkeypta verkið, dagbók undirverktakans og reikningurinn frá honum.
Flipinn Undirverktakar á verkefni 26-041: aðkeypta verkið, dagbók undirverktakans og reikningurinn frá honum.

Efst er spjaldið Undirverktakar með tengdu verkunum. Smelltu á verk til að opna það. Fyrir neðan er það sem undirverktakarnir sýna: verkdagbók, hverjir eru á staðnum, reikningar og skráningar. Séu verkin frá fleiri en einum undirverktaka geturðu valið einn þeirra í fellilistanum Allir verktakar.

Sé reikningur undirverktakans ekki með númeri úr bókhaldskerfi stendur tilvísun reikningsins í stað númers.

Með + efst til hægri sendirðu undirverktaka verkbeiðni, eins og lýst er hér fyrir neðan.

Flipinn Tilboð sýnir tilboð sem undirverktakar hafa sent þér, með stöðunni Bíður svars, Samþykkt eða Hafnað. Smelltu á heiti tilboðs til að opna svarsíðuna í nýjum flipa. Þar samþykkirðu tilboðið eða hafnar því.

Flipinn Verkbeiðnir sýnir verkbeiðnir þínar til undirverktaka og stöðu þeirra. Til að senda nýja:

  1. Smelltu á + efst til hægri á flipanum Verkbeiðnir, eða á flipanum Undirverktakar á verkefninu.
  2. Ef undirverktakarnir eru fleiri en einn velurðu Verktaki og smellir á Opna eyðublað.
  3. Verkbeiðnaform undirverktakans opnast í nýjum flipa. Fylltu það út og sendu.

Tilboð og verkbeiðnir sjást hvort sem undirverktakinn hefur gert verkefni sýnileg eða ekki.