Fara í efni

Opinn hlekkur

Með opnum hlekk sér verkkaupinn, eða hver sem fær hlekkinn, stöðu verksins án innskráningar. Upphæðir sjást aldrei.

Opinn hlekkur er slóð á síðu með stöðu eins verkefnis. Sá sem fær hlekkinn þarf hvorki notandanafn né lykilorð. Aðeins Stjórnandi og Skrifstofumaður geta deilt verkefni. Hvert verkefni hefur einn opinn hlekk í einu.

  1. Opnaðu verkefnið og smelltu á táknið Deila efst til hægri, við hliðina á þriggja punkta valmyndinni.
  2. Smelltu á Búa til hlekk. Hlekkurinn verður til og er afritaður um leið.
Deila-glugginn með opnum hlekk. Tannhjólið opnar stillingarnar og rauða táknið lokar hlekknum.
Deila-glugginn með opnum hlekk. Tannhjólið opnar stillingarnar og rauða táknið lokar hlekknum.

Í glugganum er þá:

  • Afrita við slóðina.
  • Opna hlekk: opnar síðuna í nýjum flipa eins og viðtakandinn sér hana. Sú opnun telst ekki með.
  • Senda: sendir hlekkinn í SMS eða tölvupósti. Veldu SMS og sláðu inn símanúmer (aðeins íslensk númer), eða Tölvupóstur og fylltu út Til og Nafn. Smelltu svo á Senda.
  • Tannhjól (Stillingar): hvað hlekkurinn sýnir og hve lengi hann gildir.
  • Loka hlekk: eftir staðfestingu hættir hlekkurinn strax að virka hjá öllum.
  • Prenta (PDF): prentar verkefnið, sjá Prenta verkefni.

Við upplýsingatáknið sérðu hvað hlekkurinn sýnir, hve oft hann hefur verið opnaður og til hvaða dags hann gildir. Í verkefnalistanum er tákn við verkefni sem eru með opinn hlekk.

Nafn verkefnisins, staða þess og nafn fyrirtækisins sjást alltaf. Annað velurðu í stillingunum, og þú sérð forskoðun fyrir síma eða tölvu við hlið rofanna áður en þú vistar. Þegar þú smellir á Vista sjá allir sem eru með hlekkinn breytinguna strax.

Stillingar hlekks með forskoðun eins og hún lítur út í síma.
Stillingar hlekks með forskoðun eins og hún lítur út í síma.
  • Verkið: Áætlun (upphaf og áætluð lok), Lýsing verkefnis og Heimilisfang verkstaðar.
  • Framvinda: Myndir (allar myndir verkefnisins), Dagbók og Nöfn starfsmanna. Sé slökkt á nöfnunum stendur nafn fyrirtækisins í staðinn.
  • Skráningar: Á staðnum núna, Tímar, Efni og lager og Akstur og tæki. Skráningar sýna hvað var gert og magn.
  • Verktaki: Sími og netfang þess sem bjó til hlekkinn, svo viðtakandinn viti hvert á að hringja. Nafnið sést líka.

Nýr hlekkur sýnir allt nema lýsingu verkefnisins og nöfn starfsmanna. Slökktu á því sem viðtakandinn á ekki að sjá, til dæmis tímum.

Það sem viðtakandinn sér

Kafli: „Það sem viðtakandinn sér“
Opna síðan í tölvu. Verkspjaldið er vinstra megin og kaflarnir hægra megin.
Opna síðan í tölvu. Verkspjaldið er vinstra megin og kaflarnir hægra megin.

Efst er spjald með nafni fyrirtækisins, verkefninu, stöðu og heimilisfangi. Þar sést líka hvar verkið stendur miðað við áætlun, hve margir dagar hafa verið unnir, klukkustundir og hver er á staðnum, ásamt hnöppunum Hringja og Póstur. Fyrir neðan, eða til hliðar í tölvu, eru kaflarnir Myndir, Klukkustundir á viku, Dagbók og Síðustu dagar. Klukkustundir á viku sést þegar vikurnar eru fleiri en ein. Allar skráningar opnar allar skráningar verksins. Það sem er slökkt á í stillingunum sést ekki.

Sé hlekknum lokað eða hann útrunninn stendur „Hlekkurinn virkar ekki“ á síðunni.

Hlekkur gildir í 90 daga frá því hann er búinn til. Í stillingunum, undir Gildistími, geturðu valið að hann gildi 30 daga, 90 daga eða 1 ár frá deginum í dag. Útrunninn hlekkur hættir að virka, og í Deila-glugganum stendur hvenær hann rann út. Senda er þá óvirkt. Þú getur framlengt hann í stillingunum eða búið til nýjan.

Kveiktu á Krefjast kóða undir Aðgangur í stillingunum ef hlekkurinn einn á ekki að duga, til dæmis ef hann er áframsendur. Þá fær hlekkurinn sex stafa kóða sem birtist í Deila-glugganum með Afrita. Sá sem opnar hlekkinn þarf að slá kóðann inn. Eftir fimm rangar tilraunir er hlekkurinn læstur í 15 mínútur.

Þegar þú sendir hlekkinn með Senda fylgir kóðinn með í skilaboðunum. Sendirðu hlekkinn sjálf/ur geturðu sent kóðann sér, til dæmis í SMS.

Smelltu á Búa til nýjan hlekk neðst í stillingunum. Gamli hlekkurinn hættir þá að virka og þú þarft að senda nýja hlekkinn til þeirra sem eiga að sjá verkið. Stillingarnar fylgja nýja hlekknum, og hafi sá gamli krafist kóða fær sá nýi nýjan kóða. Nýi hlekkurinn gildir í 90 daga.