Fjarvera í tímayfirliti
Hvar samþykkt fjarvera birtist sem tímar, hvenær hún telst með í heildartímum, launum og Excel, og hvar hún telst aldrei með.
Þegar fjarverubeiðni er samþykkt verður hún að tímaskráningum á fjarveruverkefni, til dæmis Veikindi eða Orlof. Þessi grein segir hvar þær tímaskráningar sjást og hvar þær teljast með. Hvernig sótt er um og samþykkt er lýst í Fjarvera: veikindi, orlof og frí.
Í sýninni Skráningar
Kafli: „Í sýninni Skráningar“Á TímarTímaskráningar er sían Verkefnistýpa: Venjulegt sjálfgefið á í sýninni Skráningar. Venjulegt nær yfir Tilboð, Útselt og Rekstrar, svo fjarvera er falin, bæði í listanum og í Fjöldi tímaskráninga og Heildar tímar efst.
Til að sjá fjarveruna smellirðu á síutáknið við dálkinn Verkefnistýpa og hakar við Fjarvera. Þá birtast fjarveruskráningarnar með merkinu Fjarvera og teljast með í samtölunum. Til að sjá bara fjarveru tekurðu hakið af Venjulegt.

Fjarveruskráning lítur út eins og aðrar skráningar: verkefnið er fjarveruverkefnið, til dæmis FJA01 - Veikindi, og lýsingin Fjarvera: Veikindi. Reikningsstaðan er alltaf Á ekki við.
Fjarveruskráningu er hægt að eyða með Eyða í valmynd línunnar, eins og annarri skráningu. Beiðnin helst samt Samþykkt, og samtölurnar Síðustu 30 dagar og Síðasta ár breytast ekki, því þær eru reiknaðar út frá beiðnunum. Sé fjarveran röng er betra að afturkalla beiðnina og skrá nýja, sjá Breyta eða afturkalla.
Í Excel-skránni
Kafli: „Í Excel-skránni“Meðan sían á Verkefnistýpa er óbreytt fer fjarveran samt í Excel-skrána, þótt hún sjáist ekki í listanum. Aðrar síur, til dæmis á starfsmann, og tímabilið gilda áfram um skrána. Breytirðu síunni á Verkefnistýpa fylgir Excel-skráin henni.
Í skránni eru dálkar sem sjást ekki í listanum:
- Fjarverutýpa: tegund fjarverunnar, til dæmis Veikindi eða Ólaunað frí.
- Launað: Já eða Nei, eftir stillingu fjarveruverkefnisins.
- Launuð vinna og Launuð yfirvinna: 0 þegar fjarveran er ekki launuð.
Í sýnunum Dagar og Tímalína
Kafli: „Í sýnunum Dagar og Tímalína“Í sýnunum Dagar og Tímalína sést fjarvera alltaf, óháð síunni. Hún er grá og röndótt og merkt nafni fjarveruverkefnisins. Hún telst með í tímum dagsins og starfsmannsins. Í dagsýn Tímalínunnar stendur nafn fjarverunnar undir nafni starfsmanns sem er bara með fjarveru þann dag, og talan efst segir hve margir eru í fjarveru.

Fjarveruverkefnin
Kafli: „Fjarveruverkefnin“Unnur stofnar eitt fjarveruverkefni fyrir hverja tegund: Veikindi, Veikindi barns, Orlof, Annað launað frí, Ólaunað leyfi og Rauðir dagar. Verkefnið verður til þegar fyrsta beiðni af tegundinni er samþykkt, og Rauðir dagar líka þegar fyrsti rauði dagurinn er skráður sjálfkrafa. Tegundin heitir Ólaunað frí í beiðnum en verkefnið Ólaunað leyfi.
Stjórnandi og Skrifstofumaður opna fjarveruverkefni með örinni á reitnum efst á TímarFjarverur. Verkefnin eru líka í verkefnalistanum með tegundina Fjarvera. Á verkefnasíðunni eru flipar:
- Yfirlit: Mánaðaryfirlit fjarveru, fjarvera hvers starfsmanns í hverjum mánuði valins árs. Sjálfgefið er hún talin í dögum. Veldu Klst. til að sjá klukkustundir. Hluti úr degi telst brot af degi eftir vinnudagslengd hans. Smelltu á reit til að sjá dagana.
- Tímaskráningar: allar tímaskráningar á verkefninu.
- Stillingar: Launað og Leyfa beina tímaskráningu.

Fjarveruverkefnum er ekki hægt að eyða eða breyta nafni á, og á þau er ekki hægt að skrá akstur, efni eða tæki. Á þau er heldur ekki hægt að gera sölureikning.
Laun
Kafli: „Laun“Rofinn Launað á hverju fjarveruverkefni ræður hvort tímarnir fara í launin. Nýtt verkefni Ólaunað leyfi fær Launað af, öll hin á. Sé slökkt á Launað:
- fara tímar verkefnisins ekki á flipann Laun,
- verða Launuð vinna og Launuð yfirvinna 0 í Excel-skránni.

Slökkvirðu á Launað á verkefni sem hefur þegar tímaskráningar biður Unnur þig að staðfesta. Launaflipanum er lýst í Taka út tíma fyrir launakeyrslu.
Bein tímaskráning á fjarveruverkefni
Kafli: „Bein tímaskráning á fjarveruverkefni“Rofinn Leyfa beina tímaskráningu á flipanum Stillingar á fjarveruverkefninu er sjálfgefið af. Þá verða tímar á verkefninu aðeins til úr samþykktum fjarverubeiðnum, og verkefnið er ekki í boði þegar tími er skráður.
Sé slökkt á Krefjast samþykkis á fjarverubeiðnum í stillingum fjarveru er rofinn óvirkur, og þá má skrá tíma beint á öll fjarveruverkefni í appinu. Á vefnum birtist fjarveruverkefni þó aðeins í glugganum Ný tímaskráning ef kveikt var á Leyfa beina tímaskráningu í verkefninu áður en slökkt var á samþykkinu.
Reikningar og yfirvinna
Kafli: „Reikningar og yfirvinna“Fjarvera kemst aldrei á sölureikning. Fjarveruskráningin sjálf er alltaf dagvinna. Vinni starfsmaðurinn líka sama dag teljast fjarverutímarnir þó með upp í dagsmarkið þegar stimpilklukkan skiptir tímum hans í dagvinnu og yfirvinnu, sjá Dagvinna og yfirvinna.
Á mælaborðinu er fjarvera sér í Hlutföll tíma, í sneiðunum Fjarverur og Rauðir dagar, sjá Mælaborðið.