Flögg á verkkaupum
Flaggaðu verkkaupa sem þið viljið síður vinna fyrir aftur, t.d. ef hann borgar ekki. Sá sem stofnar næsta verk fyrir hann sér viðvörunina.
Flagg er innanhússmerking á verkkaupa, með athugasemd um ástæðuna. Það stöðvar ekkert: viðvörun birtist þegar verkkaupinn er valinn, en þú getur samt haldið áfram. Verkkaupinn sér flaggið aldrei og það fer hvorki á reikning né í póst.
Stjórnandi og Skrifstofumaður flagga og taka flagg af. Verkstjóri sér viðvörunina en Starfsmaður sér hana aldrei.
Flagga verkkaupa
Kafli: „Flagga verkkaupa“- Farðu í Verkkaupar. Smelltu á flaggið í dálkinum Flagg, eða á punktana þrjá aftast í línunni og veldu Flagga verkkaupa. Á verkkaupasíðunni smellirðu á flaggið á spjaldinu Flagg.
- Skrifaðu í Athugasemd af hverju verkkaupinn er flaggaður. Það má sleppa því, en þeir sem sjá viðvörunina síðar hafa gagn af ástæðunni.
- Smelltu á Flagga verkkaupa.

Flaggið verður gult í listanum. Farðu með músina yfir talbóluna við hliðina til að lesa athugasemdina. Smelltu tvisvar á fyrirsögnina Flagg til að fá flaggaða verkkaupa efst.
Á verkkaupasíðunni stendur „Þessi verkkaupi er flaggaður“ á spjaldinu Flagg, með athugasemdinni og hver flaggaði og hvenær.

Til að breyta athugasemdinni smellirðu aftur á flaggið, lagar textann og smellir á Flagga verkkaupa. Línan „Flaggað af“ sýnir þá þitt nafn og daginn í dag.
Hvar viðvörunin birtist
Kafli: „Hvar viðvörunin birtist“Sami guli borðinn birtist:
- í glugganum Nýtt verkefni þegar verkkaupinn er valinn sem Kaupandi, og í glugganum Breyta verkefni,
- í glugganum Ný verkbeiðni þegar hann er valinn sem verkkaupi,
- efst á verkbeiðni frá honum þegar hún er opnuð á síðunni Verkbeiðnir, þar sem hún er samþykkt,
- efst í glugganum Breyta verkkaupa.
Í appinu birtist sama viðvörun þegar flaggaður verkkaupi er valinn á nýtt verkefni og þegar verkbeiðni frá honum er samþykkt.

Borðinn er aðeins viðvörun. Búa til verkefni virkar eins og venjulega.
Flagga um leið og reikningur er afskrifaður
Kafli: „Flagga um leið og reikningur er afskrifaður“Þegar þú afskrifar sölureikning af því að verkkaupinn borgar ekki geturðu flaggað hann í sama skrefi. Í glugganum Afskrifa reikning er hak sem heitir Flagga og nafn verkkaupans.
- Opnaðu reikninginn, nýjan eða í drögum, smelltu á punktana þrjá efst til hægri og veldu Afskrifa.
- Hakaðu í Flagga og skrifaðu ástæðuna í Af hverju?.
- Smelltu á Afskrifa.

Sé verkkaupinn þegar flaggaður stendur „… er þegar flaggaður.“ í stað haksins. Um afskriftina sjálfa, sjá Sölureikningar.
Afskrifa er ekki á sendum reikningi. Sendan reikning þarf fyrst að endurkalla í drög, sjá Reikningur var sendur. Hvað nú?. Viltu aðeins flagga verkkaupann án þess að afskrifa neitt flaggarðu hann beint, eins og lýst er í Flagga verkkaupa.
Taka flagg af
Kafli: „Taka flagg af“Smelltu á punktana þrjá aftast í línu verkkaupans eða efst til hægri á verkkaupasíðunni og veldu Taka flagg af. Sami hnappur er líka í glugganum Flagga verkkaupa. Staðfestu með Taka flagg af.
Athugasemdin hverfur um leið, ásamt nafni þess sem flaggaði og dagsetningunni.