Aðgangur og starfsmenn
Lykilorð, boð til starfsmanna og hlutverk.
Ég man ekki lykilorðið
Kafli: „Ég man ekki lykilorðið“Smelltu á Gleymt lykilorð? á innskráningarsíðunni á vefnum, eða ýttu á það á innskráningarskjá appsins. Sláðu inn símanúmerið þitt og smelltu á Senda kóða. Þú færð kóða í SMS og velur svo nýtt lykilorð, sem gildir bæði á vefnum og í appinu.
Nánar í Innskráning og lykilorð.
Starfsmaður fékk ekki boð. Hvernig kemst hann inn?
Kafli: „Starfsmaður fékk ekki boð. Hvernig kemst hann inn?“Boð er aðeins sent ef hakað var við SMS eða Tölvupóstur þegar starfsmaðurinn var stofnaður, eða ef það var sent síðar. Starfsmaður með íslenskt númer sem stendur á Boðið og hefur ekki fengið SMS-boð er með lítinn sendihnapp við stöðuna í Starfsmenn. Hver starfsmaður fær aðeins eitt SMS-boð.
Starfsmaðurinn þarf samt ekki boð til að komast inn. Hann sækir appið, ýtir á Ertu ekki með aðgang? Skráðu þig og notar sama símanúmer og er skráð á hann. Á vefnum smellir hann á Skráðu þig hér á innskráningarsíðunni. Lendi hann á síðunni Enginn aðgangur að fyrirtæki skaltu bera símanúmerið á starfsmanninum saman við númerið sem hann skráði sig með.
Nánar í Koma starfsmanni inn í Unni.
Hvernig breyti ég aðgangi starfsmanns?
Kafli: „Hvernig breyti ég aðgangi starfsmanns?“Opnaðu Starfsmenn og smelltu á starfsmanninn. Veldu Breyta í valmyndinni með punktunum þremur (⋮), veldu Hlutverk og smelltu á Vista starfsmann. Aðeins Stjórnandi og Skrifstofumaður geta breytt hlutverki.
- Starfsmaður skráir tíma, akstur og efni á verkefni.
- Verkstjóri getur auk þess stofnað verkefni og breytt þeim.
- Skrifstofumaður hefur sama aðgang og Stjórnandi á vefnum, en kemst ekki inn í appið og ekki er hægt að skrá tíma á hann.
- Stjórnandi hefur aðgang að öllu á vefnum og getur líka notað appið.
Fyrir Stjórnanda og Skrifstofumann þarf Netfang að vera útfyllt. Nánar í Hlutverk og réttindi.