Fara í efni

Stimpilklukkan

Hvernig starfsmenn stimpla sig inn og út í appinu, hvernig klukka er stöðvuð úr vefnum og hvað gerist ef gleymist að stimpla sig út.

Með stimpilklukkunni í appinu stimplar starfsmaður sig inn á verkefni þegar hann byrjar og út þegar hann hættir. Unnur skráir tímann á milli og skiptir honum í dagvinnu og yfirvinnu.

Bæði ræsing og stöðvun þurfa netsamband, en klukkan heldur áfram að telja þótt appinu sé lokað.

  1. Opnaðu Stimpilklukka í neðstu stiku appsins.
  2. Veldu verkefni í Veldu verkefni. Ef verkefnið hefur fleiri en einn verkhluta velurðu líka í Veldu verkefnishluta. Verkefni sem þér er úthlutað í dag eru efst í listanum.
  3. Ýttu á Hefja skráningu.

Klukkan birtist í hringnum og skráningin sést undir Tímalína dagsins með merkinu Í gangi. Hún sést líka efst á Heim.

Vanti verkefni í listann, sjá Starfsmaður finnur ekki verkefnið.

  1. Ýttu á Stöðva. Blaðið Bæta við upplýsingum opnast.
  2. Skrifaðu Lýsing á því sem var gert. Án lýsingar stöðvast klukkan ekki.
  3. Bættu við akstri, efni, tækjum eða myndum ef við á.
  4. Ýttu á Vista og stöðva.
Stimpilklukka í gangi
Stimpilklukka í gangi
Blaðið sem opnast við Stöðva
Blaðið sem opnast við Stöðva

Lokatíminn er sá tími þegar ýtt er á Vista og stöðva. Það er ekki hægt að velja hann í blaðinu. Hafi starfsmaðurinn hætt fyrr þarf að laga lokatímann eftir á með því að breyta skráningunni.

Lokirðu blaðinu með krossinum efst vistast það sem þú skráðir, en klukkan heldur áfram.

Efst í blaðinu er reiturinn Byrjunartími. Hafirðu gleymt að stimpla þig inn á réttum tíma ýtirðu á reitinn og velur réttan tíma. Tíminn má ekki lenda inni í annarri skráningu sama dags.

Byrjunartími efst í blaðinu Bæta við upplýsingum
Byrjunartími efst í blaðinu Bæta við upplýsingum

Nýr byrjunartími og það sem skrifað er í Athugasemd (Valfrjálst) vistast þegar blaðinu er lokað með krossinum. Lokaðu því blaðinu fyrst og ýttu svo aftur á Stöðva til að stimpla þig út, því á Stimpilklukka vistast hvorki byrjunartíminn né athugasemdin ef ýtt er beint á Vista og stöðva eða Vista og skipta. Ef þú opnar blaðið með því að ýta á skráninguna á Heim vistast allt með Vista og stöðva.

Ef kveikt er á breytingarbeiðnum verður breyting Starfsmanns eða Verkstjóra á byrjunartímanum að beiðni sem Stjórnandi eða Skrifstofumaður þarf að samþykkja, sjá Breytingarbeiðnir.

Þegar starfsmaður fer af einu verki á annað þarf ekki að stöðva og byrja aftur.

  1. Ýttu á Skipta og veldu nýja verkefnið.
  2. Ýttu aftur á Skipta.
  3. Skrifaðu lýsingu á fyrra verkinu og ýttu á Vista og skipta. Fyrri skráningin stöðvast og ný hefst á nýja verkefninu.

Hvernig tímarnir reiknast

Kafli: „Hvernig tímarnir reiknast“

Þegar klukkan er stöðvuð skiptir Unnur tímanum í dagvinnu og yfirvinnu eftir vikutaxtanum og dagsmarkinu sem gildir fyrir starfsmanninn, og tekur með dagvinnu sem hann hefur þegar skráð sama dag. Ef fyrirtækið dregur frá matarhlé á föstum tíma dags dregst sá hluti hlésins sem lendir innan skráningarinnar frá. Nánar í Dagvinna og yfirvinna og Matarhlé.

Stöðva klukku úr vefnum

Kafli: „Stöðva klukku úr vefnum“

Ef starfsmaður gleymir að stimpla sig út, eða kemst ekki í appið, má stöðva klukkuna á Tímar-síðunni. Stjórnandi og Skrifstofumaður geta stöðvað klukku hvers sem er. Verkstjóri og Starfsmaður geta aðeins stöðvað sína eigin. Ekki er hægt að ræsa klukku úr vefnum.

  1. Farðu í Tímar. Skráningin er með stöðuna Í gangi.
  2. Smelltu á punktana þrjá aftast í línunni og veldu Stöðva tímamælingu.
  3. Skrifaðu Lýsing og smelltu á Vista og stöðva.
Stimpilklukka stöðvuð úr vefnum
Stimpilklukka stöðvuð úr vefnum

Lokatíminn verður tíminn þegar smellt er á Vista og stöðva. Ef starfsmaðurinn hætti fyrr smellirðu svo á Breyta og lagar Lokatími, sjá Skrá tíma og breyta skráningum.

Ef gleymist að stimpla sig út

Kafli: „Ef gleymist að stimpla sig út“

Klukka sem hefur gengið í 18 klukkustundir stöðvast sjálfkrafa, og lokatíminn verður 18 klst. eftir að hún var ræst. Starfsmaðurinn fær tilkynningu í símann: „Úpps, þú gleymdir að stimpla þig út“. Á skráningunni stendur athugasemdin „Stimpilklukkan stöðvaðist sjálfkrafa eftir 18 klst.“ ef engin önnur athugasemd var á henni.

Skráningin fer ekki á sölureikning fyrr en tíminn hefur verið lagaður. Breyttu lokatímanum, eða dagvinnu og yfirvinnu, í vefnum eða í appinu. Starfsmaður lagar skráninguna í appinu með því að ýta á hana á Heim. Ef kveikt er á breytingarbeiðnum verður breyting starfsmanns að beiðni sem þarf að samþykkja, sjá Breytingarbeiðnir.

Til að minna starfsmenn á að stimpla sig inn og út geturðu kveikt á áminningum, sjá Áminningar og morguntilkynning.

Leyfa aðeins stimpilklukku

Kafli: „Leyfa aðeins stimpilklukku“

Stjórnandi og Skrifstofumaður geta bannað handvirka tímaskráningu, svo starfsmenn skrái tíma aðeins með stimpilklukkunni.

  1. Farðu í StillingarTímaskráningTímaskráning.
  2. Kveiktu á Banna handvirka tímaskráningu og smelltu á Vista.
Stillingin Banna handvirka tímaskráningu
Stillingin Banna handvirka tímaskráningu

Þá gerist þetta:

  • + hverfur úr neðstu stiku appsins hjá öllum, líka Stjórnanda. Akstur, efni og tæki skrá starfsmenn þá í blaðinu Bæta við upplýsingum á stimpilklukkunni, eða með því að breyta tímaskráningu sem er til.
  • Skrá tíma í vikuáætlun appsins opnar stimpilklukkuna með verkefnið valið.
  • Í vefnum geta Stjórnandi og Skrifstofumaður áfram skráð tíma handvirkt fyrir hvern sem er. Verkstjóri og Starfsmaður fá villuna „Handvirk tímaskráning er ekki leyfð. Notaðu stimpilklukku.“
  • Áfram má breyta skráningum sem eru þegar til.