Starfsmannastillingar og verðsýn
Hvernig þú ræður hvaða kaflar birtast starfsmönnum þegar þeir skrá tíma, hvort þeir geti breytt því sjálfir og hvort þeir sjái verð á akstri, efni og tækjum.
Starfsmannastillingarnar ráða því hvernig tímaskráning lítur út hjá starfsmönnum, til dæmis hvort þeir geti bætt akstri eða efni við tímann. Hver starfsmaður getur breytt þeim sjálfur í appinu, en Stjórnandi og Skrifstofumaður geta líka valið eitt gildi fyrir alla. Verðsýnin er sér stilling sem ræður hvort starfsmenn sjái upphæðir.
Stillingarnar fjórar
Kafli: „Stillingarnar fjórar“| Stilling | Val | Hvað hún gerir |
|---|---|---|
| Bæta við akstri í tímaskráningu | Já / Nei | Bálkurinn Bæta við akstri í tímaskráningu og stimpilklukku í appinu. Hefur ekki áhrif í vefnum. |
| Sjálfgefinn hamur tímaskráningar | Tímastimplar / Klukkustundir | Tímastimplar: byrjunar- og lokatími. Klukkustundir: fjöldi tíma í dagvinnu og yfirvinnu. Í appinu er ekki hægt að skipta á milli í forminu. Í vefnum opnast tímaskráningarglugginn í þeim ham sem valinn starfsmaður hefur. |
| Sýna lagerskráningar | Já / Nei | Kaflinn Bæta við efni í tímaskráningu og stimpilklukku í appinu. Hefur ekki áhrif í vefnum. |
| Sýna tækjaskráningar | Já / Nei | Tækjakaflinn í tímaskráningu í vef og appi, í stimpilklukku appsins og tækjaflipinn í + í appinu. Tæki fylgja aðeins Öllum pakkanum. |
Hafi enginn valið neitt er akstur, lager og tæki Já og hamurinn Klukkustundir.
Starfsmaður breytir stillingunum sjálfur í appinu undir MeiraStillingar, sjá Stillingar í appinu.
Velja gildi fyrir alla starfsmenn
Kafli: „Velja gildi fyrir alla starfsmenn“Farðu í StillingarVirkniStarfsmannastillingar.
-
Veldu gildi í fellilista stillingarinnar sem þú vilt breyta. Breytingin vistast strax og Stilling vistuð birtist.

Sjálfgefnar stillingar starfsmanna. Hér ræður hver starfsmaður öllu sjálfur.
Þegar þú velur Já, Nei, Tímastimplar eða Klukkustundir gildir það fyrir alla starfsmenn og þeir geta ekki breytt því. Starfsmaður ræður lætur hvern og einn ráða.
Dagsmarkið, hve margir tímar á dag teljast dagvinna, er stillt fyrir allt fyrirtækið í StillingarTímaskráningVikutaxti. Sjá Dagvinna og yfirvinna.
Verðsýn starfsmanna
Kafli: „Verðsýn starfsmanna“Verðsýnin ræður hvort Starfsmenn og Verkstjórar sjái upphæðir á akstri, efni og tækjum sem þeir skrá. Sjálfgefið sjá þeir verðin.
Farðu í StillingarVirkniVerðsýn starfsmanna.
-
Slökktu á Leyfa starfsmönnum að sjá verð og smelltu á Vista.

Verðsýn starfsmanna, hér með kveikt á verðum
Þegar slökkt er felur vefurinn einingarverð og upphæðir í gluggunum þar sem starfsmenn skrá eða breyta efni af lager og tækjum, í akstursbálki tímaskráningar, á síðu hverrar skráningar og í töflunum á verkefninu. Stjórnandi og Skrifstofumaður sjá alltaf verð í vefnum.