Fara í efni

Hlutverk og réttindi

Hver starfsmaður hefur eitt af fjórum hlutverkum, og hlutverkið ræður því hvað hann sér og má gera í vefnum og appinu.

Hver starfsmaður hefur eitt af fjórum hlutverkum: Stjórnandi, Skrifstofumaður, Verkstjóri eða Starfsmaður. Þú velur hlutverkið þegar þú stofnar starfsmanninn og breytir því á síðu hans með ⋮Breyta. Fyrir Stjórnanda og Skrifstofumann þarf Netfang að vera útfyllt. Stuttar lýsingar á hlutverkunum birtast þegar þú færir bendilinn yfir upplýsingatáknið (i) við Hlutverk í starfsmannaforminu.

Skýringin við Hlutverk í glugganum Nýr starfsmaður
Skýringin við Hlutverk í glugganum Nýr starfsmaður

Hlutverkin í stuttu máli

Kafli: „Hlutverkin í stuttu máli“
Stjórnandi Skrifstofumaður Verkstjóri Starfsmaður
Allur vefurinn, líka starfsmenn, reikningar og stillingar Já Já Nei Nei
Stofna verkefni Já Já Já Nei
Eyða verkefnum Já Já Nei Nei
Kemst inn í appið Já Nei Já Já
Hægt að skrá tíma á hann Já Nei Já Já
Netfang er skylda Já Já Nei Nei

Stjórnandi hefur aðgang að öllu í vefnum, þar á meðal Mælaborð, Sölureikningar, Starfsmenn, Verkkaupar og Stillingar. Hann getur líka notað appið og skráð tíma eins og aðrir. Í appinu sér hann að auki Breytingarbeiðnir og Verkbeiðnir undir Meira.

Í vefnum hefur Skrifstofumaður sama aðgang og Stjórnandi. Munurinn er þessi:

  • Hann kemst ekki inn í appið. Þar birtist Aðgangur takmarkaður og textinn „Skrifstofumenn hafa ekki aðgang að farsímaforritinu. Vinsamlegast notaðu vefgáttina til að stjórna verkefnum og starfsmönnum.“
  • Það er ekki hægt að skrá tíma á hann. Reynirðu það kemur villan „Ekki er hægt að skrá tíma á skrifstofumann.“
  • Hann birtist ekki þegar starfsmenn eru valdir, til dæmis í mönnun verkefna, Vikuskipulagi, taxtahópum og verkhópum.

Verkstjóri hefur sama aðgang og Starfsmaður, og getur auk þess stofnað verkefni og breytt þeim:

  • Í vefnum sér hann + á Verkefni. Á verkefnasíðunni í vefnum getur hann breytt stöðu verkefnisins, og í aðgerðavalmyndinni (⋮) eru Breyta og Prenta verkefni (PDF). Hann getur ekki eytt verkefni.
  • Í appinu sér hann Nýtt verk efst á Verkefni-síðunni.

Starfsmaður skráir tíma, akstur og efni og getur notað stimpilklukkuna í appinu. Sjá Unnur appið. Í appinu getur hann líka breytt stöðu verkefnis á verkefnasíðunni.

Hann kemst líka inn í vefinn. Af aðalliðum valmyndarinnar sér hann aðeins Verkefni, Tímar, Lager, Tæki og Akstur (Tæki aðeins í Öllum pakkanum), og neðst eru Tilkynningar. Í Tímar og Akstur sér hann aðeins sínar eigin skráningar. Opni hann tengil á síðu sem hlutverkið nær ekki til, til dæmis Stillingar, birtist síðan Enginn aðgangur að fyrirtæki. Þá dugar að fara til baka í vafranum.

Aðalliðir valmyndarinnar hjá Starfsmanni og Verkstjóra
Aðalliðir valmyndarinnar hjá Starfsmanni og Verkstjóra
Valmyndin hjá Stjórnanda og Skrifstofumanni
Valmyndin hjá Stjórnanda og Skrifstofumanni

Breytingar á tímaskráningum

Kafli: „Breytingar á tímaskráningum“

Ef fyrirtækið krefst samþykkis á breytingum á tímaskráningum verða breytingar Starfsmanns og Verkstjóra á tímum, verkefni eða matarhléi að breytingarbeiðni, og eyðing tímaskráningar líka. Breyting á Lýsing eða Athugasemd einni tekur gildi strax, og nýjar skráningar þurfa ekki samþykki. Stjórnandi eða Skrifstofumaður samþykkir hana eða hafnar henni. Breytingar Stjórnanda og Skrifstofumanns taka gildi strax. Sjá Breytingarbeiðnir.