Fara í efni

Stillingasíðan

Hvar hver stilling fyrirtækisins er á Stillingasíðunni, hver kemst þangað og hvernig þú setur merki fyrirtækisins inn.

Á Stillingasíðunni ræður fyrirtækið hvernig Unnur vinnur: tengingar við önnur kerfi, reglur um tímaskráningu, útlit sölureikninga og fleira. Þú opnar hana með Stillingar neðst í valmyndinni.

Stillingasíðan. Undir flipanum Fyrirtæki eru undirfliparnir Merki fyrirtækis og Áskrift.
Stillingasíðan. Undir flipanum Fyrirtæki eru undirfliparnir Merki fyrirtækis og Áskrift.

Efst eru aðalfliparnir. Þegar aðalflipi hefur fleiri en eina síðu birtast undirflipar fyrir neðan hann. Sumir flipar sjást aðeins ef þeir fylgja pakkanum ykkar eða eiginleikinn hefur verið virkjaður hjá fyrirtækinu, og þá er það tekið fram í töflunni.

Flipi Hvað þú stillir Nánar
Gerðu kerfið að þínu Nokkrar lykilstillingar, ein spurning í einu. Flipinn er fremstur meðan einhverri þeirra er ósvarað. Komast í gang
Fyrirtæki › Merki fyrirtækis Merki á fylgiskjölum og víðar. Hér að neðan
Fyrirtæki › Áskrift Pakki, prufutími, verð, skipta um pakka, segja upp. Áskrift og pakkar
Tengingar › Bókhaldskerfi Payday, DK Plus, Regla, Konto, Catacloud, Uniconta eða tölvupóstur á bókara. Bókhaldstengingar
Tengingar › Rafræn reikningsskil Móttaka rafrænna reikninga frá birgjum. Aðeins Allur pakkinn. Rafrænir reikningar
Tengingar › Póstur Pósthólf sem eru tengd Unni. Aðeins Allur pakkinn, og ekki virkt hjá öllum fyrirtækjum. Póstur
Tengingar › Samþættingar Auðkenni (Client ID og leynilykill) fyrir tengingu við TólSpor. Ekki virkt hjá öllum fyrirtækjum.
Tímaskráning › Fjarvera Kveikja á fjarveru, velja fjarverutegundir og kjarasamning fyrir veikindarétt. Fjarvera
Tímaskráning › Tímaskráning Banna handvirka tímaskráningu, svo starfsmenn noti aðeins stimpilklukkuna. Stimpilklukkan
Tímaskráning › Breytingarbeiðnir Hvort breytingar starfsmanna á tímaskráningum þurfi samþykki. Breytingarbeiðnir
Tímaskráning › Vikutaxti Dagsmark, dagvinnutími, rauðir dagar og matarhlé. Dagvinna og yfirvinna
Tímaskráning › Launakeyrsla Skipting yfirvinnu í launaliði. Tímar fyrir laun
Tímaskráning › Staðsetning við stimplun Staðsetning við inn- og útstimplun. Aðeins Allur pakkinn, og ekki virkt hjá öllum fyrirtækjum. Staðsetning við stimplun
Virkni › Stöður verkefna Eigin stöður og litir. Stöður verkefna
Virkni › Verðsýn starfsmanna Hvort starfsmenn sjái verð á akstri, efni og tækjum. Starfsmannastillingar og verðsýn
Virkni › Sölureikningar Álagning, verkfæragjald, verkhlutar, flokkun efnis eftir aðfangareikningum á fylgiskjali, lýsing verkefnisins sem athugasemd á nýjum reikningum, sjálfgefnar dagsetningar og útlit fylgiskjals. Línur á sölureikningi, Fylgiskjöl og PDF, Verkfæragjald
Virkni › Flögg á verkkaupum Hvort Unnur eigi að stinga upp á flöggun þegar verkkaupi skuldar. Tillögurnar birtast enn hvergi í Unni, svo stillingin breytir engu. Verkkaupa flaggarðu sjálf/ur. Flögg á verkkaupum
Virkni › Verkbeiðnir Hvort heimilisfangið fari fremst í heiti verkefnis sem verður til úr verkbeiðni. Verkbeiðnir
Virkni › Starfsmannastillingar Sjálfgefnar stillingar fyrir alla starfsmenn. Starfsmannastillingar og verðsýn
Lager Lagerhreyfingar til bókhaldskerfis og birgðahald. Birgðahald
Tilkynningar Áminningar um tímaskráningu og stimplun og morguntilkynning til starfsmanna. Áminningar
Innflutningur Tímaskráningar, akstursferðir og verkefni úr Excel. Innflutningur úr Excel
Mínar stillingar Þema og tungumál vefsins í þessum vafra. Valmyndin, tilkynningar og hjálp

Starfsmenn, hlutverk og aðgangur eru ekki í Stillingum heldur á síðunni Starfsmenn. Nafni og kennitölu fyrirtækisins geturðu ekki breytt sjálf/ur. Hafðu samband við okkur ef þau eru röng.

Merkið birtist meðal annars á PDF-fylgiskjali sölureikninga, í skýrslu verkefnis, efst á síðunni Nýr sölureikningur (líka þegar reikningur er gerður úr tilboði), efst á verkbeiðnaforminu sem viðskiptavinir opna með hlekk og á Skírteini starfsmanna í appinu. Það fer ekki á tilboð.

  1. Farðu í StillingarFyrirtækiMerki fyrirtækis.

  2. Dragðu skrána í reitinn eða smelltu á hann og veldu hana. Leyfðar eru PNG-, JPEG- og HEIC-myndir, mest 10 MB. Merkið vistast um leið og það hefur hlaðist upp.

    Merki fyrirtækis eftir upphleðslu
    Merki fyrirtækis eftir upphleðslu

Til að skipta um merki smellirðu á reitinn (Skipta um merki) og velur nýja skrá. Eyða merki fjarlægir það eftir staðfestingu.