Fara í efni

Taka út tíma fyrir launakeyrslu

Hvernig þú ferð yfir tíma starfsmanna fyrir launatímabilið í Laun-flipanum, hleður þeim niður í Excel eða sendir á Payday, og skiptir yfirvinnu í launaliði.

Laun-flipinn tekur saman dagvinnu og yfirvinnu hvers starfsmanns á tímabili, tilbúið fyrir launakeyrslu. Aðeins Stjórnandi og Skrifstofumaður sjá flipann.

  1. Farðu í TímarLaun.
  2. Veldu tímabilið í Veldu tímabil. Flipinn opnast alltaf á tímabilinu frá 1. degi mánaðarins til dagsins í dag, svo athugaðu dagsetningarnar áður en þú heldur áfram.
  3. Farðu yfir tölurnar. Efst eru Dagvinna samtals, Yfirvinna samtals og Fjöldi starfsmanna, og fyrir neðan er spjald á hvern starfsmann með dagvinnu og yfirvinnu hvers dags.
Laun-flipinn fyrir september: samtölur efst og spjald fyrsta starfsmannsins
Laun-flipinn fyrir september: samtölur efst og spjald fyrsta starfsmannsins

Flipinn tekur allar tímaskráningar sem byrja á tímabilinu, líka fjarveru. Tímar á fjarveruverkefnum þar sem slökkt er á Launað koma ekki með. Sjálfgefið á það aðeins við Ólaunað leyfi, sjá Fjarvera í tímayfirliti. Hafi matarhlé verið dregið frá sést það í röðinni Matarhlé, í klukkustundum.

Starfsmenn sem eru skráðir Verktaki eða Fastlaunaður í Starfsmannategund fá grátt spjald með Sendist ekki. Þeir eru ekki taldir með í samtölunum og fara hvorki í Excel-skrána né á Payday.

Fastlaunaður starfsmaður sést í flipanum en sendist ekki í launakeyrslu
Fastlaunaður starfsmaður sést í flipanum en sendist ekki í launakeyrslu

Þú getur breytt dagvinnu og yfirvinnu einstakra daga beint í spjaldinu. Breytingin fer með í Excel-skrána og á Payday, en hún vistast ekki í tímaskráningunum og hverfur ef þú skiptir um tímabil eða flipa. Ef þú ferð á aðra síðu í Unni spyr hún fyrst í glugganum Óvistaðar breytingar hvort þú viljir Yfirgefa eða Vera áfram. Ef tíminn sjálfur er rangur er betra að laga tímaskráninguna.

Hlaða niður eða senda á Payday

Kafli: „Hlaða niður eða senda á Payday“

Smelltu á Hlaða niður Excel neðst á síðunni, undir spjöldum starfsmannanna. Skráin fer eftir bókhaldskerfinu:

  • Með Payday: innflutningsskrá fyrir Payday með kennitölu, nafni, dagvinnu og yfirvinnu.
  • Annars: vinnubók með tveimur blöðum. Í Launakeyrslur er hver dagur ein lína og hver starfsmaður fær dálka fyrir launaða vinnu og launaða yfirvinnu, og fyrir matarhlé ef hlé var skráð á tímabilinu. Í Tímaskráning er samtala fyrir hvern starfsmann.

Sé yfirvinnu skipt í launaliði, eins og lýst er í næsta kafla, fær hver liður eigin dálk. Í Payday-skránni koma þeir í stað yfirvinnudálksins og heita eins og í Heiti launaliða í Payday. Í vinnubókinni bætast dálkarnir Yfirvinna 1, Yfirvinna 2 og Stórhátíð við á blaðinu Tímaskráning.

Sé Payday tengt sem bókhaldskerfi er líka hnappurinn Senda á Payday. Þá opnast gluggi með tímabilinu, fjölda starfsmanna og samtölunum, og gögnin fara þegar þú smellir á Staðfesta.

Staðfestingarglugginn áður en launagögn eru send á Payday
Staðfestingarglugginn áður en launagögn eru send á Payday

Sendingar sjást neðst í Saga launakeyrsla með stöðuna Lokið eða Mistókst. Mistókst þýðir að sendingin gekk ekki upp. Athugaðu stöðuna þar eftir hverja sendingu, því skilaboðin „Launagögn send á Payday“ birtast líka þegar sendingin mistekst.

Starfsmaður án kennitölu fær Vantar kennitölu á spjaldið og gulur borði telur upp þá sem vantar. Þeir eru með í Excel-skránni, án kennitölu, en fara ekki á Payday. Kennitöluna skráirðu á starfsmanninum.

Ef Payday kannast ekki við kennitölu einhvers starfsmanns birtast skilaboð frá Payday í stað staðfestingarinnar, en sendingin fær samt stöðuna Lokið. Berðu þá kennitöluna á starfsmanninum saman við Payday.

Skipta yfirvinnu í yfirvinnu 1, yfirvinnu 2 og stórhátíð

Kafli: „Skipta yfirvinnu í yfirvinnu 1, yfirvinnu 2 og stórhátíð“

Fyrirtæki sem greiða eftir kjarasamningum iðnaðarmanna geta látið Unni skipta yfirvinnunni í þrjá launaliði.

  1. Farðu í StillingarTímaskráningLaunakeyrsla.

  2. Kveiktu á Skipta yfirvinnu í yfirvinnu 1, yfirvinnu 2 og stórhátíð.

  3. Settu í Yfirvinna 2 eftir hve margar stundir á viku eru greiddar sem yfirvinna 1 áður en yfirvinna 2 tekur við. Sjálfgefið er 39,5.

  4. Ef þið notið Payday skaltu hafa heitin í Heiti launaliða í Payday nákvæmlega eins og launaliðina í Payday.

  5. Smelltu á Vista.

    Launakeyrsla með yfirvinnu skipt í þrjá launaliði og 39,5 klst. á viku
    Launakeyrsla með yfirvinnu skipt í þrjá launaliði og 39,5 klst. á viku

Í Laun-flipanum koma þá Yfirvinna 1, Yfirvinna 2 og Stórhátíð í stað Yfirvinna samtals:

  • Stórhátíð: yfirvinna á nýársdag, föstudaginn langa, páskadag, hvítasunnudag, 17. júní og jóladag, og eftir kl. 12 á aðfangadag og gamlársdag.
  • Yfirvinna 2: yfirvinna milli kl. 00 og 06, og yfirvinna þegar heildartímar starfsmannsins á tímabilinu fara yfir mörk tímabilsins. Fyrir heilan mánuð (t.d. 1.–30. eða 26.–25.) eru mörkin 171,17 klst. miðað við 39,5 klst. á viku, annars hlutfallsleg eftir fjölda daga. Mörkin fyrir valið tímabil standa undir samtölunum efst í flipanum.
  • Yfirvinna 1: önnur yfirvinna.

Hrár listi yfir skráningar

Kafli: „Hrár listi yfir skráningar“

Þurfirðu hverja skráningu fyrir sig, t.d. með verkefni og lýsingu, sækirðu Excel-skrá úr listanum á flipanum Tímaskráningar, sjá Skrá tíma og breyta skráningum.