Fara í efni

Nýtt í Unni

Helstu nýjungar og endurbætur í Unni, nýjast efst.

2026.41

Leit í þjóðskrá og frjálst dagsmark

Leit í þjóðskrá

Sláðu inn kennitölu þegar þú stofnar verkkaupa og Unnur sækir nafn og heimilisfang, hvort sem hann er fyrirtæki eða einstaklingur. Á eldri verkkaupa notarðu hnappinn Sækja upplýsingar úr skrá.

Bæta við nýjum kaupanda: leit í þjóðskrá efst og reitirnir fyrir neðan.

Stofna verkefni

Dagsmark og rauðir dagar

Dagsmarkið má vera hvaða tímafjöldi sem er, til dæmis 7,2 klst. eins og í samningum iðnaðarmanna, og rauðir dagar geta talist yfirvinna. Hvort tveggja stillirðu á Vikutaxta-síðunni.

Dagvinna og yfirvinna

Myndavél í appinu

Þú tekur myndir beint í tímaskráningunni og stimpilklukkunni í appinu og sérð nýlegar myndir úr myndasafninu um leið.

Annað nýtt

  • Launakeyrslan getur skipt yfirvinnu í yfirvinnu 1, yfirvinnu 2 og stórhátíð undir Stillingar › Tímaskráning › Launakeyrsla.
  • Stjarna í fyrirtækjavalinu velur fyrirtækið sem opnast þegar þú skráir þig inn.
  • Spjaldið Órukkað á mælaborðinu telur ósend drög með og sýnir hve mikið er í drögum.
  • Gjalddagi og eindagi standa á PDF-fylgiskjali sölureiknings þegar þeir eru útfylltir.
2026.40

Möppur í skjölum og tengiliðir verkkaupa

Möppur og útgáfur skjala

Þú raðar skjölum verkefnis í möppur og hleður upp nýrri útgáfu af skrá án þess að týna þeirri eldri. Skjölin eru á flipanum Skjöl á verkefnasíðunni.

Skjöl-flipinn á verkefni. Augntáknið merkir skrár sem eru faldar starfsmönnum, B er útgáfa skrárinnar og 2 fjöldi útgáfa.

Skjöl og möppur

Tengiliðir og aðilar verks

Þú skráir tengiliði á verkkaupa og tengir aðra aðila, til dæmis byggingarstjóra, við einstök verk. Spjöldin eru á verkkaupasíðunni og verkefnasíðunni.

Tengiliðir og aðilar verks

Verktillögur út frá lýsingu

Vanti verknúmer á rafrænan aðfangareikning les Unnur lýsinguna og stingur upp á verki. Tillagan er gul í listanum og þú staðfestir hana með hakinu.

Áætlaðir efnisreikningar

Annað nýtt

  • Í nýrri verkbeiðni velur þú verkkaupa sem er þegar til í kerfinu.
  • Þú ræður á hvaða vörunúmer í DK línur sölureikninga fara.
  • Í tímalistanum á vefnum velur þú hvaða dálkar sjást.
  • Lárétta skrunstikan í breiðum töflum fylgir skjánum, svo þú þarft ekki að skruna neðst.
  • Vefurinn fæst á ensku. Tungumálið velur þú undir Stillingar › Mitt útlit.
2026.39

Útgjöld úr bókhaldskerfi og Sækja skráningar

Útgjöld úr bókhaldskerfi

Þú sækir útgjöld úr Payday eða DK og flytur þau inn sem aðfangareikninga með fylgiskjölum. Stjórnendur finna hnappinn hjá aðfangareikningum þegar bókhaldskerfið er tengt.

Útgjöld úr bókhaldskerfi. Allt sem er ekki komið í Unni er hakað.

Skrá aðfangareikning

Sækja skráningar á drög

Óreikningsfærðar skráningar á verkefninu bætir þú á drög að sölureikningi með hnappnum Sækja skráningar. Hann er efst á drögunum og sýnir hve margar bíða.

Sölureikningar

Verkdagbók í appinu

Þú skrifar dagbókarfærslur á verkefni í appinu og lætur myndir fylgja. Dagbókin er á verkefnisskjánum.

Verkdagbók

Annað nýtt

  • Í glugganum Nýr starfsmaður hakar þú við SMS eða Tölvupóst og boðið fer um leið.
  • Línu á aðfangareikningi má skipta eftir magni svo hlutarnir fari á sitt hvort verkefnið.
  • Þú velur hvort töflur á vefnum sýna 10, 25, 50 eða 100 raðir á síðu.
  • Heiti verkefnis úr verkbeiðni byrjar á heimilisfanginu, stillt undir Stillingar › Virkni › Verkbeiðnir.
  • Um mig í appinu heitir nú Skírteini og sýnir starfsheiti og kennitölu.
2026.38

Vikuskipulag í dagatali og verkdagbók

Vikuskipulag í dagatali

Þú dregur yfir tíma í dagatalinu til að setja starfsmann á verk og dregur úthlutunina til að færa hana. Sýnin Dagatal er við hlið töflunnar í Vikuskipulagi.

Dagatalið á einum degi. Bjarki og Tómas eru saman á 26-041 og úthlutun Gunnars er án tíma.

Vikuskipulag

Verkdagbók á verkefni

Skrifaðu dagbókarfærslur með myndum á verkefnið. Þrjár nýjustu færslurnar eru á verkefnasíðunni og allar færslur á eigin síðu.

Verkdagbók

Flögg á verkkaupum

Stjórnandi getur flaggað verkkaupa með athugasemd, til dæmis þann sem borgar illa. Viðvörun birtist þegar hann er valinn í nýtt verkefni eða á verkbeiðni, en ekkert stöðvast.

Flögg á verkkaupum

Annað nýtt

  • Saga sýnir tíma, efni, myndir og stöðubreytingar dag fyrir dag, á verkefni og fyrir allt fyrirtækið.
  • Verkkaupi getur fengið eigin taxta fyrir hvern taxtahóp, og sölureikningar úr tímaskráningum nota þá.
  • Á vefnum geturðu breytt verkbeiðni eftir að hún er stofnuð og hengt myndir við hana.
  • Þú getur sótt mynd úr myndaskoðuninni á vefnum með Sækja mynd.
  • Starfsmenn fá reitinn Starfsheiti, sem sést á starfsmannasíðunni.
2026.36

Verkbeiðnir og hlekkur fyrir verkkaupa

Verkbeiðnir

Þú sendir hlekk á stutt form og beiðnin kemur inn í Unni, þar sem þú samþykkir hana eða hafnar. Verkbeiðnir eru neðst í valmyndinni.

Innsend beiðni með lýsingu, upplýsingum um kaupanda, staðsetningu á korti og tímalínu

Verkbeiðnir

Hlekkur fyrir verkkaupa

Þú getur búið til verkbeiðnahlekk fyrir tiltekinn verkkaupa. Verkkaupinn er þá þegar skráður á formið og hlekkurinn helst virkur eftir að beiðni er send inn.

Hlekkir og form fyrir verkbeiðnir

Annað nýtt

  • Hlekk á verkbeiðni má senda með SMS beint úr Unni.
  • Á verkefnasíðunni sækirðu allar myndir verkefnis í einni zip-skrá.
  • Þú getur falið aðfangareikning með Fela reikning í valmynd reikningsins.
  • Leit í töflum finnur „FA-004“ þótt þú skrifir „FA004“.
  • Í tímareitum á vefnum dugar að skrifa 1354 til að fá 13:54.
2026.35

Ein tenging við Catacloud

  • Þegar þú tengir Catacloud sem bókhaldskerfi koma aðfangareikningarnir þaðan sjálfkrafa, án sérstakrar tengingar.
  • Frumrit aðfangareikninga úr Catacloud opnast með „Skoða frumrit“.
2026.34

Uniconta-tenging og boð til starfsmanna

Tenging við Uniconta

Sölureikningar úr Unni fara í Uniconta sem sölupantanir sem þú reikningsfærir þar. Þú tengir kerfin undir Stillingar › Tengingar.

Studdar bókhaldstengingar

Boð til starfsmanna

Þú getur sent starfsmanni boð í Unni af starfsmannasíðunni hans. Starfsmenn og verkstjórar fá SMS með hlekk á appið, stjórnendur og skrifstofumenn fá tölvupóst.

Marta stendur á Boðið. Sendihnappurinn við stöðuna sendir henni SMS-boð.

Koma starfsmanni inn í Unni

Póstur til sendanda verkbeiðni

Sá sem sendir inn verkbeiðni fær tölvupóst þegar hún berst og aftur þegar þú samþykkir hana eða hafnar. Seinni póstinum geturðu sleppt með rofanum Senda tölvupóst á sendanda.

Verkbeiðnir

Annað nýtt

  • Sölureikning má merkja sem sendan undir punktunum þremur án þess að hann fari í bókhaldskerfið.
  • Þegar þú velur sjálfvalið verkefni á birgi fara reikningar frá honum beint á verkefnið.
  • Listinn undir Tilboð › Lyklar sýnir tegund hvers lykils og hvernig verðið skiptist á flokka.
2026.33

Konto, Catacloud og dagvinnutími eftir vikudögum

Konto og Catacloud

Þú getur tengt Unni við Konto og Catacloud og sent sölureikninga þangað. Úr Catacloud koma aðfangareikningar líka inn í Unni.

Dagvinnutími eftir vikudögum

Þú setur dagvinnutíma á hvern vikudag og tímaskráningar skiptast í dagvinnu og yfirvinnu eftir honum.

Dagvinnutími mán–fös 07:00–18:00 með matarhléi 12:00–12:30. Laugardagur og sunnudagur eru öll yfirvinna.

Dagvinna og yfirvinna

Sjálfvalið verkefni á birgi

Á birgjasíðunni velur þú verkefni og verkhluta sem aðfangareikningar frá birginum fara sjálfkrafa á.

Birgjar

Annað nýtt

  • Ný síða, Tilboðsvörur, geymir vörur og pakka sem þú velur úr í tilboðslínur.
  • Þú velur hvaða vörur og starfsfólk þú sækir úr Payday eða DK.
  • Í skráningatöflum á vefnum geturðu hakað við margar línur og eytt þeim í einu.
  • Dagsetningarsían má vera opin í annan endann, til dæmis allt fram að ákveðnum degi.
  • Í appinu geturðu skráð sömu akstursferð á marga daga í einu.
2026.32

Innlestur reikninga af PDF og matarhlé

Innlestur aðfangareikninga af PDF

Unnur les PDF eða mynd af reikningi frá birgi og fyllir út birgi, dagsetningar og línur fyrir þig. Flipinn Innlestur PDF er í glugganum fyrir nýjan aðfangareikning.

Reikningur lesinn af PDF. Birgirinn fannst ekki í Unni og verður stofnaður.

Skrá aðfangareikning

Matarhlé

Matarhlé dregst frá unnum tíma áður en dagvinna og yfirvinna eru reiknuð, og þú getur breytt lengdinni á hverri tímaskráningu. Hléin koma líka fram í launayfirlitinu.

Matarhlé

Verkfæragjald

Unnur bætir verkfæragjaldi á sölureikninga sem hlutfalli af tímunum á reikningnum og reiknar það aftur þegar tímarnir breytast. Þú kveikir á gjaldinu og velur prósentuna í stillingum sölureikninga.

Tæki og verðlagning

Annað nýtt

  • Þú getur skráð akstur á marga daga í einu og margar lagervörur í sömu skráningu.
  • Starfsmenn og verkstjórar sjá ekki lengur upphæðir verkhluta, tilboðssamanburð eða aðfangareikninga á verkefnasíðunni.
  • Þegar þú velur verkefni á aðfangareikning eru lokin verkefni falin þar til þú hakar við Sýna öll.
  • Pósturinn til bókara sýnir seljanda og sendanda, og svar bókarans berst þeim sem sendi.
2026.30

Birgðahald og lagersamstilling við bókhaldskerfi

Birgðastaða og talning

Unnur heldur utan um birgðastöðu lagervara og skráir hreyfingar sjálfkrafa þegar efni er notað eða kemur inn af aðfangareikningi. Hreyfingarnar og staðan sjást á lagersíðunni og á hverri vöru.

Hreyfingasaga: 300 m komu inn af reikningi og 25 m voru skráðir sem rýrnun.

Birgðahald og bókhaldskerfi

Lagersamstilling við Payday og DK

Þú parar lagervörur við vörurnar í bókhaldskerfinu með samstillingarhnappi í stillingum. Lagervörur fara þá með vörunúmeri á sölureikninga, svo birgðirnar lækka þar líka.

Birgðahald og bókhaldskerfi

Annað nýtt

  • Sölureikningar sýna greiðslustöðu úr Payday og þú getur síað listann eftir henni.
  • Í fjarverustillingum stillir þú vinnustundir fyrir hvern vikudag og fjarvera reiknast eftir þeim.
  • Lagerverkefni er ný verktýpa sem tekur aðeins við aðfangareikningum.
  • Í appinu getur þú síað verkefnalistann með „Aðeins mitt teymi“.
2026.29

Fjöldaval á tímaskráningum og dökkur hamur

Fjöldaval á tímaskráningum

Þú hakar við margar tímaskráningar á vefnum og eyðir þeim eða færir þær á annað verkefni í einu lagi. Aðgerðirnar birtast í stiku um leið og eitthvað er valið.

Fjórar tímaskráningar á 26-045 valdar. Færa á verkefni er neðst.

Færa skráningar og sameina verkefni

Dökkur hamur

Vefurinn er kominn með dökkt útlit. Þú velur ljóst eða dökkt í stillingum.

Annað nýtt

  • Á sölureikningi sést hver sendi hann.
  • Excel-sniðmátið fyrir innflutning tímaskráninga hefur dálkinn Verkhluti, fyrir verkefni með fleiri en einn verkhluta.
  • Þegar þú ferð til baka af síðu heldur listinn síunum sem þú varst með.