Fara í efni

Gæðahandbókin

Lestu gæðahandbókina, taktu gæðakerfið í notkun og fylgstu með útgáfunum sem Unnur gefur út og lestri meistaranna.

Unnur skrifar gæðahandbókina upp úr skráningum fyrirtækisins. Kaflarnir fylgja HMS 9.004, og í viðaukum eru verklagsreglur V-01 til V-13, gátlistar og eyðublöð, og starfsmenn og hlutverk þeirra (viðauki C).

Stjórnandi og Skrifstofumaður opna handbókina með GæðakerfiGæðahandbók. Meistari sem er hvorki Stjórnandi né Skrifstofumaður sér ekki Gæðakerfi, en hann fær Gæðahandbók í valmyndina í Verkbókhaldi. Aðrir starfsmenn geta ekki opnað handbókina.

Handbókin opnast á gildandi útgáfu. Efst stendur til dæmis Í gildi · C. Efnisyfirlitið er til vinstri og textinn til hægri.

Útgáfa C í gildi, opin á kafla 3. Opna við hvern kafla fer þangað sem atriðið er geymt í Unni.
Útgáfa C í gildi, opin á kafla 3. Opna við hvern kafla fer þangað sem atriðið er geymt í Unni.
  • Sækja PDF sækir útgáfuna sem er á skjánum.
  • Útgáfur sýnir allar útgáfur, og Stjórnanda, Skrifstofumanni og gæðastjóra líka hverjir hafa lesið, sjá Útgáfur og lestur.
  • Opna við kafla fer þangað sem atriðið er í Unni, til dæmis í möppu í Skjölum, á flipann Meistarar eða í eyðublað. Hnapparnir sjást aðeins í Gæðakerfi, ekki hjá meistara sem er hvorki Stjórnandi né Skrifstofumaður.
  • Hlekkirnir við atriðin á Yfirlit, til dæmis Handbók 4.4, opna handbókina á kaflanum sem atriðið á við.

Smellirðu á eldri útgáfu í Útgáfur stendur til dæmis Útgáfa B er úrelt efst, og Sjá gildandi (C) fer aftur á gildandi útgáfu.

Taka gæðakerfið í notkun

Kafli: „Taka gæðakerfið í notkun“

Eftir uppsetningu eru tilbúin drög að fyrstu útgáfu. Meistari les þau og tekur kerfið í notkun. Þetta er gert einu sinni.

  1. Opnaðu GæðakerfiYfirlit. Efst stendur Drög tilbúin við Gæðahandbók. Smelltu á Lesa drög.

    Uppsetningu lokið og drögin bíða þess að meistari taki kerfið í notkun.
    Uppsetningu lokið og drögin bíða þess að meistari taki kerfið í notkun.
  2. Lestu drögin. Efst í textanum stendur Drög, ekki samþykkt.

  3. Meistarinn smellir á Taka gæðakerfið í notkun, og svo á Taka í notkun í glugganum.

    Meistarinn samþykkir drögin og þau verða útgáfa A.
    Meistarinn samþykkir drögin og þau verða útgáfa A.

Drögin verða útgáfa A með nafni meistarans. Hún vistast sem PDF í Skjöl › Fyrirtækið › Gæðahandbók og er læst: henni er ekki hægt að breyta eða eyða. Hinir meistararnir fá tilkynningu í appið um að lesa hana.

Sé notandinn ekki meistari stendur Meistari tekur kerfið í notkun í stað hnappsins. Meistari sem er hvorki Stjórnandi né Skrifstofumaður opnar Gæðahandbók í valmyndinni og finnur hnappinn efst í drögunum.

Eftir þetta gefur Unnur út nýjar útgáfur sjálf. Það gerist þegar eitthvað sem handbókin segir breytist, til dæmis meistarar, fög, gæðastjóri, gátlistar, verkstöður eða lýsing á hýsingu. Unnur fer yfir handbókina á hverjum morgni um kl. 8:10 og alltaf áður en skoðunargögn eru sótt. Unnur gefur líka út nýja útgáfu þegar hún uppfærir texta handbókarinnar sjálfrar, til dæmis verklagsreglu.

Þangað til stendur Kemur í næstu útgáfu: efst í handbókinni og hvað hefur breyst, til dæmis Meistarar og Gátlistar. Þú þarft ekkert að gera, Unnur gefur útgáfuna út. Smelltu á heiti til að fara í kaflann.

Meisturum og gátlistum hefur verið breytt síðan útgáfa C kom út.
Meisturum og gátlistum hefur verið breytt síðan útgáfa C kom út.

Unnur skráir sjálf hvað breyttist, til dæmis „Nýr meistari“ eða nýja útgáfu gátlista, og það fer í breytingasögu handbókarinnar. Á forsíðu útgáfu A stendur nafn meistarans sem samþykkti. Á síðari útgáfum stendur Gefið út af Unni, og í línunni Tekið í notkun nafn hans, titill og dagsetning.

Breyting á starfsmannalistanum í viðauka C býr ekki til nýja útgáfu.

Hver meistari þarf að lesa handbókina og staðfesta lesturinn. Það á við um útgáfu A, um nýjan meistara og um nýja útgáfu þar sem verklag í handbókinni hefur breyst. Aðeins breyting sem Unnur gerir á verklagi í texta handbókarinnar kallar á nýjan lestur. Breytingar á skráningum fyrirtækisins (meistarar, fög, gæðastjóri, gátlistar, verkstöður, hýsing) gera það ekki.

Meistari sem á eftir að lesa fær tilkynningu í appið. Á vefnum er punktur við Gæðahandbók í valmyndinni, og sé hann líka Stjórnandi eða Skrifstofumaður stendur Lesa gæðahandbók efst í Næstu skref á Yfirlit.

  1. Opnaðu Gæðahandbók.

  2. Efst stendur til dæmis Lestu útgáfu C og hvað hefur breyst síðan þú last síðast. Útgáfur með breyttu verklagi eru merktar Breytt verklag.

    Meistari sem er hvorki Stjórnandi né Skrifstofumaður: verklag hefur breyst síðan hann las útgáfu A.
    Meistari sem er hvorki Stjórnandi né Skrifstofumaður: verklag hefur breyst síðan hann las útgáfu A.
  3. Lestu handbókina og smelltu á Lesið. Hnappurinn er efst og aftur neðst í textanum.

Útgáfur efst í handbókinni sýnir útgáfurnar, nýjustu efst. Við hverja stendur dagsetning, hvað breyttist og Gefið út af Unni, eða Samþykkt og nafn meistarans á útgáfu A. Smelltu á útgáfu til að opna hana.

Stjórnandi og Skrifstofumaður sjá líka Lestur meistara, og gæðastjórinn ef hann er meistari. Þar stendur við hvern meistara hvaða útgáfu hann las síðast og hvenær, og merkið Lesið, Á eftir að lesa eða Hefur ekki lesið. Gott er að líta á þetta fyrir skoðun.

Einn meistari hefur lesið útgáfu C, einn á eftir að lesa hana og einn hefur aldrei lesið.
Einn meistari hefur lesið útgáfu C, einn á eftir að lesa hana og einn hefur aldrei lesið.

Hafi enginn virkur meistari lesið handbókina eftir síðustu breytingu á verklagi stendur það undir Athugið þegar þú sækir skoðunargögn.

Viðauki C er listi yfir starfsmenn og hlutverk þeirra. Í gildandi útgáfu sýnir hann stöðuna í dag, til dæmis Staðan í dag, 26.11.2026, með dálkunum Nafn, Hlutverk og Réttindi.

Viðauki C: níu af þrettán starfsmönnum eru á listanum.
Viðauki C: níu af þrettán starfsmönnum eru á listanum.

Stjórnandi og Skrifstofumaður haka við þá sem eiga að vera á listanum. Taktu út prófunar- og þjónustuaðganga. Hakið vistast strax. Meistarar og gæðastjóri eru alltaf með, og hak þeirra er grátt. Meistarar sjá aðeins þá sem eru á listanum.

Listinn fer í skoðunargögnin sem sérstakt skjal, 7 Starfsmenn og hlutverk, eins og hann er daginn sem gögnin eru sótt.

Viljirðu frekar nota eigin handbók hleðurðu henni upp í möppuna Gæðahandbók. Hún fer þá í skoðunargögnin, en atriðin um handbókina standa á Athuga því gæðakerfið hefur ekki verið tekið í notkun í Unni. Hafðu aðeins eina skrá efst í möppunni. Séu þær fleiri er óljóst hver þeirra gildir og ekki hægt að sækja skoðunargögn.

Aðgerð Hver
Lesa handbókina Stjórnandi, Skrifstofumaður og meistari
Taka gæðakerfið í notkun Meistari
Staðfesta lestur Meistari
Sjá Lestur meistara Stjórnandi, Skrifstofumaður og gæðastjóri sem er meistari
Velja starfsmenn í viðauka C Stjórnandi og Skrifstofumaður
Opna við kafla Stjórnandi og Skrifstofumaður