Úttektir á verkefni
Gerðu úttekt eftir gátlista á vefnum eða í appinu, skráðu frávik og úrbætur, undirritaðu, og haltu utan um úttektir eftirlitsaðila, iðnmeistaraskipti, ábyrgðaryfirlýsingar og teikningaskrá verksins.
Úttektir eru eigið eftirlit iðnmeistarans með verkinu, skráð eftir gátlista. Á verkefninu eru líka skráðar úttektir eftirlitsaðila, til dæmis áfangaúttektir byggingarstjóra, og frávik, til dæmis athugasemdir byggingarstjóra. Allt þetta er í flipanum Úttektir á verkefnum af tegundinni Útselt og Tilboð, og í hlutanum Úttektir á verkinu í appinu.
Gæðakerfið sjálft (meistarar, gæðahandbók, gátlistar og verkskrá) er sett upp í Gæðakerfi á kerfastikunni, sjá Gæðakerfi iðnmeistara.
Gæðakerfi-spjaldið
Kafli: „Gæðakerfi-spjaldið“Á Yfirlit-flipa verkefnisins er spjaldið Gæðakerfi. Þar sést leyfisflokkur verksins, leyfisnúmer, byggingarstjóri og ábyrgur meistari. Undir Vantar er það sem á eftir að ganga frá, til dæmis Ábyrgðaryfirlýsing eða Verklok óundirrituð. Stjórnandi og Skrifstofumaður geta smellt á það: Byggingarstjóri og Ábyrgur meistari opna gluggann Gæðaupplýsingar, Ábyrgðaryfirlýsing opnar möppuna og Verklok óundirrituð opnar úttektirnar. Neðst eru frávik sem eru ekki staðfest og síðustu úttektir með stöðu.

Stjórnandi og Skrifstofumaður sjá punktana þrjá á spjaldinu. Þeir opna:
- Breyta: gluggann Gæðaupplýsingar með leyfi, leyfisnúmeri og leyfisveitanda, heimilisfangi, fastanúmeri og landnúmeri mannvirkisins, byggingarstjóra (úr tengiliðum eða skráðan beint), verkþáttum meistarans og ábyrgum meistara.
- Iðnmeistaraskipti: á byggingarleyfisskyldu verki með ábyrgan meistara, sjá Iðnmeistaraskipti.
- Búa til úttektir: á byggingarleyfisskyldu verki. Býr til úttektir sem eiga sjálfkrafa að fylgja slíkum verkum en vantar á verkið.

Þegar verk er flokkað Byggingarleyfisskylt, hér eða í verkskránni, gerist þetta:
- Sé aðeins einn meistari í fyrirtækinu verður hann ábyrgur meistari verksins.
- Úttektir eftir gátlistum sem fylgja byggingarleyfisskyldum verkum verða til, sjálfgefið Upphaf verks og Verklok. Þeim er úthlutað á verkstjóra verksins, eða þann sem skráði síðast tíma á það, og fresturinn er áætluð verklok.
Þegar Stjórnandi eða Skrifstofumaður stofnar nýtt verkefni af tegundinni Útselt eða Tilboð er rofinn Byggingarleyfisskylt í forminu. Kveikirðu á honum geturðu skráð byggingarstjóra strax og úttektirnar verða til með verkinu. Sé slökkt á honum flokkast verkið Ekki leyfisskylt. Því má breyta seinna.
Úttektir-flipinn
Kafli: „Úttektir-flipinn“Flipinn Úttektir sýnir allar úttektir verksins í einum lista: eigin úttektir eftir gátlista (Ú-1, Ú-2 …) og úttektir eftirlitsaðila. Efst eru frávik verksins sem eru ekki staðfest, til dæmis 5 opin frávik · 3 bíða staðfestingar. Smelltu á línuna til að sjá þau, og á frávik til að opna það.

Í dálkinum Staða sést hvar hver eigin úttekt stendur:
- Í vinnslu, með stiku sem sýnir hve mörgum atriðum er svarað.
- Bíður þín þegar öllu er svarað og þú átt að undirrita, annars Bíður meistara með lás.
- Undirrituð, með lás.
Sé frestur úttektar liðinn án þess að hún sé undirrituð stendur Frestur liðinn í stað stöðunnar. Við úttekt eftirlitsaðila stendur niðurstaðan, til dæmis Með athugasemdum.
+ Ný skráning efst til hægri skráir nýtt atriði:
- Úttekt: eigin úttekt eftir gátlista.
- Úttekt eftirlitsaðila: áfanga-, öryggis-, loka- eða stöðuúttekt. Aðeins Stjórnandi og Skrifstofumaður.
- Frávik: galli á verkinu, til dæmis athugasemd frá byggingarstjóra.

Gera úttekt eftir gátlista
Kafli: „Gera úttekt eftir gátlista“- Smelltu á + Ný skráning og veldu Úttekt.
- Veldu gátlistann. Efst eru gátlistar sem hafa þegar verið notaðir á verkinu (Notað á verkinu). Smelltu á Hefja úttekt.
- Svaraðu hverju atriði með Í lagi, Frávik eða Á ekki við. Hvert svar vistast um leið.
- Lýstu frávikum í reitnum Lýsing sem opnast og bættu við myndum þar sem þeirra er krafist.
- Smelltu á Undirrita þegar öllu er svarað.

Táknin aftast í línu hvers atriðis bæta við athugasemd og myndum. i við atriði sýnir leiðbeiningar. Sé eining skráð á atriðið (t.d. bar) þarf að slá inn Mæligildi.
Þegar svarað er Frávik verður til frávik á verkinu (F-1, F-2 …), og við atriðið birtist til dæmis Frávik F-1 með stöðu þess. Smelltu á það til að opna frávikið. Sé gallinn lagaður á staðnum kveikirðu á Lagað strax og skrifar undir Úrbót hvað var gert. Frávikið verður þá Úrbætt og Stjórnandi eða meistari staðfestir það seinna. Breytirðu svari úr Frávik áður en úttektin er undirrituð verður frávikið líka Úrbætt, og því er ekki eytt.
Sum atriði athugar Unnur sjálf, til dæmis hvort skrá sé í möppunni Teikningar, hvort aðrar úttektir á verkinu séu undirritaðar eða hvort opin frávik séu á því. Stenst atriðið ekki sérðu ástæðuna við það og Laga fer þangað sem það er lagað. Slíkt atriði er ekki hægt að merkja Í lagi fyrr en það stenst.

Punktarnir þrír efst á úttektinni opna Autt eyðublað (gátlistinn óútfylltur sem PDF) og Eyða úttekt. Aðeins er hægt að eyða úttekt sem er ekki undirrituð, og það getur sá sem stofnaði hana eða Stjórnandi og Skrifstofumaður. Frávik úr henni fara með, en úttektinni er ekki hægt að eyða ef frávik úr henni hefur verið úrbætt eða staðfest.
Undirrita og læsa
Kafli: „Undirrita og læsa“Undirrita verður virkt þegar:
- öllum atriðum hefur verið svarað,
- hvert frávik hefur lýsingu á því sem fannst,
- myndir eru komnar þar sem þeirra er krafist,
- mæligildi eru skráð
- og sjálfvirku athuganirnar standast þar sem svarað er Í lagi.
Við hliðina á hnappnum stendur hvað er eftir, til dæmis 12 ósvöruð eða 3 ófullgerð. Smelltu á textann til að fara að næsta atriði sem vantar eitthvað. Við atriðið sjálft stendur hvað vantar: Lýsing vantar, Mynd vantar eða Mæligildi vantar.

Sá sem gerði úttektina undirritar hana. Á úttekt sem varð til sjálfkrafa er það sá sem svaraði fyrst. Meistari getur alltaf undirritað. Standi Meistari undirritar á úttektinni getur aðeins meistari undirritað hana. Það á við um nær alla gátlista í safni Unnar, þar á meðal Verklok. Þegar öllu er svarað og annar á að undirrita stendur Bíður meistara með lás í stað hnappsins.
Undirrituð úttekt er læst og henni verður ekki breytt. Efst stendur hver undirritaði og hvenær, og löggildingarnúmer meistarans. PDF af úttektinni vistast í möppunni Úttektir á verkinu, læst og merkt Undirrituð úttekt. Í PDF-skjalinu eru líka gildandi útgáfur teikninga á undirritunardegi. Punktarnir þrír opna Sækja PDF og Opna í Skjölum.

Frávik og úrbætur
Kafli: „Frávik og úrbætur“Frávik á verki fer í gegnum sömu þrjú stig og önnur frávik: Opið, Úrbætt og Staðfest. Smelltu á frávik til að opna það.
- Skrá úrbót: allir sem hafa aðgang að verkinu geta skráð hvað var gert og bætt við myndum.
- Staðfesta: Stjórnandi eða meistari skrifar Staðfesting, og frávikið verður Staðfest. Aðrir sjá lás og Meistari staðfestir.
- Breyta: Stjórnandi og Skrifstofumaður skrá ábyrgðarmann og frest, og geta valið Setja á verkáætlun. Þá fer úrbótin á verkáætlun starfsmannsins.
Öll frávik fyrirtækisins eru líka á flipanum Frávik á síðunni Gæðakerfi, sjá Frávik.
Úttekt eftirlitsaðila
Kafli: „Úttekt eftirlitsaðila“Áfanga-, öryggis- og lokaúttektir byggingarstjóra eða byggingarfulltrúa eru skráðar á verkið svo þær séu rekjanlegar.
- Smelltu á + Ný skráning og veldu Úttekt eftirlitsaðila.
- Veldu Tegund: Áfangaúttekt, Öryggisúttekt, Lokaúttekt, Stöðuúttekt eða Annað. Fyrir áfangaúttekt velurðu líka Áfangi (a–u).
- Skráðu Dagsetning, Úttektarmaður og Viðstaddur (hver var viðstaddur fyrir hönd meistarans).
- Veldu Niðurstaða: Án athugasemda, Með athugasemdum eða Hafnað. Séu athugasemdir skrifarðu hverja í sína línu. Hver athugasemd verður frávik á verkinu.
- Dragðu skýrsluna á Skýrsla ef þú ert með hana. Hún fer í möppuna Úttektir.
- Smelltu á Skrá úttekt.

Smelltu á úttektina í listanum til að skoða eða breyta henni. Sé henni eytt eyðast opin frávik hennar með.
Frávik á verkinu
Kafli: „Frávik á verkinu“Galli sem kemur fram utan úttekta, til dæmis athugasemd frá byggingarstjóra á verkstað, er skráður sem frávik á verkinu. Smelltu á + Ný skráning, veldu Frávik og skrifaðu Heiti og eftir atvikum Lýsing. Undir Frá velurðu Byggingarstjóri, Ég eða Annar. Nafnið sem fer á frávikið stendur fyrir neðan, og Annar opnar reit fyrir nafn. Sjálfgefið er Byggingarstjóri ef hann er skráður á verkið. Þú getur valið Alvarleiki, Ábyrgur og Frestur og bætt við allt að 15 myndum. Smelltu á Skrá frávik.

Iðnmeistaraskipti
Kafli: „Iðnmeistaraskipti“Taki annar meistari við verkinu er það skráð svo ábyrgðin sé rakin. Stjórnandi og Skrifstofumaður skrá skiptin á byggingarleyfisskyldu verki sem hefur ábyrgan meistara.
- Á Gæðakerfi-spjaldinu velurðu ⋮Iðnmeistaraskipti.
- Veldu Nýr meistari og Dagsetning, og skráðu Verkþættir meistara ef þeir breytast.
- Hafðu kveikt á Stöðuúttekt ef úttektin Stöðuúttekt við iðnmeistaraskipti á að verða til fyrir nýja meistarann.
- Smelltu á Skrá skipti.

Ábyrgð fráfarandi meistara lýkur á dagsetningunni og nýi meistarinn tekur við. Hladdu nýrri ábyrgðaryfirlýsingu upp í möppuna Ábyrgðaryfirlýsingar. Byggingarstjóri gerir líka stöðuúttekt við skiptin. Skráðu hana sem úttekt eftirlitsaðila af tegundinni Stöðuúttekt og vistaðu undirritaða skýrslu hennar í Ábyrgðaryfirlýsingar.
Skjöl verksins
Kafli: „Skjöl verksins“Með gæðakerfinu bætist mappan Ábyrgðaryfirlýsingar við skjöl verkefnisins, á eftir Úttektir. Þar eru ábyrgðaryfirlýsingar meistara og skjöl um iðnmeistaraskipti. Skrár í henni eru sjálfgefið faldar starfsmönnum. Á byggingarleyfisskyldu verki þarf að vera skrá í möppunni áður en hægt er að sækja skoðunargögn.
Undirrituð úttekt og útgáfur gæðahandbókar úr Unni eru læstar skrár, merktar með lás, og undir heiti úttektar stendur Undirrituð úttekt. Þeim er ekki hægt að eyða, breyta eða setja nýja útgáfu á. Aðeins Sækja er í boði.

Teikningaskrá
Kafli: „Teikningaskrá“Í möppunni Teikningar er hnappurinn Teikningaskrá efst. Hann sækir PDF með öllum teikningum verksins og gildandi útgáfu hverrar. Skráin er reiknuð upp á nýtt í hvert sinn, svo hún er alltaf í samræmi við möppuna.

Til að teikningaskráin sýni teikningarnúmer, hönnuð og útgáfudag opnarðu ⋮Breyta skrá á teikningunni og fyllir út Teikninganr., Dags. útgáfu og Frá (hönnuður). Ný útgáfa sömu teikningar heldur númerinu og hönnuðinum. Það sem er ekki skráð stendur sem „ekki skráð“ í teikningaskránni. Um útgáfur teikninga, sjá Skjöl og möppur.

Þegar verkið er klárað
Kafli: „Þegar verkið er klárað“Þegar byggingarleyfisskylt verk fer í stöðu í flokknum Lokið verður úttektin Verklok til, ef hún er ekki þegar til. Séu frávik á verkinu sem eru ekki staðfest eða Verklok óundirrituð færðu viðvörun á vefnum. Verkinu er samt lokið. Í virkniskoðun er ekki hægt að senda verk sem er merkt lokið fyrr en Verklok er undirrituð og frávikin staðfest.
Í appinu
Kafli: „Í appinu“Á verkinu í appinu er hlutinn Úttektir. Við fyrirsögnina stendur hve margar úttektir eru undirritaðar af öllum, og undir henni hvað vantar á verkið, til dæmis Ábyrgðaryfirlýsing eða Verklok. Efst eru úttektir sem bíða þín og úttektir í vinnslu, svo frávik sem eru ekki staðfest og loks undirritaðar úttektir. Sjá allar sýnir allar. + byrjar nýja Úttekt eftir gátlista eða skráir Frávik. Úttektir eftirlitsaðila eru skráðar á vefnum.



- Ýttu á + og veldu Úttekt. Veldu gátlistann. Notaður hér merkir gátlista sem hafa verið notaðir á verkinu.
- Svaraðu hverju atriði með Í lagi, Frávik eða Á ekki við. Svörin vistast jafnóðum.
- Við frávik lýsirðu því sem fannst og tekur mynd. Var gallinn lagaður á staðnum ýtirðu á Lagað strax og skrifar Úrbót.
- Ýttu á Undirrita neðst og svo Undirrita í glugganum.
Undir hnappnum stendur hvað er eftir, til dæmis 14 ósvöruð eða 3 ófullgerð. Ýttu á það til að fara að næsta atriði. Eigi meistari að undirrita úttektina stendur Bíður meistara með lás þegar öllu er svarað.



Sé skeiðklukkan í gangi er hnappurinn Úttekt undir henni. Hann byrjar úttekt á verkinu sem klukkan er á.
MeiraÚttektir sýnir úttektir á öllum verkum sem bíða þín: fyrst þær sem bíða undirritunar, svo þær sem eru í vinnslu hjá þér. Talan á flísinni er fjöldi þeirra.
MeiraFrávik sýnir frávik með flipunum Opin, Úrbætt og Staðfest. Stjórnandi og meistari sjá öll frávik, og talan á flísinni er fjöldi frávika sem bíða staðfestingar. Verkstjóri sér frávik sem hann er ábyrgur fyrir. Opnaðu frávik og ýttu á Skrá úrbót til að skrifa úrbót og bæta við myndum, eða á Staðfesta ef þú ert Stjórnandi eða meistari. Aðrir sjá Meistari staðfestir.



Úttektir í appinu krefjast nettengingar.
Hver getur hvað
Kafli: „Hver getur hvað“| Aðgerð | Hver |
|---|---|
| Sjá úttektir, gera úttekt eftir gátlista og skrá frávik | Allir með aðgang að verkinu |
| Undirrita úttekt | Sá sem gerði hana, eða meistari. Meistari einn ef Meistari undirritar |
| Skrá úrbót á frávik | Allir með aðgang að verkinu |
| Staðfesta frávik | Stjórnandi eða meistari |
| Skrá úttekt eftirlitsaðila, gæðaupplýsingar og iðnmeistaraskipti | Stjórnandi og Skrifstofumaður |
| Eyða úttekt sem er ekki undirrituð | Sá sem stofnaði hana, Stjórnandi og Skrifstofumaður |