Fara í efni

Tilboðsvörur

Hvaðan tillögurnar í línum tilboðsins koma, hvaða verð fyllist inn og hvernig þú skráir og lagar línur sem eru ekki í tillögunum.

Þegar þú bætir línu við tilboð smellirðu í reitinn Leita eða skrifa… neðst í flokknum og velur úr tillögum. Hér sérðu hvaðan hver flokkur sækir vörurnar, svo þú vitir hvar á að laga verð eða bæta við vöru sem vantar.

Þetta á við um útlitið Flokkað. Í Flöt tafla er ein ný lína neðst í hverjum verkhluta. Þar velurðu fyrst flokkinn í dálkinum Flokkur (Lyklar, Tímar, Akstur, Efni eða Tæki) og skrifar svo í reitinn Leita eða skrifa….

Sömu tillögur birtast þegar þú setur saman lykil af tegundinni Vörur, sjá Lyklar.

Tímar sýna tvo hópa. Undir Taxtahópar eru taxtahópar fyrirtækisins með sjálfgefnum taxta hópsins, og undir Starfsmenn eru virkir starfsmenn með sínum taxta. Línan fær nafn hópsins eða starfsmannsins sem lýsingu. Taxtarnir eru stilltir eins og lýst er í Taxtar og taxtahópar.

Tillögur í Tímum: taxtahópar efst og starfsmenn fyrir neðan, hver með sínum taxta.
Tillögur í Tímum: taxtahópar efst og starfsmenn fyrir neðan, hver með sínum taxta.

Efni sýnir vörur af aðfangareikningum fyrirtækisins, nýjustu reikningana fyrst, og nafn birgisins stendur fyrir ofan vörurnar frá honum. Sami birgir getur því komið oftar en einu sinni fyrir í listanum. Fyrir hvert vörunúmer kemur nýjasta línan, og verðið er listaverð birgisins, þ.e. verðið áður en afslátturinn sem þið fáið hjá birginum dregst frá.

Aðeins línur með vörunúmeri koma í tillögurnar. Línur af kreditreikningum og línur þar sem verð eða magn er 0 eru ekki með. Ef engir aðfangareikningar eru skráðir eru engar tillögur í Efni. Sjá Skrá aðfangareikning.

Leitað að kapli í Efni. Nafn birgisins stendur fyrir ofan vörurnar frá honum.
Leitað að kapli í Efni. Nafn birgisins stendur fyrir ofan vörurnar frá honum.

Akstur sýnir akstursvörur fyrirtækisins með einingu og verði, og Tæki sýnir tækin á tækjasíðunni með sjálfgefnu verði þeirra. Sjá Akstur, ökutæki og akstursvörur og Tæki og verðlagning.

Akstursvörur í Akstri.
Akstursvörur í Akstri.
Tæki með dagverði eða tímaverði.
Tæki með dagverði eða tímaverði.

Lyklar sýna lyklana sem eru skráðir á flipanum Lyklar. Verð lykils er ekki hægt að breyta í tilboðinu.

Listinn sýnir mest 50 tillögur í einu. Skrifaðu hluta af nafninu til að þrengja hann.

Þegar þú velur tillögu fyllist Einingarverð út og bendillinn fer í Magn (í Tímum í útlitinu Flokkað heitir reiturinn Klukkustundir). Þú mátt breyta verðinu áður en þú vistar línuna. Breytingin gildir aðeins í þessu tilboði. Ýttu á Enter til að vista. Ef magnið er autt verður það 1.

Ef þú smellir annað án þess að ýta á Enter vistast línan samt, svo framarlega sem þú valdir tillögu eða slóst inn magn eða verð. Esc hreinsar línuna án þess að vista.

Línur sem eru ekki í tillögunum

Kafli: „Línur sem eru ekki í tillögunum“

Skrifaðu lýsinguna í reitinn. Ef ekkert passar stendur „Engin samsvörun — línan vistast sem handskráð.“ Sláðu þá inn magn og einingarverð og ýttu á Enter. Handskráðar línur má skrá í öllum flokkum nema Lyklum.

Handskráð lína í Tækjum. Engin vara passar, svo línan vistast með magninu og verðinu sem þú slærð inn.
Handskráð lína í Tækjum. Engin vara passar, svo línan vistast með magninu og verðinu sem þú slærð inn.

Laga línu sem er komin inn

Kafli: „Laga línu sem er komin inn“

Meðan tilboðið er í drögum geturðu smellt á Lýsingu, Magn, Einingarverð eða Afsl.% í línu og breytt beint í töflunni. Samtals reiknast upp á nýtt. × aftast í línunni eyðir henni strax, án staðfestingar.

Línum sem komu úr lykli er stýrt á annan hátt, sjá Lyklar.