Fara í efni

Breytingarbeiðnir

Hvernig þú lætur breytingar starfsmanna á tímaskráningum bíða samþykkis og hvernig beiðnirnar eru samþykktar eða þeim hafnað.

Með breytingarbeiðnum taka breytingar og eyðingar starfsmanna á tímaskráningum ekki gildi fyrr en Stjórnandi eða Skrifstofumaður hefur samþykkt þær. Slökkt er á þessu þar til þú kveikir á því.

Kveikja á breytingarbeiðnum

Kafli: „Kveikja á breytingarbeiðnum“
  1. Farðu í StillingarTímaskráningBreytingarbeiðnir.
  2. Kveiktu á Krefjast samþykkis á breytingum á tímaskráningum og smelltu á Vista.
Stillingin Krefjast samþykkis á breytingum á tímaskráningum
Stillingin Krefjast samþykkis á breytingum á tímaskráningum

Stjórnandi og Skrifstofumaður geta breytt stillingunni. Flipinn Breytingarbeiðnir á Tímar birtist aðeins á meðan kveikt er á henni.

Hvenær verður breyting að beiðni

Kafli: „Hvenær verður breyting að beiðni“

Þegar kveikt er á stillingunni gildir þetta:

  • Breyti Starfsmaður eða Verkstjóri eigin tímaskráningu verður til beiðni ef breytingin snertir verkefni eða verkhluta, dagsetningu, upphafs- eða lokatíma, dagvinnu, yfirvinnu eða matarhlé.
  • Ef aðeins Lýsing eða Athugasemd breytist tekur breytingin gildi strax.
  • Eyðing verður alltaf að beiðni.
  • Nýjar skráningar fara beint inn, og það gerir stöðvun á stimpilklukku líka.
  • Breytingar Stjórnanda og Skrifstofumanns taka alltaf gildi strax.

Ef breytingin verður að beiðni bíður öll vistunin, líka lýsingin ef henni var breytt í leiðinni. Akstur, efni, tæki og myndir sem breytt er í sama glugga vistast hins vegar strax.

Starfsmaðurinn fær skilaboðin „Breytingarbeiðni hefur verið send til samþykktar“. Ef hann eyddi skráningu í vefnum stendur „Eyðingarbeiðni hefur verið send til samþykktar“. Tímaskráningin breytist ekki fyrr en beiðnin er samþykkt.

Læst skráning á meðan beiðnin bíður

Kafli: „Læst skráning á meðan beiðnin bíður“

Á meðan beiðni bíður getur enginn breytt skráningunni eða eytt henni, ekki heldur Stjórnandi. Í vefnum eru Breyta og Eyða óvirk í valmynd línunnar, og á síðu skráningarinnar er borði með tenglinum Sjá beiðnina.

Tímaskráning sem bíður afgreiðslu beiðni
Tímaskráning sem bíður afgreiðslu beiðni

Í appinu stendur í skráningunni að beiðni bíði, og Skoða breytingarbeiðni opnar hana. Starfsmaðurinn getur afturkallað eigin beiðni með Afturkalla á meðan hún bíður, bæði þar og á flipanum Breytingarbeiðnir í vefnum. Þá er skráningin aftur opin.

Stjórnandi og Skrifstofumaður fá tilkynningu þegar ný beiðni berst. Beiðnir sem bíða eru líka taldar við Tilkynningar í valmyndinni og sjást þar undir Breytingarbeiðnir bíða samþykkis.

  1. Farðu í TímarBreytingarbeiðnir. Þar eru beiðnir allra starfsmanna.

    Þrjár beiðnir í bið, tvær breytingar og ein eyðing
    Þrjár beiðnir í bið, tvær breytingar og ein eyðing
  2. Smelltu á línuna til að opna beiðnina. Taflan Núna / Tillaga sýnir gildin eins og þau eru og eins og starfsmaðurinn vill hafa þau. Það sem breytist er merkt Breytt. Í eyðingarbeiðni sérðu skráninguna sem á að eyða. Smelltu á Tímaskráning til að opna skráninguna sjálfa.

    Elín vill lengja daginn til 18:30 og fá yfirvinnu fyrir það
    Elín vill lengja daginn til 18:30 og fá yfirvinnu fyrir það
  3. Smelltu á Samþykkja og staðfestu. Breytingin tekur strax gildi, eða skráningunni er eytt ef þetta var eyðingarbeiðni.

    Til að hafna smellir þú á Hafna, skrifar Ástæða höfnunar og smellir á Staðfesta höfnun. Ástæðan er skylda og starfsmaðurinn sér hana.

    Ástæða höfnunar er skylda
    Ástæða höfnunar er skylda

Samþykkja og Hafna eru líka beint í línunni í listanum. Ekki er hægt að breyta tillögunni sjálfri. Viltu aðra niðurstöðu en starfsmaðurinn bað um, hafnaðu beiðninni og breyttu skráningunni sjálf/ur. Starfsmaðurinn fær tilkynningu þegar beiðnin er samþykkt eða henni hafnað.

Stjórnandi getur líka afgreitt beiðnir í appinu undir MeiraBreytingarbeiðnir. Skrifstofumaður kemst ekki inn í appið og afgreiðir þær á vefnum. Í appinu eru beiðnirnar flokkaðar í Í bið, Samþykkt og Hafnað. Ýttu á beiðni til að sjá samanburðinn og Samþykkja eða Hafna hana.

Breytingarbeiðnir í bið í appinu
Breytingarbeiðnir í bið í appinu

Af hverju fór breyting starfsmanns beint inn? Annaðhvort er slökkt á stillingunni, aðeins lýsingu eða athugasemd var breytt, eða sá sem breytti er Stjórnandi eða Skrifstofumaður.

Af hverju get ég ekki breytt tímaskráningu? Ef Beiðni í bið stendur efst á síðu skráningarinnar bíður beiðni á henni. Afgreiddu hana fyrst og þá opnast skráningin aftur. Aðrar ástæður eru í Skrá tíma og breyta skráningum.

Ég samþykkti en fékk villu og beiðnin er enn í bið. Breytingin gekk ekki upp, til dæmis af því að skráningin var komin á reikning í millitíðinni. Beiðnin bíður þá áfram. Þú getur hafnað henni eða lagað það sem stóð í veginum og samþykkt aftur.

Þurfa akstur, efni og fjarvera líka samþykki? Nei. Breytingarbeiðnir ná aðeins til tímaskráninga. Fjarvera hefur sitt eigið samþykktarferli, sjá Fjarvera.