Dagvinna og yfirvinna
Hvernig Unnur skiptir skráðum tímum í dagvinnu og yfirvinnu, og hvernig þú stillir dagsmark, dagvinnutíma og rauða daga í vikutaxtanum.
Þegar tími er skráður með upphafs- og lokatíma skiptir Unnur honum sjálf í dagvinnu og yfirvinnu. Reglurnar setur þú einu sinni fyrir allt fyrirtækið í vikutaxtanum. Aðeins Stjórnandi og Skrifstofumaður komast í þessar stillingar.
Tvær reglur ráða skiptingunni
Kafli: „Tvær reglur ráða skiptingunni“- Dagsmark: mest dagvinna á dag. Allt umfram það er yfirvinna, líka innan dagvinnutíma. Allar skráningar starfsmannsins sama dag teljast saman, svo ef hann á þegar 8 klst. dagvinnu skráðar fer næsta skráning öll í yfirvinnu.
- Dagvinnutími: ef kveikt er á vikutaxta er vinna utan dagvinnutímans yfirvinna, og öll vinna á dögum sem hafa engan dagvinnutíma.
Séu báðar reglurnar í gildi verður tími að yfirvinnu um leið og önnur þeirra á við. Dagsmarkið gildir líka þótt slökkt sé á vikutaxta.
Skiptingin er reiknuð í stimpilklukkunni og þegar skráð er með upphafs- og lokatíma, í vefnum og í appinu. Í vefnum heitir sú tegund skráningar Tímaskráning með tímastimpli. Í tegundinni Einföld tímaskráning, þar sem aðeins er sleginn inn tímafjöldi, ræður sá sem skráir hvað fer í Dagvinna og hvað í Yfirvinna.
Stilla dagsmarkið
Kafli: „Stilla dagsmarkið“Farðu í StillingarTímaskráningVikutaxti.
-
Sláðu inn fjölda stunda í Klukkustundir á dag, eða smelltu á 7,2 klst., 7,7 klst. eða 8 klst. Leyfilegt er 1 til 16 klst. Veldu Ekkert hámark ef yfirvinna á ekki að reiknast út frá fjölda stunda.

Dagsmark efst á Vikutaxta-síðunni, stillt á 8 klst. á dag -
Smelltu á Vista neðst á síðunni.
Dagsmarkið gildir fyrir alla starfsmenn fyrirtækisins. Starfsmenn geta ekki breytt því sjálfir.
Hafi dagsmarkið aldrei verið vistað stendur Ekkert hámark valið, en eldri stillingar einstakra starfsmanna geta þá enn gilt. Veldu dagsmarkið og smelltu á Vista til að festa það fyrir alla.
Stilla dagvinnutímann
Kafli: „Stilla dagvinnutímann“-
Á sömu síðu kveikirðu á Virkja vikutaxta í spjaldinu Dagvinnutími.
-
Smelltu á eina af tillögunum undir Hröð uppsetning til að fylla út vikuna, t.d. Iðnaðarmenn (FIT, RSÍ, VM): mán–fös 07–18, hlé 12–12:30. Sú tillaga kveikir líka á matarhléi kl. 12:00–12:30, sjá Matarhlé.
-
Lagaðu tímana ef þarf. Hver vinnutími hefur vikudaga og Frá og Til undir Dagvinna. Þarftu annan tíma á suma daga, t.d. styttri föstudag, smellirðu á + Bæta við vinnutíma og velur dagana í honum. Dagar sem eru ekki í neinum vinnutíma eru taldir upp neðst með „öll yfirvinna“.
-
Kveiktu á Rauðir dagar teljast yfirvinna ef öll vinna á rauðum dögum á að vera yfirvinna. Á aðfangadag og gamlársdag verður vinna eftir kl. 12 að yfirvinnu.
-
Smelltu á Vista.

Dagvinnutími mán–fös 07:00–18:00 með matarhléi 12:00–12:30. Laugardagur og sunnudagur eru öll yfirvinna.
Við hvern vinnutíma sést hve margar stundir dagvinnu hann gefur á dag (klst/dag), og neðst á síðunni samtalan á viku. Talan tekur mið af dagsmarkinu og matarhléinu, svo 07–18 með hálftíma hléi og 8 klst. dagsmarki sýnir 8 klst/dag.
Matarhléið er stillt á sömu síðu, sjá Matarhlé.
Dæmi
Kafli: „Dæmi“Dagvinnutíminn er 07–18, matarhlé 12:00–12:30 og dagsmarkið 8 klst. Starfsmaður vinnur frá 06:00 til 16:00:
- Klukkustundin fyrir 07:00 er utan dagvinnutíma og verður yfirvinna.
- Frá 07:00 til 16:00 eru 9 klst. Hálftíminn í hléinu dregst frá, svo eftir standa 8,5 klst.
- Dagsmarkið leyfir 8 klst. dagvinnu. Hálftíminn sem er umfram fer í yfirvinnu.
Niðurstaðan er 8 klst. dagvinna og 1,5 klst. yfirvinna. Þegar skráningin er gerð í vefnum fyllir Unnur strax út Dagvinna 8 og Yfirvinna 1,5 í forminu.

Tölurnar í Dagvinna og Yfirvinna má laga í forminu áður en vistað er. Samtala þeirra þarf þó alltaf að vera jöfn skráða tímanum að frádregnu hléi.