Tæki og verðlagning
Hvernig þú skráir tækin sem þið rukkið fyrir, hvaðan verðið á skráningunum kemur og hvernig verkfæragjald reiknast á sölureikninga.
Undir Tæki heldurðu utan um tækin sem þið leigið út eða rukkið fyrir á verkum, til dæmis lyftur, kjarnabor eða kerru. Hvert tæki hefur einingu og verð, og þaðan kemur verðið á hverri tækjaskráningu sem fer á sölureikning.
Tækjalistinn
Kafli: „Tækjalistinn“Farðu í Tæki. Síðan heitir Tækjaskráning og hefur tvo flipa: Tæki, sem er listinn yfir tækin, og Tækjaskráningar, þar sem notkunin er skráð (sjá Skrá tækjanotkun).

Dálkurinn Skráningardagur sýnir hvenær tækið var síðast skráð á verkefni. Smelltu á heiti tækis til að opna það.
Allir notendur sjá listann. Aðeins Stjórnandi og Skrifstofumaður stofna, breyta og eyða tækjum.
Skrá nýtt tæki
Kafli: „Skrá nýtt tæki“Farðu í Tæki, vertu á flipanum Tæki og smelltu á + efst til hægri.
-
Sláðu inn Heiti.
-
Settu inn Tækjakóða ef þið notið slíka kóða. Hann er valkvæður en má ekki vera sá sami og á öðru tæki.
-
Veldu Sjálfgefin eining, til dæmis Dagur fyrir lyftu sem er leigð á dag eða Klukkustund fyrir mælitæki. Klukkustund er valin fyrirfram.
-
Settu inn Sjálfgefið einingarverð (án vsk.) og, ef þú vilt, Lýsingu.
-
Smelltu á Búa til tæki.

Nýtt tæki útfyllt: steinsög sem er leigð á dag.
Tæki bera alltaf 24% virðisaukaskatt. Það er ekki reitur í glugganum.
Tækjasíðan
Kafli: „Tækjasíðan“Á síðu tækisins sérðu Upplýsingar um tæki og Tækjaskráningarsögu, sem er öll notkun tækisins á völdu tímabili, með verkefni, starfsmanni, magni, upphæð og reikningsstöðu. Hana má sækja í Excel með niðurhalstákninu.

Breyta verði eða eyða tæki
Kafli: „Breyta verði eða eyða tæki“Opnaðu punktana þrjá aftast í línunni í listanum, eða efst til hægri á síðu tækisins, og veldu Breyta eða Eyða.
Verðið er afritað af tækinu yfir á skráninguna þegar hún er gerð. Ef þú breytir verðinu gildir nýja verðið um nýjar skráningar en eldri skráningar halda sínu verði. Verðið er ekki hægt að slá inn á skráninguna sjálfa.
Tæki sem á skráningar er ekki hægt að eyða. Þá birtast skilaboðin Ekki er hægt að eyða tæki sem hefur ógreiddar útleigur.
Verð sem starfsmenn sjá
Kafli: „Verð sem starfsmenn sjá“Sé slökkt á Leyfa starfsmönnum að sjá verð undir StillingarVirkniVerðsýn starfsmanna sjá Verkstjórar og Starfsmenn ekki verð í glugganum Ný tækjaskráning, á síðu skráningar né í undirflipanum Tækjaskráning undir Skráningar á verkefni. Á síðunni Tæki sjást verðin áfram. Stjórnandi og Skrifstofumaður sjá alltaf verð í vefnum, en í appinu gildir stillingin um alla. Nánar í Starfsmannastillingar.
Verkfæragjald
Kafli: „Verkfæragjald“Verkfæragjald er hlutfall af tímunum á sölureikningi. Það reiknast sjálfkrafa á reikninginn og enginn skráir það handvirkt. Stillingin er sjálfgefið af.
Farðu í StillingarVirkniSölureikningar.
-
Kveiktu á Reikna verkfæragjald sjálfkrafa.
-
Breyttu Hlutfall af tímum ef 4% á ekki við.
-
Smelltu á Vista neðst.

Verkfæragjaldið kveikt með 4% af tímum.
Eftir það birtist línan Verkfæragjald (4%) efst í bálkinum Tæki á nýjum sölureikningum. Hún reiknast af tímalínunum eftir álagningu og afslátt. Efni, akstur og tæki telja ekki með. Gjaldið uppfærist þegar tímunum er breytt. Reikningar sem voru stofnaðir áður en kveikt var á stillingunni fá það ekki sjálfkrafa, og tilboðsreikningar fá aldrei verkfæragjald.

Á hverjum reikningi fyrir sig geturðu slökkt á gjaldinu með Reikna verkfæragjald eða breytt Hlutfall af tímum (%). Afsláttur á bálkinn Tæki gildir líka um verkfæragjaldið. Sjá Línur á sölureikningi.
Þegar reikningur með verkfæragjaldi er sendur verður til skráning á tækið Verkfæragjald með upphæð gjaldsins. Tækið verður til við fyrsta sendan reikning og raðast efst í tækjalistanum. Hvað gjaldið hefur skilað sérðu í Tækjaskráningarsögu á síðu tækisins og á flipanum Tækjaskráningar. Ef reikningurinn er endurkallaður hverfur skráningin, sjá Reikningur var sendur. Hvað nú?.
Á tækið er ekki hægt að skrá handvirkt og ekki hægt að eyða því. Í appinu getur það birst í Veldu tæki, en skráning á það vistast ekki.
Algengar spurningar
Kafli: „Algengar spurningar“Ég sé ekki Tæki í valmyndinni. Þá er fyrirtækið ekki með Allur pakkinn. Stjórnandi og Skrifstofumaður sjá áskriftina undir StillingarFyrirtækiÁskrift.
Ég hækkaði verðið en skráningin sýnir gamla verðið. Skráningin fékk verðið sem gilti þegar hún var gerð. Ef hún er Órukkað geturðu opnað hana, valið Breyta og vistað. Þá fær hún verð tækisins eins og það er núna.
Ég sé ekki + á flipanum Tæki. Aðeins Stjórnandi og Skrifstofumaður stofna tæki. Allir geta skráð notkun á flipanum Tækjaskráningar.