Akstur á sölureikning
Hvaða akstur fer á reikninginn, hvernig hann birtist þar og hvernig þú bætir akstri á alla unna daga í einu.
Akstur á útseldu verkefni fær reikningsstöðuna Órukkað og birtist í bálkinum Akstur þegar þú gerir sölureikning fyrir verkefnið. Hvernig reikningur er búinn til og sendur er í Sölureikningar.
Bálkurinn Akstur
Kafli: „Bálkurinn Akstur“Hver ferð er ein lína. Lýsing er heiti ökutækisins og akstursvörunnar, til dæmis „Crafter LP905 – Innanbæjarakstur“, og Magn og Taxti (án vsk.) koma úr ferðinni. Ferð sem var skráð án akstursvöru fær aðeins heiti ökutækisins í Lýsing, magnið 1 og upphæðina sem taxta.

- Allar óreikningsfærðar ferðir verkefnisins eru valdar. Til að láta ferð bíða færðu bendilinn yfir vinstri enda línunnar og smellir á x. Línan verður yfirstrikuð og ferðin bíður næsta reiknings.
- Ef þú síar eftir tímabili efst á reikningnum (Sía eftir tímabili) koma aðeins ferðir innan þess.
- Magni, taxta og afslætti má breyta á línunni. Það breytir aðeins reikningnum, ekki skráðu ferðinni.
- Afslátt á allan aksturinn í einu setur þú í reitinn Akstur undir Afsláttur (%) hægra megin. Sjá Línur á sölureikningi.
Þegar reikningurinn er vistaður sem drög fá ferðirnar stöðuna Í drögum, og Rukkað þegar hann er sendur. Sama ferð getur ekki farið á tvo reikninga. Ef línan er tekin af drögunum, eða drögunum eytt, verður ferðin aftur Órukkað.
Plúsinn + við hliðina á heiti bálksins opnar Ný akstursferð fyrir verkefnið, ef ferð vantar. Hvernig glugginn er fylltur út er í Skrá akstur.
Akstur á hvern unninn dag
Kafli: „Akstur á hvern unninn dag“Hnappurinn + Unnir dagar birtist í bálkinum þegar tímaskráningar á reikningnum eru á dögum sem enginn akstur er skráður á. Hann fyllir út dagana fyrir þig.
- Smelltu á + Unnir dagar. Glugginn Ný akstursferð opnast í hamnum Margar í einu. Verkefni er valið og læst, og dagarnir eru komnir í Dagsetningar.
- Veldu Starfsmaður. Allar ferðirnar skrást á hann.
- Veldu Verkhlutur ef hann birtist, síðan Ökutæki, Akstursvara og magnið. Fjarlægðu daga sem eiga ekki við með x.
- Smelltu á Búa til akstursferðir. Talan í sviga er fjöldi daganna.

Á nýjum reikningi bætast ferðirnar við bálkinn og eru valdar. Þær fara á reikninginn þegar hann er vistaður eða sendur. Á reikningi í drögum fara þær beint á drögin. Hafirðu gert breytingar á drögunum sem eru ekki vistaðar þarf að vista þær fyrst.
Á PDF-fylgiskjalinu
Kafli: „Á PDF-fylgiskjalinu“Á PDF-fylgiskjali reikningsins er hver ferð ein lína með dagsetningu og lýsingu. Í Magn stendur alltaf 1 og í Einingav. upphæð ferðarinnar, líka þegar ferðin var skráð í kílómetrum. Ferð upp á 41 km með kílómetragjaldi upp á 265 kr. birtist því með magnið 1 og einingarverðið 10.865 kr. Í línunni Samtals er fjöldi ferðanna. Nánar um fylgiskjalið í Fylgiskjöl og PDF.

Aksturinn sést ekki á reikningnum
Kafli: „Aksturinn sést ekki á reikningnum“- Verkefnið er Rekstrar eða Tilboð. Ferðirnar eru þá Á ekki við, sjá Verktýpur.
- Ferðin er utan tímabilsins sem síað er eftir.
- Ferðin er þegar á öðrum reikningi. Reikningsstaðan er þá Í drögum eða Rukkað á AksturAkstursferðir.