Fara í efni

Hlekkir og form fyrir verkbeiðnir

Verkbeiðnir berast í gegnum form sem opnast úr hlekk. Hér sérðu hvaða hlekkir eru í boði, hvernig þú sendir þá og hvernig formið lítur út hjá þeim sem fyllir það út.

Sá sem vill biðja ykkur um verk opnar hlekk, fyllir út stutt form og sendir. Beiðnin birtist þá undir VerkbeiðnirBeiðnir. Hvernig þú afgreiðir hana er í greininni Verkbeiðnir.

Stjórnandi og Skrifstofumaður sjá hlekkina og geta deilt þeim. Hlekkirnir eru þrenns konar:

Hlekkur Til hvers Gildir
Almennur hlekkur fyrirtækisins Á heimasíðuna eða í undirskrift. Sami hlekkur fyrir alla. Rennur aldrei út
Einnota hlekkur Sendur með SMS eða tölvupósti á einn viðtakanda Ein beiðni, í 14 daga
Hlekkur fyrir verkkaupa Fastur hlekkur fyrir verkkaupa sem sendir ykkur oft beiðnir Rennur aldrei út

Allir hlekkirnir byrja á Deila hlekk efst á Verkbeiðnir.

Þrjár leiðir til að taka á móti beiðnum
Þrjár leiðir til að taka á móti beiðnum

Almennur hlekkur fyrirtækisins

Kafli: „Almennur hlekkur fyrirtækisins“

Hver sem er getur sent ykkur beiðni í gegnum almenna hlekkinn, og hann nýtist aftur og aftur.

Smelltu á Deila hlekk og veldu Almennur hlekkur fyrirtækisins. Hlekkurinn afritast og glugginn lokast. Hann sést líka efst á flipanum Hlekkir, með Afrita hlekk við hliðina.

Flipinn Hlekkir: almenni hlekkurinn efst og virkir hlekkir í töflunni
Flipinn Hlekkir: almenni hlekkurinn efst og virkir hlekkir í töflunni

Almenna hlekknum er ekki hægt að loka eða skipta út í Unni. Ef þú þarft að skipta um hlekk, hafðu samband við [email protected].

Einnota hlekkur hentar þegar þú vilt fá beiðni frá ákveðnum aðila, t.d. eftir símtal.

  1. Smelltu á Deila hlekk og veldu Senda SMS/tölvupóst.

  2. Veldu SMS og sláðu inn Símanúmer viðtakanda, eða veldu Tölvupóstur og sláðu inn Netfang viðtakanda.

    Einnota hlekkur sendur með SMS
    Einnota hlekkur sendur með SMS
  3. Smelltu á Senda.

Viðtakandinn fær skilaboðin „[nafn fyrirtækisins] óskar eftir verkbeiðni frá þér“ með hlekk á formið. Hlekkurinn gildir fyrir eina beiðni í 14 daga. Eftir innsendingu fær hann stöðuna Nýttur og eftir 14 daga Útrunninn, en sú breyting sést ekki í listanum fyrr en næstu nótt.

Einnota hlekkir og hlekkir verkkaupa eru í töflunni á flipanum Hlekkir. Hún sýnir sjálfgefið aðeins hlekki í stöðunni Virkur. Smelltu á Allar, Nýttur, Útrunninn eða Afturkallaður til að sjá hina.

Afrita, senda aftur eða afturkalla

Kafli: „Afrita, senda aftur eða afturkalla“

Til að afrita hlekk smellirðu á afritunartáknið aftast í línunni í töflunni. Til að senda hann aftur eða afturkalla smellirðu á hlekkinn og síðan á ⋮ efst til hægri. Þetta gildir bæði um einnota hlekki og hlekki verkkaupa.

Einnota hlekkur sem var sendur með SMS, með valmyndinni opna
Einnota hlekkur sem var sendur með SMS, með valmyndinni opna
  • Afrita hlekk afritar slóðina, t.d. til að senda hana sjálf(ur) í skilaboðum.
  • Senda í tölvupósti sendir hlekkinn aftur. Það sést aðeins ef hann var sendur í tölvupósti og er enn virkur. Ekki er hægt að senda SMS aftur. Afritaðu þá hlekkinn eða sendu nýjan.
  • Afturkalla gerir hlekkinn ónothæfan, t.d. ef hann fór á rangan aðila. Staðfestu í glugganum Afturkalla hlekk. Aðeins er hægt að afturkalla virkan hlekk.

Hlekkjum er ekki hægt að eyða, aðeins afturkalla.

Hlekkur verkkaupa er bundinn einum verkkaupa og allar beiðnir sem berast í gegnum hann skrást á hann.

  1. Smelltu á Deila hlekk og veldu Hlekkur fyrir verkkaupa.

  2. Veldu verkkaupann í Verkkaupi.

  3. Sláðu inn heimilisfang í Sjálfgefin staðsetning (valfrjálst) ef verkin eru yfirleitt á sama stað. Sá sem fyllir út formið getur breytt því.

    Hlekkur búinn til fyrir verkkaupa
    Hlekkur búinn til fyrir verkkaupa
  4. Smelltu á Búa til hlekk og síðan á Afrita hlekk í glugganum Hlekkur tilbúinn. Sendu verkkaupanum hlekkinn.

Sé verkkaupinn þegar með virkan hlekk birtist sá hlekkur með textanum „Verkkaupinn er þegar með virkan hlekk — hér er hann.“ Staðsetningin sem þú slóst inn er þá ekki vistuð og hlekkurinn helst óbreyttur. Til að breyta sjálfgefnu staðsetningunni afturkallarðu gamla hlekkinn á flipanum Hlekkir, sjá Afrita, senda aftur eða afturkalla, og býrð svo til nýjan. Hlekkinn finnurðu líka á síðu verkkaupans, á spjaldinu Verkbeiðnahlekkur.

Verkkaupar sem hafa aðgang að verkkaupavefnum geta líka sent verkbeiðni þaðan. Sé verkkaupinn skráður inn og ekki með virkan hlekk hjá ykkur verður sjálfkrafa til hlekkur fyrir hann þegar hann smellir á + við verkbeiðnir. Sá hlekkur birtist á flipanum Hlekkir þótt enginn hjá ykkur hafi búið hann til.

Formið sem viðtakandinn sér

Kafli: „Formið sem viðtakandinn sér“

Hlekkurinn opnar form án innskráningar. Efst er nafn fyrirtækisins ykkar, og merki þess ef það hefur verið sett inn.

Formið af almenna hlekknum
Formið af almenna hlekknum
Á hlekk verkkaupa er verkkaupinn þegar skráður
Á hlekk verkkaupa er verkkaupinn þegar skráður
  • Heiti verkbeiðni og Lýsing eru skylda.
  • Staðsetning verks er valfrjáls. Hnappurinn við hliðina á reitnum sækir staðsetningu tækisins og fyllir út heimilisfangið.
  • Upplýsingar um kaupandann ráðast af hlekknum. Nafnið („Hvaða fyrirtæki/aðili óskar eftir verkinu?“) er valfrjálst. Símanúmer, Netfang og Kennitala eru skylda, nema það sem er þegar vitað: símanúmerið er ekki spurt um ef hlekkurinn var sendur með SMS, og netfangið ekki ef hann var sendur í tölvupósti. Á hlekk verkkaupa er spurt um símanúmer og netfang en hvorki nafn né kennitölu.
  • Bæta við skrá tekur allt að 10 skrár, mest 10 MB hverja: myndir, PDF, Excel, CSV eða textaskrár.

Þegar smellt er á Senda beiðni fær sendandinn staðfestingu í tölvupósti og beiðnin birtist undir Beiðnir með stöðuna Innsent. Ef hlekkurinn hefur verið nýttur, er útrunninn eða afturkallaður sýnir formið aðeins „Þessi hlekkur er ógildur, útrunninn eða hefur þegar verið nýttur.“

Setja formið inn á vefsíðuna

Kafli: „Setja formið inn á vefsíðuna“

Formið af almenna hlekknum má setja beint inn á síðu á vefnum ykkar í ramma (iframe). Þá hverfur hausinn með merki og nafni fyrirtækisins og bakgrunnurinn verður gagnsær, svo formið fellur að síðunni. Sá sem sér um vefinn setur þetta inn:

<iframe
src="https://app.unnurverk.is/verkbeidni/ALMENNI-HLEKKURINN"
width="100%"
height="900"
style="border: 0"
title="Verkbeiðni"
></iframe>
  • Settu almenna hlekkinn í src, nákvæmlega eins og hann afritast með Afrita hlekk. Einnota hlekk má ekki nota, hann virkar bara einu sinni.
  • Ramminn stækkar ekki sjálfur eftir efni, svo stilltu height þannig að formið rúmist.
  • Til að ráða litunum má bæta ?ham=ljost eða ?ham=dokkt aftan við slóðina. Annars fylgir formið ljósri eða dökkri stillingu gestsins.

Stjórnandi getur líka sent hlekk úr appinu. Smelltu á Ný verkbeiðni undir MeiraVerkbeiðnir og veldu Senda hlekk. Undir Sendingarmáti eru SMS og Tölvupóstur, sem senda einnota hlekk eins og á vefnum, og Afrita. Afrita býr til einnota hlekk og afritar hann svo þú getir sent hann sjálf(ur). Á slíkum hlekk spyr formið um símanúmer, netfang og kennitölu.