Fara í efni

Tengiliðir og aðilar verks

Skráðu fólkið hjá verkkaupanum og aðra sem koma að verkinu, t.d. byggingarstjóra eða arkitekt, og tengdu það við verkefnin.

Tengiliður er manneskja með nafni, hlutverki, netfangi og síma. Hann er annaðhvort:

  • Á verkkaupa: starfsmaður verkkaupans, t.d. verkefnastjóri eða bókari. Hann fylgir sjálfkrafa öllum verkefnum verkkaupans.
  • Á verkefni: annar aðili sem kemur að einstökum verkum, t.d. byggingarstjóri eða hönnuður. Hann er aðeins á þeim verkefnum sem þú tengir hann við.

Aðeins Stjórnandi og Skrifstofumaður sjá og skrá tengiliði.

  1. Opnaðu verkkaupann undir Verkkaupar.
  2. Smelltu á punktana þrjá efst til hægri og veldu Nýr tengiliður. Sé verkkaupinn þegar með tengilið geturðu líka smellt á + á spjaldinu Tengiliðir.
  3. Fylltu út Nafn og það sem þú veist af Hlutverk, Netfang og Símanúmer. Hakaðu í Aðaltengiliður ef þetta er sá sem þið talið helst við. Í Athugasemd má skrifa það sem aðrir þurfa að vita um tengiliðinn.
  4. Smelltu á Vista.
Nýr tengiliður á verkkaupasíðunni.
Nýr tengiliður á verkkaupasíðunni.

Spjaldið Tengiliðir birtist á verkkaupasíðunni þegar fyrsti tengiliðurinn er kominn. Aðaltengiliður fær stjörnu og er efstur.

Tengiliðir Nesbyggðar. Stjarnan merkir aðaltengilið.
Tengiliðir Nesbyggðar. Stjarnan merkir aðaltengilið.

Hver tengiliður getur aðeins haft eitt netfang, og tveir tengiliðir geta ekki verið með sama netfangið. Þá kemur villan „Netfangið … er þegar skráð á tengiliðinn …“ með nafni þess sem er með það fyrir.

Punktarnir þrír við tengiliðinn geyma Breyta og Eyða. Sá sem er eytt hverfur líka af öllum verkum.

Á verkefnasíðunni, undir flipanum Samskipti, er spjaldið Aðilar verks. Þar eru allir sem koma að verkinu. Tengiliðir verkkaupans birtast þar sjálfkrafa með merkinu Verkkaupi.

Aðilar verks á 26-041: tveir tengiliðir verkkaupans og byggingarstjóri sem var tengdur verkinu.
Aðilar verks á 26-041: tveir tengiliðir verkkaupans og byggingarstjóri sem var tengdur verkinu.

Tengja aðila við verkið

Kafli: „Tengja aðila við verkið“
  1. Opnaðu verkefnið og farðu á flipann Samskipti.
  2. Smelltu á + á spjaldinu Aðilar verks. Listi yfir alla tengiliði opnast. Við tengiliði verkkaupa stendur nafn verkkaupans.
  3. Hakaðu við þá sem eiga að tengjast verkinu. Leitaðu með Leita að tengilið ef listinn er langur.
  4. Sé aðilinn ekki til smellirðu á Nýr aðili neðst í listanum. Fylltu út gluggann Nýr tengiliður og smelltu á Vista. Aðilinn tengist verkinu strax og verður tengiliður á verkefni.
Listinn sem opnast með + á Aðilar verks. Nýr aðili er neðst.
Listinn sem opnast með + á Aðilar verks. Nýr aðili er neðst.

Hjá aðila sem þú tengdir við verkið stendur hlutverk hans á verkinu. Smelltu á það til að breyta því fyrir þetta verk eingöngu. Sé ekkert hlutverk skráð velurðu Hlutverk í punktavalmyndinni. Aftengja í sömu valmynd tekur hann af verkinu. Tengiliðir verkkaupans standa alltaf á verkinu. Hafirðu líka hakað við þá í listanum fjarlægir Aftengja aðeins þá tengingu.

Sé Póstur virkur hjá ykkur er póstur verkefnisins vinstra megin á flipanum. Smelltu á aðila til að sjá aðeins póst sem hann er á.

Smelltu á nafn tengiliðs á verkkaupasíðunni eða undir Aðilar verks. Sé Póstur virkur hjá ykkur og aðilinn með netfang velurðu í staðinn Opna í punktavalmyndinni undir Aðilar verks. Efst á síðunni stendur hvort tengiliðurinn er Á verkkaupa eða Á verkefni.

Tengiliðasíða byggingarstjórans, merkt Á verkefni: upplýsingar, verkefnið sem hún er tengd og tillaga um að gera hana að tengilið verkkaupans. Hér er Póstur virkur en ekkert pósthólf tengt.
Tengiliðasíða byggingarstjórans, merkt Á verkefni: upplýsingar, verkefnið sem hún er tengd og tillaga um að gera hana að tengilið verkkaupans. Hér er Póstur virkur en ekkert pósthólf tengt.
  • Upplýsingar: hlutverk, verkkaupi, netfang, sími og athugasemd.
  • Verkefni: verkefnin sem hann er tengdur. Hjá tengilið á verkkaupa eru öll verkefni verkkaupans líka talin, merkt Í gegnum verkkaupa. Beina tengingu fjarlægirðu með ✕ sem birtist aftast í línunni þegar þú ferð yfir hana með músinni.
  • Tillögur: hjá tengilið á verkefni stingur Unnur upp á verkkaupum verkefnanna hans. Smelltu á Gera að tengilið til að gera hann að tengilið þess verkkaupa. Þá fylgir hann öllum verkefnum verkkaupans. Sé Póstur virkur stingur Unnur líka upp á verkefnum sem póstur frá tengiliðnum er merktur á, með fjölda póstanna. Tengja tengir hann við verkefnið.

Til að færa tengilið á milli tegunda smellirðu á punktana efst til hægri og velur Breyta. Þar velurðu Á verkefni eða Á verkkaupa undir Tegund, og Verkkaupi ef hann á að vera á verkkaupa.

Sé Póstur virkur hjá ykkur sýnir spjaldið Samskipti tölvupóstsamskipti við tengiliðinn.