Fara í efni

Efni og birgjar

Efni af lager og reikningar frá birgjum.

Hvernig skrái ég efni án vinnustunda?

Kafli: „Hvernig skrái ég efni án vinnustunda?“

Farðu í LagerLagerskráningar og smelltu á +. Í glugganum Ný lagerskráning velurðu Starfsmaður, Verkefni og Lagervara, stillir magnið og smellir á Stofna lagerskráningar. Í appinu ýtirðu á + neðst og velur flipann með kassatákninu.

Aðeins er hægt að skrá vörur sem eru undir Lagervörur. Nánar í Skrá efni af lager.

Hvernig fæ ég reikninga frá birgjum inn í Unni?

Kafli: „Hvernig fæ ég reikninga frá birgjum inn í Unni?“

Reikningar frá birgjum eru undir EfniAðfangareikningar. Þegar rafræn móttaka er virk berast rafrænir reikningar á hverri nóttu, og hringörin efst á síðunni (Samstilla aðföng) sækir nýja reikninga strax. Rafræn móttaka fylgir aðeins Öllum pakkanum, sjá Rafrænir reikningar. Sé Catacloud tengt koma reikningarnir þaðan.

Reikning sem berst ekki rafrænt skráirðu sjálf/ur með + eða lætur Unni lesa hann af PDF. Sé Payday eða DK tengt geturðu líka sótt útgjöld þaðan. Sjá Skrá aðfangareikning.