Reikningur var sendur. Hvað nú?
Sendur reikningur er læstur. Hér sérðu hvernig þú endurkallar hann í drög, lagar og sendir aftur, og hvað þú þarft að gera í bókhaldskerfinu á meðan.
Sendum reikningi er ekki hægt að breyta í Unni. Til að laga hann endurkallarðu hann svo hann verði aftur að drögum, lagar það sem þarf og sendir hann aftur. Það sem gerist í bókhaldskerfinu þarftu yfirleitt að sjá um sjálf(ur).
Þetta geta Stjórnandi og Skrifstofumaður gert.
Endurkalla reikning
Kafli: „Endurkalla reikning“Opnaðu SölureikningarSendir og smelltu á reikninginn.
-
Smelltu á Endurkalla neðst í hægri dálkinum.

Neðst á sendum reikningi eru aðeins hnapparnir Endurkalla og Til baka. -
Staðfestu: „Ertu viss um að þú viljir endurkalla þennan reikning? Þú þarft að endurkalla reikninginn í bókhaldskerfinu sjálfur. Reikningurinn verður færður aftur í drög.“
Reikningurinn opnast þá sem drög með sömu línum. Sjálfgerða PDF-fylgiskjalið hverfur af honum og verður til aftur þegar hann er sendur næst.
Endurkalla virkar aðeins ef bókhaldskerfi er tengt í StillingarTengingarBókhaldskerfi. Annars kemur villan „Stillingar fyrir bókhaldskerfi fundust ekki“ og reikningurinn helst sendur. Þetta á líka við um reikning sem var merktur sendur með Merkja sem sendan: án bókhaldstengingar er ekki hægt að endurkalla hann.
Laga drögin og senda aftur
Kafli: „Laga drögin og senda aftur“Á drögunum geturðu breytt línum, afslætti og fylgiskjölum eins og á öðrum drögum. Sjá Línur á sölureikningi.
Gleymdist eitthvað, t.d. tímar sem voru skráðir eftir að reikningurinn var sendur, smellirðu á Sækja skráningar efst á síðunni. Talan á hnappinum segir hve margar óreikningsfærðar skráningar eru á verkefninu. Hnappurinn er óvirkur ef talan er 0 eða ef þú átt óvistaðar breytingar. Hann er ekki á tilboðsreikningum.

Þegar drögin eru rétt hefurðu tvo kosti:
- Senda reikning: reikningurinn fer aftur í bókhaldskerfið sem nýr reikningur.
- Merkja sem sendan (í valmyndinni með punktunum þremur): reikningurinn fær stöðuna sendur en fer ekki í bókhaldskerfið og enginn tölvupóstur er sendur. Notaðu þetta ef þú hefur þegar leiðrétt reikninginn í bókhaldskerfinu sjálfu.
Reikningur sem er merktur sendur er ekki tengdur reikningnum í bókhaldskerfinu. Á verkkaupavefnum stendur þá tilvísun reikningsins í stað númersins úr bókhaldskerfinu.
Kreditreikningur eða afskrift
Kafli: „Kreditreikningur eða afskrift“Unnur býr ekki til kreditreikninga fyrir sölureikninga. Kreditreikninginn gerirðu í bókhaldskerfinu. Í Unni endurkallarðu reikninginn og sendir hann leiðréttan, eða velur Afskrifa í valmyndinni með punktunum þremur á drögunum ef ekkert á að rukka. Sendan reikning er ekki hægt að afskrifa beint. Muninn á afskrift og Eyða drögum sérðu í Sölureikningar.
Reikningur var endurkallaður óvart
Kafli: „Reikningur var endurkallaður óvart“Reikningurinn er nú drög með sama innihaldi. Ekki smella á Senda reikning, því þá verður til annar reikningur í bókhaldskerfinu. Veldu frekar Merkja sem sendan í valmyndinni með punktunum þremur. Þá fær reikningurinn aftur stöðuna sendur án þess að neitt fari út, og Sent dags. verður dagurinn í dag. Í Catacloud var reikningnum eytt við endurköllunina, svo þar sendirðu hann aftur með Senda reikning.