Fara í efni

Staðsetning við inn- og útstimplun

Þegar staðsetning við stimplun er virk skráir appið hvar starfsmaður stimplar sig inn og út. Þú sérð það á korti og á hverri tímaskráningu, með fjarlægð frá verkstað.

Þegar kveikt er á staðsetningu við stimplun vistar appið einn punkt þegar starfsmaður byrjar á stimpilklukkunni (Hefja skráningu) og annan þegar hann stöðvar hana (Stöðva). Ekkert er skráð þess á milli og ekkert þegar tími er skráður handvirkt.

Stjórnandi eða Skrifstofumaður kveikir á söfnuninni fyrir allt fyrirtækið.

  1. Farðu í StillingarTímaskráningStaðsetning við stimplun.

  2. Kveiktu á Skrá staðsetningu við inn- og útstimplun.

  3. Breyttu Geymslutími ef 30 dagar henta ekki. Leyfilegt er 7 til 365 dagar, og staðsetningum sem eru eldri en það er eytt sjálfkrafa.

  4. Smelltu á Vista.

    Staðsetning við stimplun í Stillingum, með kveikt á söfnun og 30 daga geymslutíma
    Staðsetning við stimplun í Stillingum, með kveikt á söfnun og 30 daga geymslutíma

Slökkvirðu aftur er ekkert skráð lengur og starfsmenn sjá ekkert um staðsetningar í appinu.

Starfsmaðurinn samþykkir í appinu

Kafli: „Starfsmaðurinn samþykkir í appinu“

Ekkert er skráð hjá starfsmanni fyrr en hann hefur sjálfur samþykkt söfnunina í appinu.

  1. Starfsmaðurinn opnar MeiraGPS í appinu. Síðan getur líka birst sjálfkrafa eftir innskráningu.
  2. Á síðunni Staðsetningasöfnun les hann hvað er skráð og hverjir sjá það, og smellir á Samþykkja.
  3. Síminn spyr um leyfi til að nota staðsetningu. Appið þarf aðeins leyfi meðan það er í notkun.

Velji starfsmaðurinn Afþakka fær hann síðuna ekki aftur sjálfkrafa nema samþykkistextanum sé breytt. Hann getur samþykkt síðar undir MeiraGPS. Skrifstofumenn komast ekki inn í appið og geta því ekki samþykkt.

Eftir samþykki sýnir MeiraGPS síðuna Staðsetningar með korti dagsins, þar sem starfsmaðurinn sér hvar hann stimplaði sig inn og út. Fjarlægð frá verkstað sést ekki í appinu. Undir tannhjólinu eru Afturkalla samþykki og Eyða öllum mínum staðsetningum.

Flipinn StarfsmennStaðsetningar hefur tvær sýnir, Kort og Tafla. Þar eru allir starfsmenn með stöðuna Virkur, líka stjórnendur og skrifstofumenn. Fyrir þá sem hafa ekki samþykkt er ekkert sýnt.

Ferill dagsins föstudaginn 9. október. Þrír starfsmenn stimpluðu sig inn og út og sex af níu hafa samþykkt.
Ferill dagsins föstudaginn 9. október. Þrír starfsmenn stimpluðu sig inn og út og sex af níu hafa samþykkt.

Á Kort sérðu Ferill dagsins:

  • Talan efst segir hve margir eru með skráða staðsetningu þann dag og hve margir hafa samþykkt.
  • Örvarnar fletta milli daga og Í dag fer aftur á daginn í dag.
  • Smelltu á nafn til að sjá aðeins þann starfsmann. Sýna alla sýnir alla aftur.
  • Dragðu eftir tímalínunni neðst til að sjá hvar hver var á tilteknum tíma. Hreinsa tíma tekur tímann af.
  • Smelltu á punkt starfsmanns á kortinu til að opna Ferill starfsmanns, þar sem aðeins hann sést. Síðan opnast á deginum í dag, og örvarnar fletta á aðra daga.

Tafla sýnir í dálkunum Síðast skráð og Hnit síðustu staðsetningu hvers starfsmanns síðasta sólarhringinn. Hafi starfsmaður ekki stimplað á þeim tíma stendur Engar staðsetningar. Smelltu á línu starfsmanns sem hefur staðsetningu til að opna feril hans.

Tímaskráning með staðsetningu fær pinna við tímann í tímalistanum. Pinninn er í viðvörunarlit ef inn- eða útstimplunin var utan verkstaðar. Haltu músinni yfir honum til að sjá stöðuna.

Tvær tímaskráningar Tómasar 9. október. Útstimplunin klukkan 15:59 var 0,8 km frá verkstað.
Tvær tímaskráningar Tómasar 9. október. Útstimplunin klukkan 15:59 var 0,8 km frá verkstað.

Á tímaskráningunni sjálfri eru línurnar Staðsetning inn og Staðsetning út með tenglinum Skoða á korti, sem opnar feril starfsmannsins þann dag. Spjaldið Staðsetning sýnir innstimplun, útstimplun og verkstaðinn á korti. Í glugganum Breyta tímaskráningu er sama staða í reitnum Staðsetning.

Staðsetning inn og út á spjaldinu Tími
Staðsetning inn og út á spjaldinu Tími
Spjaldið Staðsetning með verkstaðnum Strandgötu 33
Spjaldið Staðsetning með verkstaðnum Strandgötu 33

Staðan er ein af þremur:

  • Á verkstað: stimplunin var innan svæðis verkstaðarins.
  • 0,8 km frá verkstað (eða önnur fjarlægð): stimplunin var utan svæðisins.
  • Staðsetning skráð: verkefnið hefur engan verkstað með hnitum, svo ekkert er borið saman.

Svæðið er stillt á hverjum verkstað undir Svæði verkstaðar, sjá Verkstaðir og kort. Hafi verkstaður ekkert svæði er miðað við 300 metra. Skekkjan í GPS-punktinum er dregin frá fjarlægðinni, svo punktur sem gæti hafa verið innan svæðisins telst á verkstað.

Hverjir sjá staðsetningarnar

Kafli: „Hverjir sjá staðsetningarnar“
  • Stjórnandi og Skrifstofumaður sjá flipann Staðsetningar og staðsetningar á tímaskráningum. Allar uppflettingar þeirra á kortinu eru skráðar í aðgerðaskrá.
  • Starfsmaðurinn sér sínar eigin staðsetningar í appinu undir MeiraGPS.
  • Starfsmaður og Verkstjóri sem skrá sig inn í vefinn sjá pinnann og stöðuna, til dæmis Á verkstað, á eigin tímaskráningum. Ferill starfsmanns, sem Skoða á korti opnar, er aðeins fyrir Stjórnanda og Skrifstofumann.

Afturkalli starfsmaður samþykkið hættir söfnunin strax. Þá sérðu engar staðsetningar hans á kortinu, ekki heldur eldri. Á tímaskráningum hans sjást eldri staðsetningar áfram þar til geymslutíminn rennur út eða hann velur Eyða öllum mínum staðsetningum.

Þegar engin staðsetning sést

Kafli: „Þegar engin staðsetning sést“

Athugaðu þetta:

  • Er kveikt á Skrá staðsetningu við inn- og útstimplun í Stillingum?
  • Hefur starfsmaðurinn samþykkt undir MeiraGPS, og er hann á stöðunni Virkur? Starfsmaður á stöðunni Boðið er ekki á flipanum.
  • Leyfir síminn appinu að nota staðsetningu? Vanti leyfið stendur „Staðsetningarleyfi vantar. Veittu leyfi í stillingum símans.“ undir GPS í appinu.
  • Var notuð stimpilklukka? Handvirk skráning fær enga staðsetningu. Sé stimpilklukkan stöðvuð í vefnum, eða stöðvist hún sjálfkrafa eftir 18 klst., kemur engin útstimplun. Sjá Stimpilklukkan.

Takist ekki að senda staðsetninguna strax geymir appið hana og sendir með næstu stimplun.