Fara í efni

Finna og skoða verkefni

Verkefnalistinn, verkefnataflan og tímalínan sýna sömu verkefnin á ólíkan hátt. Hér sérðu hvernig þú leitar, síar og flytur listann út.

Öll verkefni fyrirtækisins eru undir Verkefni. Efst eru flipar sem sýna sömu verkefnin á ólíkan hátt:

  • Verkefni: listi með leit, síum og útflutningi.
  • Dálkar: verkefnatafla þar sem hver staða er dálkur.
  • Tímalína: verkin á tímaás eftir áætluðu verktímabili.
  • Saga: allt sem hefur gerst í verkefnum fyrirtækisins, dag fyrir dag. Aðeins Stjórnandi og Skrifstofumaður sjá þennan flipa.

Smelltu á verkefni í hvaða flipa sem er til að opna verkefnasíðuna.

Verkefnalistinn eins og Stjórnandi sér hann.
Verkefnalistinn eins og Stjórnandi sér hann.

Spjöldin efst telja verkefnin í hverri stöðu, fjarveru- og lagerverkefni meðtalin. Smelltu á spjald til að sýna aðeins verkefni í þeirri stöðu. Smelltu aftur á sama spjald, eða á Allt, til að sýna öll verkefnin aftur.

Leita í töflu… leitar í öllum reitum línunnar, líka lýsingu, ytra verknúmeri og kennitölu kaupanda. Leitin gerir ekki greinarmun á há- og lágstöfum og hunsar bandstrik, svo „fa004“ finnur „FA-004“.

Trektartáknið í dálkhaus opnar síu. Hægt er að sía eftir Kaupandi verkefnis, Staðsetning verkefnis, Mönnun, Tegund og Staða. Örvarnar við dálkheiti raða listanum. Það má raða eftir nafni, kaupanda, staðsetningu, tegund, sendum reikningum og því hvenær verkið var búið til, en ekki eftir verknúmeri eða stöðu.

Neðst í listanum eru fjarveruverkefni og lagerverkefni. Auga við nafn verkefnis þýðir að verkið er sýnilegt verkkaupa á verkkaupavefnum, sjá Verkkaupavefurinn.

Mönnun og aðgerðir í línu

Kafli: „Mönnun og aðgerðir í línu“

Dálkinn Mönnun sjá aðeins Stjórnandi og Skrifstofumaður. Hann sýnir hverjir eru skráðir á verkið, og + í dálkinum opnar val á starfsmönnum og verkhópum. Lás við hópinn þýðir að verkefnið krefst aðgangs. Þá sjá það aðeins þeir sem eru skráðir á það, auk Stjórnanda og Skrifstofumanns. Nánar um mönnun á verkefnasíðunni.

Þriggja punkta valmyndin aftast í línunni býður upp á Breyta og Eyða. Stjórnandi, Skrifstofumaður og Verkstjóri geta breytt verki, en aðeins Stjórnandi og Skrifstofumaður geta eytt því. Starfsmenn sjá ekki valmyndina.

Verkstjóri og Starfsmaður sjá ekki dálkinn Mönnun, og verkefni sem krefjast aðgangs sjá þeir aðeins ef þeir eru skráðir á þau. Starfsmaður sér auk þess aðeins spjaldið Allt, engin stöðuspjöld.

Sækja listann í Excel eða PDF

Kafli: „Sækja listann í Excel eða PDF“

Smelltu á niðurhalstáknið hægra megin við leitarreitinn og veldu Sækja Excel eða Sækja PDF. Skráin tekur allar línur sem passa við leitina og síurnar, af öllum síðum, ekki bara þá síðu sem sést. Síaðu því fyrst og sæktu svo.

Verkefnataflan. Hver staða er dálkur og talan efst sýnir fjölda verka í dálkinum.
Verkefnataflan. Hver staða er dálkur og talan efst sýnir fjölda verka í dálkinum.

Hver staða er dálkur og hvert verkefni spjald með verknúmeri, nafni og verkkaupa. Verkefni án kaupanda er merkt Enginn verkkaupi. Fjarveru- og lagerverkefni eru ekki í töflunni.

Til að færa verk í aðra stöðu dregurðu spjaldið yfir í annan dálk. Unnur staðfestir með Verkefni uppfært. Það virkar líka með fingri á spjaldtölvu.

Í fellivalinu efst til hægri velurðu röðun: Búið til, Númer, Nafn eða Verkkaupi. Örvarhnappurinn við hliðina snýr röðinni við. Röðunin gildir um alla dálka. Leitarreiturinn Leita leitar aðeins í verknúmeri, nafni og verkkaupa.

Tímalínan. Punkturinn fremst í línu er í lit stöðunnar og ljósu merkin undir stikunum eru skráðir tímar.
Tímalínan. Punkturinn fremst í línu er í lit stöðunnar og ljósu merkin undir stikunum eru skráðir tímar.

Hvert verkefni er stika frá áætlaðri byrjun til áætlaðra loka. Punkturinn fremst í línunni, við nafn verksins, er í lit stöðunnar. Ljósu merkin undir stikunni sýna daga þar sem tímar voru skráðir á verkið. Færðu músina yfir merki til að sjá dagsetningu, klukkustundir og fjölda skráninga.

Á stikunni efst eru:

  • Leita: leitar í verkefnunum.
  • Staða: velur hvaða stöður sjást. Sjálfgefið sjást verk í flokkunum Í bið og Virkt.
  • Falið frá: felur verk sem lauk fyrir þessa dagsetningu. Sjálfgefið er 30 dögum aftur í tímann.
  • Í dag: færir tímalínuna á daginn í dag.
  • Fjórðungur, Mánuður og Vika: aðdráttur.

Hreinsa allar síur birtist þegar síunum hefur verið breytt. Hann setur þær aftur í sjálfgefið, það er Í bið og Virkt og 30 daga aftur. Til að sjá verk sem er lokið þarftu að velja Lokið-stöður í Staða og færa Falið frá: aftar.

Breyta verktímabili og stöðu á tímalínunni

Kafli: „Breyta verktímabili og stöðu á tímalínunni“

Stjórnandi, Skrifstofumaður og Verkstjóri geta unnið beint á tímalínunni:

  • Dragðu stikuna til að færa verktímabilið, eða dragðu enda hennar til að lengja eða stytta það.
  • Smelltu á stöðupunktinn fremst í línunni og veldu nýja stöðu undir Breyta stöðu. Breytingin vistast strax.
  • Verk sem hafa enga áætlaða byrjun eru auðar línur neðst. Færðu músina yfir línuna, þá birtist + Skrá tímabil. Smelltu eða dragðu í línunni til að gefa verkinu tímabil. Unnur staðfestir með Tímabil vistað.

Starfsmenn geta aðeins skoðað tímalínuna og sjá ekki verk sem hafa engar dagsetningar. Hjá Starfsmanni er ekkert að velja í Staða, svo verk í öllum stöðum sjást. Hjá Verkstjóra og Starfsmanni sýna merkin undir stikunum aðeins þeirra eigin skráningar.

Sé tímalínan tóm stendur Engin verkefni með áætlaðar dagsetningar eða skráningar. Oftast stafar það af síunum, til dæmis að Falið frá: eða Staða útiloki verkin.

Flipinn Saga sýnir það sem hefur gerst í öllum verkefnum fyrirtækisins, nýjast efst. Hverjum degi er skipt eftir verkefnum. Smelltu á verknúmer eða heiti til að opna sögu verkefnisins á verkefnasíðunni.

Saga fyrirtækisins. Atburðir dagsins eru flokkaðir eftir verkefnum.
Saga fyrirtækisins. Atburðir dagsins eru flokkaðir eftir verkefnum.

Flokkarnir undir Sía söguna og Sýna verð í tannhjólinu virka eins og í sögu verkefnis. Áætluð verklok sjást ekki hér. Fyrst birtast nýjustu dagarnir og eldri dagar bætast við þegar þú flettir niður. Þegar allt er komið stendur Upphaf sögunnar neðst.