Fara í efni

Innflutningur úr Excel

Hvernig þú flytur tímaskráningar, akstursferðir og verkefni inn í Unni úr Excel-skrá, til dæmis þegar þú færir þig úr öðru kerfi.

Í StillingarInnflutningur geturðu flutt inn tímaskráningar, akstursferðir og verkefni úr Excel. Þú fyllir út sniðmát, sérð hvaða línur eru í lagi og staðfestir. Stjórnandi og Skrifstofumaður hafa aðgang.

  1. Farðu í StillingarInnflutningur og veldu efst hvað þú vilt flytja inn: Tímaskráning, Akstursferðir eða Verkefni.

    Fyrsta skrefið, Hlaða upp
    Fyrsta skrefið, Hlaða upp
  2. Smelltu á Sækja sniðmát og fylltu út Excel-skrána. Hafðu dálkaheitin í fyrstu línu óbreytt.

  3. Eyddu gráu dæmalínunum í sniðmátinu. Allar línur fyrir neðan dálkaheitin eru lesnar, líka dæmin.

  4. Dragðu skrána í reitinn, eða smelltu á hann og veldu hana, og smelltu á Hlaða upp skrá.

  5. Í Forskoðun sérðu hverja línu. Gildar línur eru merktar Gilt. Línur merktar Ógilt fara ekki inn og ástæðan stendur aftast í línunni.

    Forskoðun tímaskráninga með þremur gildum línum
    Forskoðun tímaskráninga með þremur gildum línum
    Ástæðan aftast í ógildri línu: verkefnið hefur fleiri en einn verkhluta og dálkurinn Verkhluti er tómur
    Ástæðan aftast í ógildri línu: verkefnið hefur fleiri en einn verkhluta og dálkurinn Verkhluti er tómur
  6. Smelltu á Staðfesta innflutning. Talan á hnappnum er fjöldi gildra lína. Viltu laga skrána fyrst smellirðu á Til baka og hleður henni upp aftur.

Í Niðurstaða sérðu hve margar færslur voru búnar til og hve margar mistókust. Ekki er hægt að afturkalla innflutning í heild, svo farðu vel yfir forskoðunina. Færslunum má breyta eða eyða eftir á eins og öðrum skráningum.

Unnur les aðeins fyrsta blaðið í skránni. Vistaðu hana á sama sniði og sniðmátið (.xlsx).

Dálkur Hvað á að vera þar
Dagsetning Dagur skráningarinnar. Skylda.
Byrjun og Lok Klukkan, t.d. 08:00 og 16:00.
Dagvinna og Yfirvinna Fjöldi tíma, t.d. 8 og 1,5.
Símanúmer Símanúmer starfsmannsins eins og það er skráð í Unni. Erlend númer með landsnúmeri, t.d. +48. Skylda.
Verkefnisnúmer Skylda.
Lýsing og Athugasemd Valkvætt.
Rukkunarstaða Rukkað eða Órukkað. Valkvætt.
Verkhluti Heiti verkhlutans. Skylda ef verkefnið hefur fleiri en einn verkhluta.
  • Hver lína hefur annaðhvort Byrjun og Lok eða Dagvinna og Yfirvinna, ekki hvort tveggja.
  • Með Byrjun og Lok telst allur tíminn dagvinna og ekkert matarhlé er dregið frá.
  • Starfsmaðurinn þarf að vera virkur.
  • Ekki er hægt að skrá tíma á lagerverkefnið.
  • Lok má ekki vera á undan Byrjun. Vakt yfir miðnætti þarf því að skipta í tvær línur.
  • Rukkunarstaða má aðeins fylla út fyrir útselt verkefni. Á öðrum verkefnum fær línan villu ef reiturinn er fylltur út. Sé hún tóm verður skráningin Órukkað á útseldu verkefni og Á ekki við á öðrum.
  • Dagsetning má í mesta lagi vera á morgun, Lýsing mest 500 stafir og Athugasemd mest 1000. Lína sem brýtur þetta er merkt Gilt í forskoðun en mistekst þegar þú staðfestir.

Dálkarnir eru Dagsetning, Símanúmer, Verkefnisnúmer, Ökutæki, Upphæð, Lýsing og Athugasemd.

  • Ökutæki er heiti ökutækisins eins og það er skráð undir Akstur.
  • Upphæð er upphæð ferðarinnar án vsk. og verður að vera hærri en 0. Akstursvörur eru ekki notaðar í innflutningi.
  • Verkefnið má aðeins hafa einn verkhluta. Annars fær línan villu, því í akstursskránni er enginn dálkur fyrir verkhluta.
  • Ferð á útseldu verkefni verður Órukkað, á öðrum verkefnum Á ekki við.
  • Starfsmenn með erlent símanúmer finnast ekki í innflutningi akstursferða, svo línur þeirra fá villu. Skráðu ferðir þeirra á venjulegan hátt.

Nánar um akstur í Skrá akstur.

Dálkarnir eru Verkefnisnafn, Lýsing, Verkefnisnúmer, Tegund, Kaupandi, Kt. kaupanda, Áætluð byrjun og Áætluð lok. Aðeins Verkefnisnafn er alltaf skylda.

  • Tegund: Útselt eða Innra. Innra verður rekstrarverkefni (verktýpan Rekstrar). Sé reiturinn tómur verður verkefnið útselt. Tilboðsverk er ekki hægt að flytja inn.
  • Kaupandi: útselt verkefni þarf kaupanda. Ef Kt. kaupanda passar við skráðan verkkaupa er hann notaður (merktur Til í forskoðun). Annars verður til nýr verkkaupi með nafninu í Kaupandi (merktur Nýr).
  • Verkefnisnúmer: sé það tómt fær verkefnið númer sjálfkrafa. Númer sem er þegar til fær villu. Án númers fær línan villu ef verkefni með sama nafni er til, svo sama skrá fer ekki tvisvar inn.
  • Verkefnin fá sjálfgefna stöðu og einn verkhluta, eins og þegar verkefni er stofnað í glugganum Nýtt verkefni.