Unnur appið
Í appinu skrá starfsmenn tíma, akstur, efni og tæki á verkefni, ýmist með stimpilklukku eða handvirkt, og skráningarnar sjást strax á vefnum.
Appið er fyrir þá sem vinna á vettvangi. Þar skráirðu tíma, akstur, efni og tæki á verkefnin, sérð verkefnin og vikuáætlunina þína, og skráningarnar birtast strax á vefnum hjá skrifstofunni.
Ná í appið
Kafli: „Ná í appið“Þú skráir þig inn með símanúmerinu þínu og sama lykilorði og á vefnum. Ef þú ert ekki með aðgang stofnarðu hann í appinu, en fyrst þarf fyrirtækið að hafa skráð þig sem starfsmann með sama símanúmeri. Sjá Stofna aðgang og skrá sig inn í appinu.
Neðsta stikan
Kafli: „Neðsta stikan“| Hnappur | Hvað er þar |
|---|---|
| Heim | Tímaskráningarnar þínar, vika fyrir viku. |
| Verkefni | Verkefnin sem þú hefur aðgang að, með leit og síum. Sjá Verkefni í appinu. |
| + | Ný skráning: tími, akstur, efni eða tæki. Sjá Skrá tíma, akstur, efni og tæki í appinu. |
| Stimpilklukka | Þú byrjar klukkuna þegar vinnan hefst og stöðvar hana í lokin. Sjá Stimpilklukkan. |
| Meira | Skírteini, Stillingar, Fjarvera og Vikuáætlun, og eftir atvikum Breytingarbeiðnir, Verkbeiðnir og GPS. Sjá Meira, stillingar og tilkynningar í appinu. |
Ef fyrirtækið bannar handvirka tímaskráningu er enginn + í stikunni og tímar eru aðeins skráðir með stimpilklukkunni. Það á líka við um Stjórnanda.
Heim
Kafli: „Heim“Síðan heitir Tímar og sýnir aðeins þínar eigin skráningar, eina viku í einu. Nýjasti dagurinn er efst og við hvern dag stendur samtala tímanna.

- Strjúktu til hliðar, eða notaðu örvarnar í vikustikunni, til að fara á milli vikna. Í dag fer aftur á þessa viku.
- Ýttu á dag í vikustikunni til að fara beint á hann í listanum.
- Ýttu á skráningu til að opna hana og breyta henni.
- Dagatalstáknið efst til hægri opnar Mánaðaryfirlit: dagvinna, yfirvinna og samtals fyrir mánuðinn, og tímar hvers dags í dagatali.
- Sé stimpilklukkan í gangi er efst spjald merkt Í gangi með tímanum sem er liðinn.
Hvað hvert hlutverk sér
Kafli: „Hvað hvert hlutverk sér“Starfsmaður sér allt sem lýst er hér að ofan. Verkstjóri og Stjórnandi geta auk þess stofnað verkefni með Nýtt verk efst á Verkefni-síðunni og breytt verkefnum. Stjórnandi sér líka reitina Breytingarbeiðnir og Verkbeiðnir undir Meira, og breytingar hans á eigin tímum taka gildi strax þótt fyrirtækið krefjist samþykkis á breytingum.


Skrifstofumaður kemst ekki inn í appið. Eftir innskráningu birtist aðeins Aðgangur takmarkaður og hann notar vefinn.

Hvað hvert hlutverk má að öðru leyti, og hvar það er stillt, er í Hlutverk og réttindi.