Fara í efni

Samþættingar: aðgangar og heimildir

Hvað er á flipunum Gervigreind, Kerfi og Atvikaskrá, hvernig þú stillir hvað hver tenging má lesa, stofnar aðgang fyrir annað kerfi og sérð hvað tengingarnar hafa gert.

Undir StillingarTengingarSamþættingar eru þrír flipar:

  • Gervigreind: hvaða gervigreindarforrit mega tengjast, tengingar starfsmanna og rofi fyrir aðstoðarmanninn.
  • Kerfi: aðgangar fyrir önnur kerfi, til dæmis mælaborð eða launakerfi, sem sækja gögn um vefþjónustu Unnar.
  • Atvikaskrá: hvert kall sem tengingarnar hafa gert.

Stjórnandi og Skrifstofumaður sjá Samþættingar. Hlutverkin mega ekki það sama:

Stjórnandi Skrifstofumaður
Leyfa gervigreind og velja forrit Já Sér stillinguna
Tengja eigið Claude og breyta eigin tengingu Já Já
Þrengja eða aftengja tengingar annarra Já Nei, sér þær ekki
Stofna og breyta aðgöngum fyrir kerfi Já Sér listann
Kveikja og slökkva á aðstoðarmanninum Já Nei
Atvikaskrá Öll köll Köll kerfa og eigin tenginga

Samþættingar eru ekki virkar hjá öllum fyrirtækjum. Hafðu samband við okkur ef þú vilt nota þær.

Flipinn Gervigreind með stillingunni Leyfa efst til hægri, forritunum og listanum yfir tengingar.
Flipinn Gervigreind með stillingunni Leyfa efst til hægri, forritunum og listanum yfir tengingar.

Leyfa: efst til hægri ræður hvaða forrit mega tengjast:

  • Slökkt: engin gervigreind tengist. Þetta er sjálfgefið.
  • Aðeins samþykkt: aðeins forritin sem kveikt er á undir Samþykkt í sömu valmynd.
  • Öll forrit: hvaða forrit sem er, líka óstaðfest forrit.

Í fyrsta sinn sem kveikt er þarf Stjórnandi að samþykkja skilmálana, sjá Tengja Unni við Claude. Undir valmyndinni stendur hver samþykkti þá og hvenær. Ef Stjórnandi velur Slökkt meðan tengingar eru virkar spyr Unnur fyrst. Tengingarnar hætta þá strax að virka. Þær haldast ef kveikt er á ný, en forritið gæti þurft að tengjast aftur.

Undir Tengingar er ein lína fyrir hverja tengingu: nafn þess sem tengdi, forritið, hve mörg svæði hún les og hvenær hún var síðast notuð. Hægra megin eru köll dagsins og graf yfir síðustu 7 daga. Lokað merkir að tengingin var aftengd eða að ný tenging kom í staðinn, og Rann út að gildistíminn sé liðinn. Í valmyndinni ⋮ eru Breyta aðgangi, Atvikaskrá og Aftengja.

Fyrsta línan er Aðstoðarmaður Unnar, spjallið sem er innbyggt í Unni. Rofinn við hana kveikir og slekkur á aðstoðarmanninum fyrir allt fyrirtækið. Aðeins Stjórnandi getur breytt honum. Þegar slökkt er hverfur bólan hjá öllum notendum fyrirtækisins, og ef einhver reynir samt að nota aðstoðarmanninn fær hann svarið „Stjórnandi fyrirtækisins hefur slökkt á aðstoðarmanninum.“ Samþykki skilmála aðstoðarmannsins helst.

Smelltu á tengingu, eða á ⋮ og Breyta aðgangi. Sami gluggi er notaður fyrir tengingar starfsmanna og aðganga kerfa.

Aðgangur tengingar. Svæðin eru til vinstri og samantektin til hægri.
Aðgangur tengingar. Svæðin eru til vinstri og samantektin til hægri.
  • Forstillingar efst stilla mörg svæði í einu, til dæmis Gervigreind – lestur eða Bókari – lestur. Sérsniðið er valið þegar þú hefur breytt einhverju sjálf(ur).
  • Hvert svæði er Ekkert, Les eða Skrifar. Skrifar er óvirkt því engin skrifaðgerð er í boði enn. Örin til hægri sýnir einstakar heimildir svæðisins, til dæmis Lesa verkefni og Lesa verkhluta.
  • Viðkvæm gögn eru slökkt nema kveikt sé á þeim, og hvert atriði bætir aðeins við svæði sem tengingin les þegar. Gervigreind getur fengið Tengiliði, Laun og Athugasemdir. Fjarvera, Hnit verkstaða, Kennitölur og Bankaupplýsingar eru merkt aldrei hjá gervigreind, en aðgangur kerfis getur fengið þau.
  • Hægra megin er samantekt: hvað tengingin les, hvað hún sér Aldrei, Öll verkefni eða fjöldi valinna verkefna, og gildistíminn. Breyta við verkefnin velur Öll eða Valin, og Breyta við gildistímann setur nýja dagsetningu.
  • Neðst stendur hvenær tengingin var síðast notuð og hve oft í dag.

Vista tekur gildi strax, líka fyrir tengingu sem er í notkun.

Kerfi: aðgangur fyrir annað kerfi

Kafli: „Kerfi: aðgangur fyrir annað kerfi“

Aðgangur fyrir kerfi er fyrir forrit sem sækja gögn án þess að manneskja skrái sig inn, til dæmis Power BI mælaborð, launakerfi eða TólSpor. Kerfið fær Auðkenni og Leynilykil og notar þau á vefþjónustu Unnar.

  1. Á flipanum Kerfi smellirðu á Nýr aðgangur.
  2. Skrifaðu Heiti, til dæmis Power BI mælaborð, og veldu forstillingu undir Byrja á. Lagaðu svæði, viðkvæm gögn, afmörkun og gildistíma ef þarf. Sjálfgefið gildir aðgangurinn ótímabundið.
  3. Smelltu á Stofna aðgang. Glugginn Aðgangur stofnaður sýnir Auðkenni og Leynilykil. Afritaðu bæði inn í kerfið og smelltu á Ég hef vistað lykilinn.
Forstilling Les Viðkvæm gögn
Bókari – lestur Sölureikninga, óreikningsfært, aðfangareikninga, birgja, verkkaupa, vörur og birgðir Engin
Mælaborð Öll svæði sem hægt er að lesa Engin
Launakerfi Tímaskráningar og starfsmenn Laun, Fjarvera og Kennitölur
TólSpor Verkefni. Skráir líka verkefni, skjöl og TólSpor-útleigu Engin
Flipinn Kerfi með aðgöngum, notkun dagsins og Vefþjónustu neðst. Myndin er úr prófunarumhverfi, hjá þér er slóðin https://api.unnurverk.is/api/integration/v2.
Flipinn Kerfi með aðgöngum, notkun dagsins og Vefþjónustu neðst. Myndin er úr prófunarumhverfi, hjá þér er slóðin https://api.unnurverk.is/api/integration/v2.

Í valmyndinni ⋮ við aðgang eru Breyta aðgangi, Atvikaskrá, Nýr leynilykill, Loka aðgangi (eða Opna aðgang) og Eyða. Lokaður aðgangur virkar ekki fyrr en hann er opnaður aftur. Kerfi sem nota aðgang sem er eytt missa hann strax.

Undir Vefþjónusta neðst á flipanum er Slóð vefþjónustunnar, https://api.unnurverk.is/api/integration/v2, og Skjölun opnar lýsingu allra aðgerða (OpenAPI).

Kerfið sækir aðgangslykil með POST https://api.unnurverk.is/api/integration/token, með grant_type=client_credentials, Auðkenni sem client_id og Leynilykli sem client_secret. Lykillinn gildir í 15 mínútur og er sendur í Authorization: Bearer-haus. Villurnar eru útskýrðar í Villukóðar samþættinga.

Atvikaskrá síðustu 7 daga. Samantektir dagsins eru efst og höfnuð köll eru merkt Hafnað.
Atvikaskrá síðustu 7 daga. Samantektir dagsins eru efst og höfnuð köll eru merkt Hafnað.

Efst velurðu Tímabil: Í dag, Síðustu 7 dagar eða Síðustu 30 dagar. Spjöldin Öll köll, Hafnað og Villur sía listann, og Allar tengingar velur eina tengingu. ⋮ og Atvikaskrá við tengingu eða aðgang opnar listann síaðan á hana.

Í Niðurstaða stendur hak og fjöldi raða þegar kallið tókst. Höfnuð köll eru merkt Hafnað, og ef heimild vantaði stendur „Vantar heimild:“ og heiti hennar undir aðgerðinni. Smelltu á línu til að sjá kallið: Tími, Tenging, Notandi, Leið, Aðgerð, Niðurstaða, Svarkóði, Villukóði og Inntak, það er hvað tengingin bað um. Það sem tengingin fékk til baka er aldrei geymt.

Stjórnandi sér hvert kall þegar:

  • tengingin er hans eigin,
  • kallið kemur frá aðgangi kerfis,
  • kallinu var hafnað eða það mistókst,
  • tengingin las viðkvæm gögn.

Önnur lestrarköll úr tengingum annarra starfsmanna eru tekin saman fyrir hvern dag, til dæmis „Las 12× · Tímaskráningar“ með Samantekt dagsins undir. Skrifstofumaður sér köll kerfa og eigin tenginga. Köll eru geymd í 90 daga.