Verkdagbók
Sameiginleg dagbók á hverju verkefni: hvernig þú skrifar í hana á vefnum og í appinu, breytir og eyðir færslum og hver sér þær.
Í verkdagbókina skráir teymið hvað var gert á verkstað, hvað var ákveðið og hvað þarf að fylgja eftir. Hver færsla er texti, og myndir mega fylgja. Allir sem sjá verkefnið geta skrifað í dagbókina, bæði á vefnum og í appinu.
Dagbókin skráir enga tíma og fer ekki á reikning. Tímar eru skráðir sér, sjá Skrá tíma og breyta skráningum.
Hvar er verkdagbókin?
Kafli: „Hvar er verkdagbókin?“- Á vefnum: opnaðu verkefnið. Spjaldið Verkdagbók er neðst í vinstri dálki á Yfirlit-flipanum og sýnir þrjár nýjustu færslurnar. Sjá allar færslur opnar dagbókina alla á eigin síðu.
- Í appinu: opnaðu verkefnið og skrunaðu niður í Dagbók neðst á síðunni. Þar eru allar færslurnar.
Vefurinn og appið nota sömu dagbókina. Færsla sem er skrifuð í appinu sést á vefnum næst þegar verkefnið er opnað, og öfugt.
Skrifa í dagbókina
Kafli: „Skrifa í dagbókina“- Skrifaðu færsluna í reitinn undir Ný færsla. Hún má vera allt að 2000 stafir.
- Ef myndir eiga að fylgja smellirðu á Bæta við myndum. Mest 15 myndir á færslu, hver mest 10 MB.
- Smelltu á Skrá í dagbók.

Færslan fær daginn og tímann þegar hún er skráð. Ekki er hægt að velja annan dag, svo best er að skrifa sama dag og hlutirnir gerast. Vefurinn sýnir aðeins dagsetninguna, en appið sýnir líka klukkan hvað færslan var skráð.
Í appinu ýtirðu á Skrifaðu dagbókarfærslu…, skrifar færsluna, bætir við myndum með myndavélartákninu ef þú vilt og ýtir á Skrá í dagbók.

Myndir úr dagbókinni birtast líka í spjaldinu Myndir á verkefninu, með nafni þess sem skrifaði færsluna.
Breyta og eyða færslu
Kafli: „Breyta og eyða færslu“Aðeins sá sem skrifaði færsluna getur breytt henni. Höfundurinn, Stjórnandi og Skrifstofumaður geta eytt henni, en Verkstjóri getur ekki eytt færslum annarra.
- Á vefnum eru Breyta og Eyða efst til hægri í færslunni.
- Í appinu eru Breyta færslu og Eyða færslu í punktunum þremur við færsluna.
Á vefnum geturðu í breytingaham lagað textann og bætt við myndum. Smelltu á mynd til að fjarlægja hana, og aftur til að hætta við. Smelltu svo á Vista. Eftir breytingu stendur (breytt) við færsluna.

Hver sér dagbókina?
Kafli: „Hver sér dagbókina?“Allir sem hafa aðgang að verkefninu sjá allar færslur í dagbók þess:
| Hlutverk | Sér dagbókina á |
|---|---|
| Stjórnandi og Skrifstofumaður | öllum verkefnum |
| Verkstjóri og Starfsmaður | öllum verkefnum sem eru ekki merkt Krefst aðgangs, og verkefnum sem þeir eru mannaðir á. Staða verkefnisins skiptir ekki máli. |
Krefst aðgangs er stillt þegar verkefni er stofnað eða því breytt, sjá Stofna verkefni.
Verkkaupinn sér dagbókina á verkkaupavefnum þegar kveikt er á verkkaupavefnum fyrir hann, verkefnið er merkt Sýnilegt verkkaupa og hakað er við Dagbók undir Hvað sést á sýnilegu verkefni. Þá stendur Verkkaupi sér þessa dagbók efst í dagbókinni, bæði á vefnum og í appinu. Verkkaupavefurinn er aðeins í Öllum pakkanum og er ekki virkur hjá öllum fyrirtækjum, sjá Verkkaupavefurinn.
Dagbókarfærslur birtast líka í Saga-flipanum á verkefninu, sem Stjórnandi og Skrifstofumaður sjá, og þær geta verið hluti af Skýrslu verkefnis (texti, höfundur og dagsetning, ekki myndir).