Fara í efni

Verkstaðir og kort

Verkstaðurinn er valinn í reitnum Staðsetning á verkefni, með heimilisfangi eða á korti, og svæðið í kringum hann segir til um hvort stimplun telst á verkstað.

Verkstaður er staðurinn þar sem verkið er unnið. Þú velur hann í reitnum Staðsetning þegar þú stofnar verkefni eða breytir því, og hann birtist svo með korti á verkefnasíðunni.

Stjórnandi, Skrifstofumaður og Verkstjóri geta valið verkstað á verkefni. Aðeins Stjórnandi og Skrifstofumaður geta breytt verkstaðnum sjálfum, sjá Breyta verkstað.

  1. Opnaðu glugga verkefnisins. Fyrir nýtt verkefni smellirðu á + á Verkefni. Fyrir verkefni sem er til opnarðu það og velur Breyta í þriggja punkta valmyndinni.

  2. Smelltu á reitinn Staðsetning. Listinn sem opnast býður upp á:

    • heimilisfang verkkaupans efst, merkt Heimilisfang kaupanda, ef verkkaupi með heimilisfang er valinn,
    • Sjá skráðar staðsetningar, sem sýnir verkstaði sem fyrirtækið hefur skráð áður,
    • Velja á korti neðst, fyrir staði sem hafa ekkert heimilisfang.
    Staðsetning í Nýtt verkefni. Heimilisfang verkkaupans, Hafnarfjarðarhafnar, er efst í listanum.
    Staðsetning í Nýtt verkefni. Heimilisfang verkkaupans, Hafnarfjarðarhafnar, er efst í listanum.
  3. Þú getur líka skrifað í leitarreitinn Sláðu inn heimilisfang. Skráðir verkstaðir sem passa við textann birtast efst undir Staðsetning, og eftir þrjá stafi bætast við heimilisföng úr heimilisfangaleit. Gættu að bæjarnafninu, því sama gatan er oft til í fleiri en einum bæ.

    Leitað að Strandgötu 3. Skráði verkstaðurinn Strandgata 33 passar við textann og er efst. Síðan koma heimilisföng í ólíkum bæjum.
    Leitað að Strandgötu 3. Skráði verkstaðurinn Strandgata 33 passar við textann og er efst. Síðan koma heimilisföng í ólíkum bæjum.
  4. Veldu staðinn. Þegar heimilisfang er valið birtist kort með verkstaðnum og nafn hans fer í Nafn staðsetningar, þar sem þú getur breytt því. Veljirðu heimilisfang verkkaupans og fyrirtækið á þegar verkstað með sömu götu og húsnúmeri notar Unnur hann. Bærinn er ekki borinn saman, svo athugaðu hvaða staður varð fyrir valinu.

    Nýr verkstaður á Óseyrarbraut 4. Svæði verkstaðar er opnað og er 60 m.
    Nýr verkstaður á Óseyrarbraut 4. Svæði verkstaðar er opnað og er 60 m.
  5. Smelltu á Búa til verkefni eða Vista. Nýr verkstaður verður til þegar verkefnið er vistað og birtist eftir það undir Sjá skráðar staðsetningar.

Krossinn í reitnum Staðsetning tekur staðinn af verkefninu. Verkstaðurinn sjálfur er áfram til og má velja hann á önnur verkefni.

Fyrir dælustöð, höfn, veg eða lóð sem hefur ekkert heimilisfang setur þú verkstaðinn á kortið.

  1. Skrifaðu nafn staðarins í leitarreitinn í Staðsetning, til dæmis Kaldársel – dælustöð, og smelltu á Velja á korti. Það sem þú skrifaðir verður nafn staðarins.
  2. Kort af landinu opnast. Smelltu þar sem verkið er, og kortið færist nær staðnum.
  3. Smelltu aftur á kortið eða dragðu húsið til að færa verkstaðinn á réttan stað.
  4. Athugaðu að Nafn staðsetningar sé útfyllt. Hafirðu ekki skrifað nafn sækir Unnur það út frá staðnum á kortinu þegar hægt er.
Staður valinn á korti. Staðurinn hefur ekkert húsnúmer og svæðið er því 300 m.
Staður valinn á korti. Staðurinn hefur ekkert húsnúmer og svæðið er því 300 m.

Hringurinn á kortinu er svæði verkstaðarins. Stimpli starfsmaður sig inn eða út innan hans telst það á verkstað. Svæðið skiptir aðeins máli ef fyrirtækið skráir staðsetningu við stimplun, sjá Staðsetning við inn- og útstimplun.

Nýr verkstaður fær þetta svæði:

  • Heimilisfang með húsnúmeri fær 60 m.
  • Staður á kortinu sem hefur ekkert húsnúmer fær 300 m. Það á oftast við um staði sem eru valdir á korti.
  • Verkstaður sem verður til án staðsetningar á korti, til dæmis í appinu, fær 60 m.
  • Eldri verkstaðir sem hafa aldrei fengið svæði teljast 300 m.

Þegar nýr staður er kominn á kortið í verkefnaglugganum birtist Svæði verkstaðar fyrir neðan kortið, með stærð svæðisins. Sú tala er svæðið sem vistast. Smelltu á Svæði verkstaðar til að opna sleðann. Svæði verkstaðar sem er þegar til breytirðu í glugganum Breyta verkstaðsetningu, sjá Breyta verkstað, og þar er sleðinn alltaf opinn. Dragðu sleðann eða skrifaðu fjölda metra, frá 25 m upp í 20.000 m.

Stimplanir eru alltaf bornar saman við svæðið eins og það er núna. Ef þú stækkar eða minnkar svæðið breytist því líka hvort eldri stimplanir á verkefnunum teljast á verkstað.

Mörg verkefni geta notað sama verkstaðinn. Breytirðu nafni hans, staðsetningu eða svæði breytist það á öllum verkefnunum sem nota hann.

  1. Opnaðu verkefni sem notar verkstaðinn og veldu Breyta í þriggja punkta valmyndinni.

  2. Smelltu á blýantinn við nafnið í reitnum Staðsetning.

    Valinn verkstaður í Breyta verkefni. Blýanturinn er við nafnið.
    Valinn verkstaður í Breyta verkefni. Blýanturinn er við nafnið.
  3. Glugginn Breyta verkstaðsetningu opnast. Þar eru reitirnir Nafn og Lýsing, Leita að heimilisfangi, kortið með Svæði verkstaðar og heimilisfangið.

  4. Færðu verkstaðinn með því að smella á kortið eða draga húsið. Veljirðu heimilisfang í Leita að heimilisfangi færist staðurinn þangað og heimilisfangið, gata og húsnúmer, kemur í stað nafnsins í Nafn. Breyttu nafninu aftur áður en þú vistar ef þú vilt halda því. Svæðið helst óbreytt.

  5. Smelltu á Vista.

Glugginn Breyta verkstaðsetningu
Glugginn Breyta verkstaðsetningu

Breytingin á verkstaðnum vistast strax þegar þú smellir á Vista í þessum glugga, líka þótt þú hættir svo við breytingar á verkefninu.

Á flipanum Yfirlit á verkefnasíðunni er spjaldið Staðsetning með heimilisfangi verkstaðarins og korti þar sem svæðið er teiknað. Spjaldið sést öllum sem hafa aðgang að verkefninu.

Spjaldið Staðsetning á verkefnasíðu, með svæði verkstaðarins
Spjaldið Staðsetning á verkefnasíðu, með svæði verkstaðarins

Á verkefnasíðunni í appinu er hlutinn Verkstaður með nafni, heimilisfangi, lýsingu og korti. Stjórnandi og Verkstjóri fá þar þriggja punkta valmynd:

  • Breyta stað er í boði ef verkstaður er á verkefninu. Þar breytirðu nafni og lýsingu verkstaðarins. Í appinu getur aðeins Stjórnandi vistað þá breytingu, þótt Verkstjóri sjái valið.
  • Skipta um stað er í boði ef fyrirtækið á skráða verkstaði. Þar seturðu annan skráðan verkstað á verkefnið.

Þegar verkefni er stofnað í appinu er hægt að velja skráðan verkstað eða Búa til nýja staðsetningu. Staður sem er búinn til í appinu fær aðeins nafn og lýsingu, ekkert heimilisfang og enga staðsetningu á korti. Til að hægt sé að bera stimplanir saman við hann opnarðu verkefnið á vefnum og setur staðinn á kortið með blýantinum. Appið sýnir ekki svæði verkstaðarins.