Efni og vörur
Á Efni-síðunni eru allir reikningar frá birgjum og vörurnar sem hafa komið á þeim. Hér sérðu hvað er hvar á síðunni og hvernig þú flettir upp verði á vöru.
Á þessari síðu
Undir Efni eru aðfangareikningarnir, þ.e. reikningar frá birgjum fyrir efni og annað sem fyrirtækið kaupir. Þar setur þú efnið á verkefni svo það rati á sölureikning, og þar flettirðu upp hvað vara kostaði síðast.
Síðan er opin Stjórnanda og Skrifstofumanni, í báðum áskriftarleiðum. Verkstjóri og Starfsmaður sjá hana ekki.
Aðfangareikningar
Kafli: „Aðfangareikningar“Flipinn Aðfangareikningar opnast fyrst.

Efst eru fjögur yfirlitskort. Þrjú þau fyrstu miðast við Tímabil fyrir ofan töfluna:
- Óúthlutaðir reikningar: reikningar í stöðunni Í bið eða Áætlað. Smelltu á kortið til að sýna aðeins þá, og aftur til að sýna alla.
- Heildarfjöldi reikninga: allir reikningar á tímabilinu. Smelltu á kortið til að sýna þá alla.
- Heildarútgjöld með afslætti án VSK: samtala reikninganna án VSK.
- Stærstu birgjar í ár: fjórir birgjar með hæstu upphæð án VSK.
Kreditreikningar dragast frá í báðum upphæðakortunum.
Þegar þú opnar síðuna sýnir taflan aðeins óúthlutaða reikninga. Í fyrsta sinn sem þú opnar hana er Tímabil frá fyrsta degi síðasta mánaðar til loka þessa mánaðar. Vafrinn man tímabilið eftir það og það færist ekki fram af sjálfu sér þegar nýr mánuður byrjar. Breyttu Tímabil ef reikningar sem þú leitar að sjást ekki.
Í töflunni sérðu meðal annars Vegna (tilvísunina sem fylgdi reikningnum frá birgi), Verkefni, Birgir, Tegund (Debit eða Kredit), Staða og Reikningsst., sem segir hvort efnið er komið á sölureikning. Öll verð í töflunni eru án VSK. Í Allur pakkinn opnar nafn birgisins birgjasíðuna. Smelltu á röð til að opna reikninginn sjálfan með öllum línum hans. Niðurhalstáknið hægra megin sækir töfluna í Excel.
Stöður
Kafli: „Stöður“| Staða | Hvað hún þýðir |
|---|---|
| Í bið | Ekkert verkefni er komið á reikninginn. |
| Áætlað | Unnur stakk upp á verkefni og þú þarft að staðfesta það. |
| Úthlutað | Reikningurinn er kominn á verkefni. |
| Rekstur | Reikningurinn er rekstrarkostnaður. |
Hvernig þú setur reikning á verkefni eða í rekstur er í Úthluta aðfangareikningum. Hvernig Unnur stingur upp á verkefni er í Áætlaðir efnisreikningar.
Hvaðan reikningarnir koma
Kafli: „Hvaðan reikningarnir koma“Lítið tákn hægra megin í hverri röð, rétt á undan punktunum þremur, segir hvaðan reikningurinn kom. Haltu músinni yfir því til að sjá skýringuna.
- Rafrænir reikningar berast frá birgjum á hverri nóttu þegar rafræn reikningsskil eru tengd. Hringörin efst á síðunni (Samstilla aðföng) sækir nýja reikninga strax. Rafræn móttaka fylgir aðeins Allur pakkinn. Sjá Rafrænir reikningar.
- Handskráðir reikningar og reikningar lesnir af PDF eru þeir sem þú skráir sjálf/ur með + efst á síðunni.
- Reikningar úr bókhaldskerfi koma úr bókhaldstengingunni, t.d. útgjöld sem þú sækir úr Payday eða DK.
Hvernig þú skráir reikning sjálf/ur eða sækir hann úr bókhaldskerfinu er í Skrá aðfangareikning.
Reikningurinn sjálfur
Kafli: „Reikningurinn sjálfur“Þegar þú smellir á röð opnast reikningurinn. Efst eru birgirinn, Verkefni fyrir allan reikning og dagsetningarnar. Þar við hliðina eru reitir sem fylgdu reikningnum frá birginum, t.d. Vegna, Greiðsluskilmálar og Tilvísun. Reitur sést aðeins ef hann er útfylltur.

Samtölurnar eru í tveimur dálkum, Fyrir afslátt og Eftir afslátt. Undir Eftir afslátt stendur „Samræmist reikningshaus“ ef summa línanna passar við upphæðina á reikningnum frá birginum. Annars stendur þar „Mismunur“ og upphæðin sem munar.
Á rafrænum reikningum og reikningum lesnum af PDF opnar skjalstáknið efst til hægri, Skoða upprunalegt skjal, frumritið í nýjum flipa. Táknið er ekki á handskráðum reikningum.
Vöruleit
Kafli: „Vöruleit“Á flipanum Vöruleit er ein röð fyrir hvert vörunúmer sem hefur komið á aðfangareikning á völdu Tímabil. Hver röð sýnir nýjustu línuna með því vörunúmeri: birgi, lýsingu, einingu, einingarverð fyrir afslátt og dagsetningu reikningsins. Línur án vörunúmers, línur á kreditreikningum, línur án verðs eða magns og línur á földum reikningum eru ekki með.

Í fyrsta sinn er Tímabil síðustu 12 mánuðir. Vafrinn man það eftir það, svo breyttu því ef nýjar vörur vantar. Þú getur leitað og síað eftir Birgir. Smelltu á vöru til að opna vörusíðuna.
Vörusíðan
Kafli: „Vörusíðan“Vörusíðan sýnir hvað varan hefur kostað í hvert sinn sem hún kom á reikning.

- Upplýsingar um vöru: vörunúmer, eining, Nýjasta einingarverð (án vsk.) (verð fyrir afslátt), birgir og lýsing.
- Reikningssaga: allar línur með vörunúmerinu, með magni, einingarverði fyrir og eftir afslátt og hvort línan er komin á sölureikning. Smelltu á línu til að opna reikninginn.
- Skoða í lager efst til hægri birtist ef lagervara með sama vörunúmeri er til. Sjá Lagervörur.