Fara í efni

Verkhlutar og verkþættir

Verkhlutar skipta verkefni í hluta, til dæmis töflusmíði og raflagnir, svo þú sjáir hvað hver hluti kostar. Hér sérðu hvernig þú bætir þeim við, fjarlægir þá og skoðar.

Tímar, akstur, lager og tæki eru skráð á verkhluta, svo þú sérð hvað hver hluti verksins hefur kostað.

  • Skráningar: þegar tími, akstur, lager eða tæki er skráð á verkið þarf að velja verkhluta. Hafi verkefnið aðeins einn verkhluta velur Unnur hann sjálf.
  • Spjaldið Verkþættir á verkefnasíðunni: upphæð á hverjum verkhluta, sjá neðar.
  • Sölureikningar: með stillingunni Sýna verkhluta á reikningum eru línur reiknings flokkaðar eftir verkhlutum.
  • Skýrsla verkefnis: hægt er að hópa skráningar eftir verkhluta, sjá Skýrsla verkefnis.
Ný tímaskráning. Velja þarf verkhluta í reitnum Verkhlutur.
Ný tímaskráning. Velja þarf verkhluta í reitnum Verkhlutur.

Veljirðu engan verkhluta þegar verkefnið er stofnað býr Unnur til einn sem heitir eftir verkefninu með „-Almennt“ aftast. Sjá Stofna verkefni.

Bæta verkhluta við verkefni

Kafli: „Bæta verkhluta við verkefni“

Stjórnandi, Skrifstofumaður og Verkstjóri geta bætt verkhlutum við verkefni.

  1. Opnaðu verkefnið og veldu Breyta í þriggja punkta valmyndinni efst til hægri.

  2. Smelltu á Verkhlutar verkefnis til að opna hlutann. Verkhlutarnir sem eru þegar á verkinu sjást efst.

  3. Fyrir neðan reitinn Leita eða slá inn nýjan verkhluta… eru heiti sem hafa verið notuð áður í fyrirtækinu. Smelltu á heitið sem á við, eða sláðu inn í reitinn til að þrengja listann.

  4. Sé heitið ekki til birtist + Búa til verkhluta með heitinu sem þú slóst inn. Smelltu á það.

    Fimm verkhlutar á verkinu. Heitið Útilýsing er ekki til, svo Unnur býðst til að búa það til.
    Fimm verkhlutar á verkinu. Heitið Útilýsing er ekki til, svo Unnur býðst til að búa það til.
  5. Smelltu á Vista.

Heiti verkhluta eru sameiginleg fyrir allt fyrirtækið. Þegar þú býrð til nýtt heiti verður það til um leið og þú smellir á + Búa til verkhluta, og það kemur upp sem tillaga á öðrum verkefnum líka. Verkhlutinn fer hins vegar ekki á verkefnið fyrr en þú vistar.

Fjarlægja verkhluta af verkefni

Kafli: „Fjarlægja verkhluta af verkefni“

Opnaðu Breyta, smelltu á × við verkhlutann undir Verkhlutar verkefnis og vistaðu.

Á Yfirliti verkefnasíðunnar er spjaldið Verkþættir með einu spjaldi fyrir hvern verkhluta og samanlögðu virði þess sem hefur verið skráð á hann: tíma, akstri, efni og tækjum. Spjaldið birtist aðeins ef verkið hefur fleiri en einn verkhluta, og aðeins Stjórnandi og Skrifstofumaður sjá það.

Verkþættir á verkefni með fimm verkhluta.
Verkþættir á verkefni með fimm verkhluta.

Smelltu á verkþátt til að opna síðu hans. Þar eru sömu tölur og efst á verkefnasíðunni, en aðeins fyrir þennan verkhluta, og flipinn Skráningar sýnir aðeins skráningar á hann.

Síða verkþáttarins Raflagnir.
Síða verkþáttarins Raflagnir.

Efni af aðfangareikningum sem er skráð á verkefnið en engan verkhluta telst ekki með á neinum verkþætti.