Innskráning og lykilorð
Svona skráirðu þig inn á vefinn, stofnar aðgang, endurstillir gleymt lykilorð og skiptir á milli fyrirtækja.
Þú skráir þig inn í Unni með símanúmerinu þínu og lykilorði, og sami aðgangur gildir á vefnum og í appinu. Hér er lýst hvernig þetta fer fram á vefnum.
Skrá sig inn
Kafli: „Skrá sig inn“-
Farðu á app.unnurverk.is.
-
Sláðu inn símanúmerið þitt í reitinn Símanúmer og lykilorðið í Lykilorð. Erlent númer slærðu inn með landsnúmeri, til dæmis +48.
-
Smelltu á Skrá inn.

Innskráningin á vefnum
Stjórnendur og skrifstofumenn lenda á mælaborðinu, verkstjórar og starfsmenn á verkefnalistanum. Ef villan „Ógilt notendanafn eða lykilorð“ birtist er annaðhvort númerið eða lykilorðið rangt.
Þú skráir þig út með Útskráning neðst í valmyndinni.
Gleymt lykilorð
Kafli: „Gleymt lykilorð“Lykilorðið er endurstillt með kóða sem kemur í SMS, aldrei í tölvupósti. Sama leið er notuð ef þú vilt skipta um lykilorð þótt þú munir það gamla: skráðu þig út og smelltu á Gleymt lykilorð?. Hvorki vefurinn né appið hafa sérstaka síðu til að breyta lykilorði.
-
Smelltu á Gleymt lykilorð? fyrir neðan Skrá inn.
-
Sláðu inn símanúmerið þitt og smelltu á Senda kóða.

Fyrsta skrefið af þremur í Endurstilla lykilorð -
Sláðu inn sex stafa kóðann úr SMS-inu og smelltu á Staðfesta.
-
Sláðu nýja lykilorðið inn í Nýtt lykilorð og aftur í Staðfesta lykilorð. Það þarf að vera minnst 6 stafir. Smelltu á Endurstilla lykilorð.
-
Innskráningarsíðan opnast. Skráðu þig inn með nýja lykilorðinu.
Stofna aðgang
Kafli: „Stofna aðgang“Aðgangurinn nýtist ekki fyrr en fyrirtækið hefur skráð þig sem starfsmann með sama símanúmeri. Þangað til opnast síðan Enginn aðgangur að fyrirtæki þegar þú skráir þig inn. Starfsmenn stofna aðganginn yfirleitt í appinu, sjá Stofna aðgang í appinu. Á vefnum er það svona:
-
Smelltu á Skráðu þig hér neðst á innskráningarsíðunni.
-
Sláðu inn símanúmerið þitt og smelltu á Senda kóða.

Nýskráning notanda á vefnum -
Sláðu inn sex stafa kóðann úr SMS-inu og smelltu á Staðfesta.
-
Veldu lykilorð, minnst 6 stafir með stórum og litlum bókstaf og tölu. Fornafn og Eftirnafn má skilja eftir auð. Smelltu á Skrá sig.
-
„Nýskráning tókst!“ birtist og innskráningarsíðan opnast. Skráðu þig inn.
Aðgangurinn tengist hverju fyrirtæki sem hefur skráð þig með þessu símanúmeri, með hlutverkinu sem það gaf þér. Skrái fyrirtæki þig síðar tengist aðgangurinn því sjálfkrafa, og þú þarft ekki að stofna annan. Nýja fyrirtækið bætist við og þú velur það neðst í valmyndinni þegar þú skráir þig næst inn.
Villan „Nýskráning mistókst. Vinsamlegast reyndu aftur.“ birtist meðal annars ef aðgangur er þegar til á númerinu. Reyndu þá að skrá þig inn, eða notaðu Gleymt lykilorð? ef þú manst ekki lykilorðið.
Enginn aðgangur að fyrirtæki
Kafli: „Enginn aðgangur að fyrirtæki“Ef síðan Enginn aðgangur að fyrirtæki opnast eftir innskráningu er aðgangurinn þinn ekki tengdur neinu fyrirtæki. Yfirleitt hefur fyrirtækið ekki skráð þig enn eða skráð annað símanúmer en þú notaðir, eða þú hefur verið óvirkjaður í starfsmannalistanum. Biddu stjórnanda fyrirtækisins að skrá þig, laga símanúmerið þitt eða endurvirkja þig, sjá Óvirkja starfsmann sem hættir. Skráðu þig svo út með Útskráning og inn aftur.

Sama síða birtist ef þú opnar síðu sem hlutverkið þitt hefur ekki aðgang að, til dæmis tengil á Stillingar þegar þú ert Starfsmaður. Þá nægir að fara til baka í vafranum.
Skipta á milli fyrirtækja
Kafli: „Skipta á milli fyrirtækja“Ef þú ert í fleiri en einu fyrirtæki velurðu fyrirtæki neðst í valmyndinni. Sértu aðeins í einu stendur þar „Fyrirtæki:“ og nafn þess. Sé valmyndin felld saman sést valið ekki fyrr en þú opnar hana aftur.
-
Smelltu á nafn fyrirtækisins neðst í valmyndinni.
-
Veldu fyrirtækið. Ef listinn er langur geturðu leitað í Leita að fyrirtæki…. Síðan hleðst þá aftur í fyrirtækinu sem þú valdir.

Fyrirtækjavalið neðst í valmyndinni. Stjarnan merkir fyrirtækið sem opnast við innskráningu.
Til að tiltekið fyrirtæki opnist alltaf þegar þú skráir þig inn færirðu bendilinn yfir það í listanum og smellir á stjörnuna sem birtist. Valið gildir á öllum tækjum og líka í appinu. Smelltu aftur á stjörnuna til að taka það af. Án stjörnu opnar vefurinn fyrirtækið sem þú valdir síðast í sama vafra.
Í appinu er sama val í MeiraStillingar undir Núverandi fyrirtæki, með rofanum Opna þetta fyrirtæki við innskráningu. Sjá Meira, stillingar og tilkynningar í appinu.