Gæðakerfi iðnmeistara
Settu upp gæðakerfið, taktu það í notkun, flokkaðu verkin í verkskrá og sæktu gögnin sem skoðunarstofan biður um í skjalaskoðun eða virkniskoðun.
Gæðakerfið í Unni er gæðastjórnunarkerfi iðnmeistara samkvæmt 4.10.2. gr. byggingarreglugerðar og leiðbeiningum HMS 9.001-3 og 9.004. Hjá fyrirtæki með gæðakerfi er kerfastika lengst til vinstri með tveimur kerfum, Verkbókhald og Gæðakerfi. Í Gæðakerfi heldurðu utan um það sem gildir fyrir allt fyrirtækið: meistara, gæðahandbók, verkskrá, gátlista og frávik. Þaðan sækirðu líka skoðunargögnin sem þú sendir skoðunarstofu (t.d. Frumherja). Úttektir á einstökum verkum eru gerðar á verkefninu sjálfu, sjá Úttektir á verkefni.
Valmyndin í Gæðakerfi er Yfirlit, Verkefni (verkskráin), Úttektir, Frávik, Gátlistar, Gæðahandbók og Meistarar, og fyrir neðan þau Skjöl og Póstur. Skjöl og Póstur eru sömu síður og í Verkbókhaldi. Sjálfsmat er hnappur á Yfirlit.
Talan við Gæðakerfi á kerfastikunni er það sem bíður þín: úttektir sem bíða undirritunar eða svara, og frávik sem bíða staðfestingar. Farðu með músina yfir töluna til að sjá hvað hún telur. Hún er rauð ef eitthvað er komið fram yfir frest. Talan við Frávik í valmyndinni er fjöldi frávika sem bíða staðfestingar.
Gæðakerfið sjá Stjórnandi og Skrifstofumaður. Sumt getur aðeins meistari gert, til dæmis að taka kerfið í notkun. Aðrir starfsmenn sjá ekki Gæðakerfi á kerfastikunni, og opni þeir slóðina stendur þar Aðeins stjórnendur með hnappnum Til baka í Verkefni. Meistari sem er hvorki Stjórnandi né Skrifstofumaður sér ekki Gæðakerfi, en fær Gæðahandbók í valmyndina í Verkbókhaldi, sjá Gæðahandbókin.
Uppsetning
Kafli: „Uppsetning“Uppsetningin er eitt skref. Stjórnandi eða meistari setur kerfið upp.
- Opnaðu GæðakerfiYfirlit. Þar er uppsetningarspjald.
- Veldu fagið undir Fag. Þú mátt velja fleiri en eitt.
- Undir Meistari er sá sem er skráður inn. Skrifaðu löggildingarnúmer hans hjá HMS í reitinn. Sé meistarinn annar starfsmaður smellirðu á Annar? og velur hann. Þar velurðu líka Gæðastjóri, sem er sjálfgefið sá sami og meistarinn.
- Smelltu á Setja upp.

Við uppsetninguna setur Unnur upp gátlista fagsins og almennu gátlistana (Upphaf verks, Verklok og Stöðuúttekt við iðnmeistaraskipti). Í Skjöl › Fyrirtækið verða til undirmöppurnar Réttindi › Löggilding og meistarabréf og Endurmenntun, og Gæðahandbók › Bréf og tilmæli HMS og Skoðunarskýrslur. Þá eru tilbúin drög að gæðahandbók. Næsta skref er að meistari lesi drögin og taki kerfið í notkun.
Fullt nafn og kennitala meistarans og gæðastjórans eru lesin af starfsmanninum, svo skráðu þau eins og í þjóðskrá á starfsmannasíðunni. Gæðastjórinn er tengiliður skoðunarstofunnar og þarf líka gilt símanúmer og netfang.
Gæðahandbókin
Kafli: „Gæðahandbókin“Unnur skrifar gæðahandbókina upp úr skráningum fyrirtækisins. Meistari les drögin og tekur kerfið í notkun einu sinni með Taka gæðakerfið í notkun, og þá verða þau útgáfa A. Eftir það gefur Unnur út nýjar útgáfur sjálf þegar eitthvað í handbókinni breytist, og meistararnir staðfesta að þeir hafi lesið hana. Sjá Gæðahandbókin.
Yfirlitið
Kafli: „Yfirlitið“Yfirlit svarar því hvort fyrirtækið er tilbúið fyrir skoðun og hvað á að gera næst.

Rofinn Skjalaskoðun | Virkniskoðun velur hvora skoðunina síðan metur. Skjalaskoðun metur gæðakerfið og skjölin. Virkniskoðun metur hvernig kerfið er notað á verkunum sjálfum, og það á við um verk sem eru stofnuð eða í vinnslu eftir að gæðakerfið var sett upp.
- Tilbúið eða Ekki tilbúið er niðurstaðan, og við hana stendur hve mörg atriði stöðva hana.
- Líklegt mat til hægri er það versta sem skoðunarstofa gæti gefið: Fall, Frávik eða Athugasemd. Farðu með músina yfir það til að sjá fjöldann í hverjum flokki (1. flokkur er athugasemd, 2. flokkur frávik og 3. flokkur fall).
- Stikan hefur einn bút fyrir hvert atriði HMS 9.004 í skoðuninni, og til hægri stendur hve mörg eru í lagi, til dæmis 13/20 í lagi.
Næstu skref er listi yfir það sem þarf að gera. Efst, án númers, er það sem bíður þín. Línurnar sjást aðeins þegar eitthvað bíður, og hver þeirra opnar það sem er á bak við töluna:
- Lesa gæðahandbók: þú ert meistari og átt eftir að lesa handbókina, eða nýja útgáfu þar sem verklag hefur breyst. Opnar Gæðahandbók.
- Bíða undirritunar: úttektir sem bíða þess að þú undirritir þær, og úttektir í vinnslu hjá þér.
- Bíða staðfestingar: listinn á Frávik, síaður á úrbætt frávik.
- Frestur liðinn: úttektir og frávik sem eru komin fram yfir frest.
- Opin frávik: listinn á Frávik, síaður á opin frávik.
- Óflokkuð verk: verkskráin, síuð á óflokkuð verk (nema það standi þegar sem skref).
Síðan koma númeruð skref, ein lína fyrir hverja aðgerð. Eftir að gæðakerfið hefur verið tekið í notkun er fyrsta skrefið með hnapp og hin með hlekk til hægri, til dæmis Flokka, Hlaða upp, Skipta út eða Laga. Fyrir þann tíma eru öll skrefin hlekkir, og meistari sér Taka í notkun við handbókina. Hlekkurinn fer þangað sem atriðið er lagað. Lagi ein aðgerð fleiri atriði stendur til dæmis Lagar 5 atriði undir henni. Varði skrefið einstök verk eru þau talin upp á eftir Vantar á, og smellur á verknúmer opnar verkið. Unnur sér um merkir það sem aðeins við getum lagað, til dæmis staðfestingu á hýsingu. i við skref sýnir alla skýringuna. Undir Athuga líka er það sem er ekki í lagi en stöðvar ekki Tilbúið.
Fyrir neðan eru atriðin í fjórum spjöldum eftir köflum HMS 9.004: Fyrirmæli, Skjalavistun, Verkskráning og Eftirlit. Atriði sem eru ekki í lagi eru talin upp með stöðunni Athuga eða Vantar. i við atriði sýnir skýringuna, hvar atriðið er geymt, staðlaðan texta HMS og líklegt mat. Atriðin sem eru í lagi eru tekin saman neðst í spjaldinu, til dæmis 4 í lagi, og smellur sýnir þau.
Meistarar og hýsing
Kafli: „Meistarar og hýsing“GæðakerfiMeistarar sýnir meistarana: starfsmann, löggildingarnúmer og fag. Bæta við meistara bætir við línu. Meistari sem er fjarlægður verður óvirkur en eldri skráningar hans haldast. Aðeins Stjórnandi eða meistari getur vistað breytingar. Hafi gæðakerfið verið tekið í notkun fær nýr meistari tilkynningu í appið og þarf að lesa gæðahandbókina, sjá Lestur meistara.

Unnur ber meistarana saman við skrá HMS yfir löggilta iðnmeistara. Parað er eftir nafni og fæðingardegi úr kennitölu starfsmannsins. Undir hverjum meistara stendur:
- Í skrá HMS: löggilding í faginu fannst. Gæðakerfi hjá HMS bætist við þegar HMS hefur skráð gæðakerfi meistarans.
- Ekki í skrá HMS: engin löggilding í faginu fannst. Athugaðu að nafnið sé fullt og eins og í þjóðskrá og að kennitalan sé rétt. Skoðunarstofan ber nafnið saman við sömu skrá.
- Kennitölu vantar: skráðu kennitölu á starfsmanninn.
Starfsmenn sem eru í skrá HMS en ekki skráðir meistarar birtast undir Úr skrá HMS. Smelltu á nafn til að bæta því við listann. Sama viðvörun birtist í gæðahandbókinni, og í viðauka C eru löggilding, meistarabréf og sveinsbréf hvers starfsmanns talin upp eftir opinberum skrám HMS og sýslumanna. Skrárnar eru sóttar einu sinni á sólarhring.
Með fleiri en einn meistara þarf löggildingarskjal hvers og eins að bera nafn hans eða löggildingarnúmer, annaðhvort í skráarheitinu eða í heiti undirmöppu.
Yfirlit⋮Hýsing sýnir hvar gögnin eru geymd og hvernig þau eru afrituð. Sá texti fer í kafla 4.4 í handbókinni. Unnur skráir hann og staðfestir. Standi Hýsing óstaðfest í valmyndinni er ekki hægt að sækja gögn fyrir skjalaskoðun; hafðu þá samband við okkur.
Verkskrá og flokkun verka
Kafli: „Verkskrá og flokkun verka“Verkefni (verkskráin) sýnir öll verkefni af tegundinni Útselt og Tilboð frá 1. janúar árið áður en gæðakerfið var sett upp, og byggingarleyfisskyld verk fimm ár aftur í tímann. Kennitala verkkaupa kemur hvergi fram. Spjöldin efst sía listann eftir flokki og sýna fjöldann í hverjum. Í verkskrá sýnir öll verkin. Meðan einhver verk eru óflokkuð opnast verkskráin á Óflokkuð.

Hvert verk þarf að vera flokkað eftir leyfisskyldu: Byggingarleyfisskylt, Byggingarheimild, Tilkynningarskylt eða Ekki leyfisskylt. Meðan einhver verk eru óflokkuð er ekki hægt að sækja skoðunargögn.
- Til að flokka eitt verk smellirðu á flokkinn í dálkinum Leyfi og velur flokk. Flokkist verkið Byggingarleyfisskylt verður meistarinn ábyrgur fyrir því (ef aðeins einn meistari er skráður), og úttektirnar Upphaf verks og Verklok verða til á verkinu.
- Til að flokka mörg í einu hakarðu við þau og velur Merkja: Ekki leyfisskyld eða Merkja: Byggingarleyfisskyld í stikunni neðst. Fjöldaflokkun býr ekki til úttektir. Opnaðu Gæðakerfi-spjaldið á verkinu og veldu Búa til úttektir ef þú vilt fá þær.
- Úr verkskrá tekur verk út sem eru ekki unnin fyrir verkkaupa, til dæmis prófunarverk eða innri verk. Ástæðan er skylda. Byggingarleyfisskyld verk er ekki hægt að taka út. Spjaldið Úr verkskrá sýnir verkin sem hafa verið tekin út, og þaðan seturðu þau aftur inn.

Dálkurinn Ábyrgð sýnir ábyrgan meistara og byggingarstjóra. Tímabil sýnir upphaf og lok, og „áætl.“ við áætluð lok. Eftirlit sýnir undirritaðar úttektir af heildarfjölda, opin frávik og hvort ábyrgðaryfirlýsing er komin. Verk sem lauk áður en gæðakerfið hófst er merkt Eldra verk. Smelltu á línu til að opna úttektir verksins.
Verkskrá (PDF) efst til hægri sækir verkskrána eins og hún fer til skoðunarstofu.
Gátlistar
Kafli: „Gátlistar“Gátlistar sýnir gátlistana sem eru í notkun: fag, áfanga, fjölda atriða, útgáfu og hver samþykkti. Hak í Leyfisskyld merkir að úttekt eftir gátlistanum verður sjálfkrafa til á byggingarleyfisskyldum verkum.

+ Gátlisti býður upp á tvennt:
- Úr safni: tilbúnir gátlistar Unnar, byggðir á HMS 9.032. Bæta við setur gátlista upp og Í notkun merkir þá sem eru þegar uppsettir. Ný útgáfa birtist þegar Unnur hefur uppfært gátlista í safninu. Við hvern gátlista stendur hvaða áfangaúttektum byggingarstjóra hann tengist, til dæmis Áfangar p, o, u. Farðu með músina yfir til að sjá heiti áfanganna.
- Auður: nýr gátlisti frá grunni.

Smelltu á gátlista til að breyta honum. Breytingar vistast jafnóðum.
- Heiti, Fag, Áfangi (Upphaf verks, Á verktíma eða Verklok) og Lýsing.
- Fylgir leyfisskyldum: úttekt verður sjálfkrafa til á byggingarleyfisskyldum verkum.
- Meistari undirritar: aðeins meistari getur undirritað úttekt eftir gátlistanum.
- Atriðin eru í köflum. + Atriði og + Kafli bæta við. Við hvert atriði geturðu skráð Tilvísun (t.d. grein í reglugerð) og Eining. Sé eining skráð þarf að slá inn mæligildi í úttektinni. Mynd gerir mynd alltaf að skilyrði, og Mynd við frávik aðeins þegar svarað er Frávik.
- Autt eyðublað sækir gátlistann óútfylltan sem PDF.

Hver vistun hækkar útgáfunúmerið. Vistar meistari breytinguna telst útgáfan samþykkt af honum, annars stendur Ósamþykkt þar til meistari samþykkir. Aðeins meistari getur breytt Fylgir leyfisskyldum og Meistari undirritar. Úttektir sem eru þegar til halda sínu eigin afriti af gátlistanum, svo breyting hefur ekki áhrif á þær.
Frávik
Kafli: „Frávik“Frávik sýnir öll frávik fyrirtækisins. Frávik á verki er merkt verknúmeri og númeri, til dæmis GÆ001 · F-4, og frávik á fyrirtækið með Fyrirtækið · K-6. Við frávik úr úttekt stendur það sem fannst, og undir því númer úttektarinnar og atriðið í gátlistanum. Sjálfgefið sjást opin og úrbætt frávik. Spjöldin efst sía eftir stöðu: Öll, Opin, Úrbætt og Staðfest.

Frávik á fyrirtækið snerta gæðakerfið sjálft, til dæmis athugasemd frá skoðunarstofu eða eitthvað sem kom í ljós við eigin yfirferð. Smelltu á + Frávik. Undir Verkefni er Fyrirtækið valið, en þú getur líka valið verk. Skrifaðu Heiti og Lýsing, veldu Uppruni (Eigin skoðun eða Skoðunarstofa) og eftir atvikum Alvarleiki, HMS-atriði, Ábyrgur og Frestur. Smelltu á Skrá frávik.
Frávik fer í gegnum þrjú stig: Opið, Úrbætt og Staðfest. Smelltu á frávik til að opna það.
- Skrá úrbót: skrifaðu hvað var gert undir Úrbót og, ef þú vilt, orsökina undir Orsök. Myndir má setja með. Frávikið verður Úrbætt.
- Staðfesta: Stjórnandi eða meistari skoðar úrbótina og skrifar Staðfesting. Frávikið verður Staðfest.

Sá sem má staðfesta sér rofann Staðfesta strax þegar hann skráir úrbót og getur þá gert hvort tveggja í einu. Aðrir sjá lás og Meistari staðfestir þegar úrbótin er komin. Frávik sem er komið fram yfir frest án þess að vera staðfest sýnir Frestur liðinn í stað stöðunnar.

Breyta í glugganum opnar heiti, lýsingu, alvarleika, orsök, ábyrgðarmann og frest. Stjórnandi og Skrifstofumaður geta líka valið Setja á verkáætlun þegar ábyrgur og frestur eru skráðir. Úrbótin fer þá á verkáætlun starfsmannsins og hann sér hana í appinu.
Sjálfsmat
Kafli: „Sjálfsmat“Einu sinni á ári hið minnsta er gæðakerfið yfirfarið (innri úttekt, verklagsregla V-12). Smelltu á Vista sjálfsmat á Yfirlit. Glugginn sýnir stöðu atriðanna og hvað verður til þegar þú vistar: PDF í Gæðahandbók › Skoðunarskýrslur og frávik á fyrirtækið.
- Leyfi hjá HMS er valkvætt. Skráðu hve mörg byggingarleyfi meistarinn er skráður á hjá HMS. Fyrir aftan reitinn stendur hve mörg byggingarleyfisskyld verk eru í verkskránni. Séu leyfin hjá HMS fleiri verður til frávik.
- Athugasemd er valkvæð.
Smelltu á Vista. Á hnappnum stendur hve mörg frávik verða skráð, til dæmis Vista · 8 frávik. Unnur skráir eitt frávik á fyrirtækið fyrir hvert atriði sem skoðunarstofa gæti gert athugasemd við. Sé sjálfsmatið vistað aftur verða engin frávik tvískráð.

Sækja skoðunargögn
Kafli: „Sækja skoðunargögn“Skoðunarstofan skráir sig aldrei inn í Unni. Hún fær gögnin sem viðhengi við vefbeiðni, og hvert viðhengi má mest vera 12 MB og öll samtals 24 MB. Hnappurinn efst á Yfirlit býr til zip-skrá sem stenst þau mörk. Meðan eitthvað stöðvar pakkann heitir hann Skoðunargögn og er með lás. Þegar allt er tilbúið heitir hann Sækja skoðunargögn. Hann fylgir rofanum Skjalaskoðun | Virkniskoðun.
- Smelltu á Skoðunargögn eða Sækja skoðunargögn efst á Yfirlit. Í Verkefni geturðu líka hakað við verk og valið Skoðunargögn í stikunni neðst.
- Veldu Skjalaskoðun eða Virkniskoðun. Í virkniskoðun velurðu líka byggingarleyfisskyldu verkin sem fylgja undir Verk, mest 20.
- Undir Ekki tilbúið er það sem stöðvar pakkann, sömu línur og í Næstu skref. Undir Athugið er það sem stöðvar ekki pakkann en skoðunarstofa gæti gert athugasemd við.
- Sé merki skráð á fyrirtækið hakarðu við staðfestinguna um að merkið í haus skjalanna sé rétt.
- Smelltu á Sækja. Hafi eitthvað í gæðahandbókinni breyst stendur Unnur gefur fyrst út nýja útgáfu handbókar fyrir ofan stærðina. Unnur gefur þá út nýja útgáfu og sækir svo gögnin. Bæti nýja útgáfan við atriði undir Athugið stoppar Unnur svo þú getir lesið það. Smelltu þá aftur á Sækja.

Stikan sýnir stærðina á móti 12 MB. Smelltu á fjölda skráa til að sjá hvað fer í pakkann. Skrár úr Skjölum eru með haki og þú getur tekið þær út. Skjöl sem Unnur býr til fara alltaf með. Fari gögnin yfir 12 MB skiptast þau í tvo hluta sem eru sóttir hvor í sínu lagi. Fari þau yfir 24 MB er þeim hafnað, og þá sérðu stærstu skrárnar svo þú vitir hverjar á að taka út.

Hvað fer í pakkann
Kafli: „Hvað fer í pakkann“Fyrir skjalaskoðun fara engin verkgögn og engar myndir af verkstað í pakkann:
| Skrá | Innihald |
|---|---|
| 0 Forsíða skoðunargagna | Tegund skoðunar og fag, eigandi kerfisins, meistarar með kennitölu og löggildingarnúmeri, tengiliður og efnisyfirlit |
| 1 Gæðahandbók | Gildandi útgáfa. Hafi eitthvað breyst gefur Unnur fyrst út nýja. Annars handbók sem þú hlóðst upp sjálf/ur |
| 2 Tilvísunarskrá 9.004 | Hvert atriðanna 26: kafli í handbók, staður í Unni og skjal í pakkanum, ásamt möppuskipan |
| 3 Verkskrá | Verkskráin, eftir leyfisflokkum |
| 4 Gátlistar | Allir gátlistar í notkun, auðir, með útgáfu og samþykkt |
| 5 Skrár og eyðublöð | Auð eyðublöð E-01 til E-17 |
| 6 Sýnishorn | Dæmi um útfyllta úttekt, frávik og skrár, merkt SÝNISHORN |
| 7 Starfsmenn og hlutverk | Starfsmenn og hlutverk þeirra eins og þau eru daginn sem gögnin eru sótt: viðauki C, eða starfsmannalisti úr Unni sé eigin handbók notuð |
| Réttindi/ | Skrárnar í möppunni Réttindi |
| Verklagsreglur/ | Verklagsreglur sem eru vistaðar með útgáfumerki |
Virkniskoðun bætir við möppu fyrir hvert valið verk með teikningaskrá, úttektaskrá, fráviksskrá og skrá yfir ábyrgðaryfirlýsingar, undirrituðum úttektum og skránum í möppunum Úttektir og Ábyrgðaryfirlýsingar á verkinu.
Það sem stöðvar pakkann
Kafli: „Það sem stöðvar pakkann“Unnur býr ekki til skoðunargögn fyrr en þetta er í lagi:
- Gæðakerfið hefur verið tekið í notkun í Unni, eða eigin handbók hlaðið upp og hún er eina skráin efst í möppunni Gæðahandbók. (Eftir að kerfið er tekið í notkun stöðva aðrar skrár efst í möppunni ekki pakkann; þær koma undir Athugið.)
- Engin verk í verkskrá eru óflokkuð.
- Hvert byggingarleyfisskylt verk hefur ábyrgan meistara, leyfisnúmer, byggingarstjóra og skrá í möppunni Ábyrgðaryfirlýsingar.
- Minnst einn meistari er virkur, með fullt nafn og kennitölu á starfsmanninum og löggildingarnúmer.
- Í Réttindi › Löggilding og meistarabréf er löggildingarskjal hvers meistara og undirrituð heimild fyrirtækisins til hans (eyðublað E-17, með orðinu „heimild“ í skráarheitinu). E-17 undirrita framkvæmdastjóri og meistari. Auða eyðublaðið er sótt með Sækja eyðublað E-17 á flipanum Meistarar.
- Engin skrá í Réttindi lítur út fyrir að vera prófun, til dæmis skrá sem er minni en 5 kB eða heitir „prufa“ eða „sýnishorn“.
- Gæðastjóri er skráður, með fullt nafn, símanúmer og netfang.
- Fyrir skjalaskoðun: lýsing á hýsingu og afritun er staðfest.
- Fyrir virkniskoðun: ekkert valið verk er merkt lokið með óundirritaða Verklok-úttekt eða frávik sem eru ekki staðfest.
Undir Athugið eru atriði sem stöðva ekki pakkann en skoðunarstofa gæti gert athugasemd við, til dæmis verk án fastanúmers, gátlista sem lítur út fyrir að vera prófun, tvær skrár með sama heiti í sömu möppu, eða að enginn virkur meistari hafi lesið gæðahandbókina eftir síðustu breytingu á verklagi. Merki fyrirtækisins er í haus allra skjalanna og sést neðst í glugganum. Athugaðu að það sé rétt merki áður en þú hakar við staðfestinguna.
Í skoðunarbeiðninni til skoðunarstofunnar þarf nafn umsækjanda að vera það sama og í umsókninni á Mínum síðum HMS.
Hver getur hvað
Kafli: „Hver getur hvað“| Aðgerð | Hver |
|---|---|
| Sjá Gæðakerfi, verkskrá, gátlista og skoðunargögn | Stjórnandi og Skrifstofumaður |
| Setja upp og skrá meistara | Stjórnandi eða meistari |
| Taka gæðakerfið í notkun (einu sinni) | Meistari |
| Staðfesta lestur gæðahandbókar | Meistari |
| Breyta því hvort gátlisti fylgir leyfisskyldum verkum eða meistari undirritar | Meistari |
| Staðfesta frávik | Stjórnandi eða meistari |
| Setja úrbót á verkáætlun | Stjórnandi og Skrifstofumaður |