Fara í efni

Verkhópar

Verkhópur er hópur starfsmanna sem vinna oft saman. Með honum setur þú allan hópinn á verkefni eða á verk í Vikuskipulagi í einu vali.

Verkhópur er nafn og listi af starfsmönnum, til dæmis vinnuflokkur sem fer saman á verkstað. Þú notar hann til að manna verkefni og setja fólk á verk í Vikuskipulagi. Aðeins Stjórnandi og Skrifstofumaður stofna verkhópa og nota þá.

Verkhópur hefur engin áhrif á verð tímanna. Verðið ræðst af taxtahópi starfsmannsins, sjá Taxtar og taxtahópar. Starfsmaður getur verið í mörgum verkhópum en aðeins einum taxtahópi.

Flipinn Verkhópar. Jakub og Marta eru bæði í Hópi A og Smíðateymi.
Flipinn Verkhópar. Jakub og Marta eru bæði í Hópi A og Smíðateymi.
  1. Farðu í StarfsmennVerkhópar og smelltu á + efst til hægri.

  2. Skrifaðu Nafn hóps.

  3. Veldu starfsmenn undir Veldu starfsmenn í hópinn.

  4. Smelltu á Búa til verkhóp.

    Nýr verkhópur með þremur starfsmönnum
    Nýr verkhópur með þremur starfsmönnum

Óvirkir starfsmenn og skrifstofumenn eru ekki í boði þegar valið er í verkhóp.

Breyta eða eyða verkhópi

Kafli: „Breyta eða eyða verkhópi“

Smelltu á hópinn í listanum, á + aftast í myndaröðinni eða á ⋮ › Breyta til að opna Breyta verkhópi. Bættu við fólki eða taktu út með × og smelltu á Vista verkhóp.

Til að eyða hópi smellirðu á ⋮ við hann, velur Eyða og staðfestir. Það breytir hvorki mönnun verkefna né úthlutunum í Vikuskipulagi.

Manna verkefni með verkhópi

Kafli: „Manna verkefni með verkhópi“

Í valinu fyrir mönnun verkefnis eru verkhóparnir efst undir Verkhópar. Hakirðu við hóp fara allir í honum á verkefnið, og takirðu hakið af fara þeir allir af því. Hakið er við hópinn þegar allir í honum eru á verkefninu. Hvar valið er og hvernig það vistast er lýst á verkefnasíðunni.

Þjónustuhópur hakaður í Mönnun. Allir þrír í hópnum eru komnir á verkefnið.
Þjónustuhópur hakaður í Mönnun. Allir þrír í hópnum eru komnir á verkefnið.

Krefjist verkefnið aðgangs sjá aðeins þeir sem eru í mönnuninni verkið, auk Stjórnanda og Skrifstofumanns. Allir í hópnum fá því aðgang þegar þú hakar við hann.

Verkhópar í Vikuskipulagi

Kafli: „Verkhópar í Vikuskipulagi“

Í dagatalinu í TímarVikuskipulag eru starfsmennirnir í hliðarlistanum Starfsmenn flokkaðir eftir verkhópum. Þeir sem eru ekki í neinum hópi eru neðst undir Án verkhóps, og starfsmaður í fleiri en einum hópi sést undir hverjum þeirra.

  1. Smelltu á nafn verkhópsins í hliðarlistanum. Allir í hópnum lýsast upp í dagatalinu.

  2. Dragðu yfir tímann í dagatalinu. Allur hópurinn er þá forvalinn í nýju úthlutuninni.

    Þjónustuhópur valinn í Vikuskipulagi. Úthlutanir Ara, Elínar og Hrafnhildar standa upp úr.
    Þjónustuhópur valinn í Vikuskipulagi. Úthlutanir Ara, Elínar og Hrafnhildar standa upp úr.

Í glugganum Bæta við úthlutun eru verkhóparnir líka efst í reitnum Starfsmenn. Að velja hóp þar velur alla í honum. Smelltu á Hreinsa í hliðarlistanum til að hætta að lýsa hópinn upp.

Meira um úthlutanir er í Vikuskipulag.