Sölureikningar
Tímar sem vantar á reikning og reikningar sem er búið að senda.
Af hverju vantar tíma á sölureikning?
Kafli: „Af hverju vantar tíma á sölureikning?“Athugaðu Sía eftir tímabili efst á nýjum reikningi. Tímar utan tímabilsins koma ekki með, og borði segir þá að skráningar séu á verkefninu fyrir eða eftir valið tímabil.
Tími sem er kominn á annan reikning, líka drög, kemur ekki aftur. Tími af stimpilklukku sem stöðvaðist sjálfkrafa kemur ekki á reikning fyrr en lokatíminn hefur verið lagaður.
Tíma sem voru skráðir eftir að drögin voru vistuð sækirðu með Sækja skráningar efst á drögunum.
Nánar í Sölureikningar og Línur á sölureikningi.
Get ég breytt reikningi sem er búið að senda?
Kafli: „Get ég breytt reikningi sem er búið að senda?“Sendum reikningi er ekki hægt að breyta. Opnaðu hann á SölureikningarSendir og smelltu á Endurkalla. Hann verður þá aftur að drögum sem þú lagar og sendir aftur. Endurkalla virkar aðeins ef bókhaldskerfi er tengt undir StillingarTengingarBókhaldskerfi.
Í Payday, DK Plus, Reglu, Konto og Uniconta stendur gamli reikningurinn eftir, og þar þarftu að eyða honum eða bakfæra hann. Í Catacloud eyðir Unnur honum sjálf.
Nánar í Reikningur var sendur. Hvað nú?