Verkkaupavefurinn
Á verkkaupavefnum fylgist verkkaupinn með verkefnunum sem þú vinnur fyrir hann. Hér sérðu hvernig þú opnar hann, velur hvað sést og gefur verkkaupanum aðgang.
Verkkaupavefurinn er sérstakur vefur fyrir verkkaupann þinn, á verkkaupi.unnurverk.is. Þar sér hann stöðu verkefnanna sem þú vinnur fyrir hann og það sem þú velur að sýna, til dæmis dagbók, reikninga og tímaskráningar. Hann sér líka tilboðin þín til hans og verkbeiðnirnar sem hann hefur sent þér.
Kveikja á verkkaupavefnum
Kafli: „Kveikja á verkkaupavefnum“Kveikt er á vefnum fyrir hvern verkkaupa fyrir sig. Verkkaupinn þarf að vera með gilda kennitölu. Annars er rofinn óvirkur og undir honum stendur „Kennitölu vantar“. Skráðu þá kennitöluna á verkkaupann, sjá Breyta verkkaupa.
- Farðu í Verkkaupar, opnaðu verkkaupann og veldu flipann Verkkaupavefur.
- Smelltu á rofann Kveikt á verkkaupavef. Glugginn Kveikja á verkkaupavef opnast.
- Hakaðu við Ný verkefni sjálfgefið sýnileg ef öll ný verkefni verkkaupans eiga að sjást á vefnum. Hakaðu við Merkja opin verkefni sýnileg ef verkefni hans sem eru virk eða í bið eiga að sjást strax.
- Veldu undir Hvað sést á sýnilegu verkefni hvað verkkaupinn sér. Sjá hér fyrir neðan.
- Smelltu á Kveikja.

Að kveikja á vefnum gefur engum aðgang einn og sér. Verkkaupinn kemst inn með gestahlekk eða innskráningu, sjá Aðgangur verkkaupans.
Hvað verkkaupinn sér
Kafli: „Hvað verkkaupinn sér“Eftir að kveikt er bætast spjöldin Gestahlekkir og Hvað sér verkkaupinn við á flipanum. Hvert hak vistast um leið og þú smellir.

Nafn, verknúmer, staða og áætluð byrjun og lok verkefnis sjást alltaf. Annað sést aðeins ef hakað er við það:
- Dagbók: allar færslur í verkdagbók verkefnisins, með höfundi, dagsetningu og myndum. Þá stendur „Verkkaupi sér þessa dagbók“ í dagbókinni á vefnum og í appinu. Sjá Verkdagbók.
- Verkhlutar: heiti verkhlutanna. Spjaldið birtist aðeins ef verkhlutarnir eru tveir eða fleiri.
- Útgefnir reikningar: sendir sölureikningar á verkefninu, ekki drög. Verkkaupinn sér dagsetningu, gjalddaga og upphæð með virðisaukaskatti og getur opnað reikninginn sem PDF. Sé reikningurinn ekki með númeri úr bókhaldskerfi stendur tilvísun reikningsins í stað númers.
- Lýsing: lýsing verkefnisins.
- Á staðnum núna: hverjir eru með stimpilklukkuna í gangi á verkefninu, frá hvaða tíma og á hvaða verkhluta.
- Tímaskráningar: dagsetning, starfsmaður, lýsing, verkhluti og klukkustundir. Fjarvistir sjást ekki.
- Akstur, Lager og Tækjaleiga: hvað var skráð, hver skráði það og magnið.
- Efnisreikningar: línur af aðfangareikningum sem eru staðfestir á verkefnið, með nafni birgis og magni.
Verð og taxtar á skráningum sjást aldrei. Í glugganum og við upplýsingatáknið á spjaldinu stendur að upphæðir sjáist aldrei. Það á við um skráningarnar, því upphæðir útgefinna reikninga og tilboða sjást.
Velja hvaða verkefni sjást
Kafli: „Velja hvaða verkefni sjást“Verkkaupinn sér aðeins verkefni sem eru merkt sýnileg. Á verkefnasíðunni er hakið Sýnilegt verkkaupa neðst í Upplýsingar. Það birtist aðeins þegar kveikt er á vefnum fyrir verkkaupa verkefnisins, og aðeins Stjórnandi og Skrifstofumaður sjá það.

Í verkefnalistanum er augntákn við nafn verkefna sem verkkaupinn sér.
Nýtt verkefni fær hakið eftir stillingunni Ný verkefni sjálfgefið sýnileg hjá verkkaupanum. Það á líka við um verkefni sem verða til úr tilboði eða verkbeiðni. Ef skipt er um verkkaupa á verkefni fer hakið eftir stillingu nýja verkkaupans.
Á Aðgangur-spjaldinu geturðu breytt Ný verkefni sjálfgefið sýnileg og smellt á Merkja opin verkefni sýnileg hvenær sem er.
Sjá verkefnið eins og verkkaupinn
Kafli: „Sjá verkefnið eins og verkkaupinn“Opnaðu verkefnið og veldu ⋮Sjá sem verkkaupi. Glugginn sýnir verkefnið nákvæmlega eins og það lítur út á verkkaupavefnum. Valið birtist aðeins þegar verkefnið er sýnilegt verkkaupanum.

Aðgangur verkkaupans
Kafli: „Aðgangur verkkaupans“Verkkaupinn kemst inn á vefinn á tvo vegu.
Gestahlekkur
Kafli: „Gestahlekkur“Gestahlekkur er persónulegur hlekkur sem þú sendir í tölvupósti. Sá sem fær hann þarf hvorki notandanafn né lykilorð og sér aðeins verkefni þessa verkkaupa hjá þér.
- Smelltu á Senda á Gestahlekkir-spjaldinu.
- Netfang verkkaupans er sett í Netfang. Breyttu því ef hlekkurinn á að fara til annars. Settu aðeins eitt netfang.
- Hlekkurinn gildir í 180 daga ef Gildistími (dagar) er tómur. Þú mátt setja allt að 730 daga.
- Smelltu á Senda gestahlekk.

Viðtakandinn fær tölvupóst með hnappnum Opna verkkaupavef. Í listanum sérðu hvort hlekkurinn er Virkur, Útrunninn eða Afturkallaður, hvenær hann var síðast opnaður og hvað hann gildir lengi. Við virkan hlekk eru Afrita hlekk, ef þú vilt senda hann sjálf/ur, og ⋮ með þessu:
- Senda aftur: sendir sama hlekkinn aftur. Gildistíminn lengist ekki.
- Afturkalla: eftir staðfestingu hættir hlekkurinn strax að virka.
Innskráning
Kafli: „Innskráning“Fyrirtæki sem kaupa reglulega af verktökum geta fengið eigin innskráningu á verkkaupavefinn. Unnur stofnar aðganginn fyrir fyrirtækið og tengir hann við kennitölu þess. Stjórnandi verkkaupans býður síðan sínu fólki inn undir Notendur á verkkaupavefnum. Þú getur ekki boðið notendum verkkaupans inn sjálf/ur. Verkkaupinn eða þú getið óskað eftir innskráningu í spjallinu eða á [email protected].
Með innskráningu sér verkkaupinn verkefnin frá öllum verktökum sem nota Unni og hafa kveikt á verkkaupavefnum fyrir hann.
Merki efst á Aðgangur-spjaldinu sýnir hvort verkkaupinn er með innskráningu:
- Með aðgang: verkkaupinn er með innskráningu og kveikt er á vefnum.
- Án aðgangs: verkkaupinn er með innskráningu en slökkt er á vefnum.
- Aðgangi lokað: Unnur hefur lokað innskráningu verkkaupans.
Ekkert merki þýðir að verkkaupinn er ekki með innskráningu og kemst aðeins inn með gestahlekk.
Svona lítur vefurinn út hjá verkkaupanum
Kafli: „Svona lítur vefurinn út hjá verkkaupanum“Í valmynd verkkaupavefsins eru þessir liðir:

- Verkefni: sýnileg verkefni með verknúmeri, verktaka, stöðu, áætluðum tíma og dagsetningu nýjustu dagbókarfærslu ef verkkaupinn sér dagbókina. Smellt er á verkefni til að opna það.
- Tilboð: tilboð sem þú hefur sent verkkaupanum, hvort sem verkefnin eru sýnileg eða ekki. Talan við Tilboð er fjöldi tilboða sem bíða svars. Smellur á tilboð opnar svarsíðu þess, sjá Svar verkkaupa og samþykkt tilboð.
- Verkbeiðnir: beiðnir verkkaupans til þín og staða þeirra. Með + opnar hann verkbeiðnaformið þitt. Gestur sér + aðeins ef virkur verkbeiðnahlekkur er á verkkaupanum, sjá Hlekkir og form fyrir verkbeiðnir.
- Notendur: þar býður stjórnandi verkkaupans sínu fólki inn. Liðurinn sést aðeins hjá verkkaupum með innskráningu.
Slökkva á vefnum
Kafli: „Slökkva á vefnum“Smelltu á rofann Kveikt á verkkaupavef. Slökkt er strax, án staðfestingar, og verkkaupinn sér ekkert frá þér á vefnum. Tilboð halda sínum eigin svarhlekk. Gestahlekkir sem eru ekki útrunnir eða afturkallaðir virka aftur ef þú kveikir á ný.
Vefurinn lokast líka ef fyrirtækið er ekki lengur með Allan pakkann.