Línur á sölureikningi
Hvaðan línurnar á sölureikningnum koma, hvernig þú breytir þeim, setur afslátt eða álagningu á heilan bálk, bætir við skráningum og tekur línur af.
Hver lína á sölureikningi á sér skráningu að baki: tímaskráningu, akstursferð, efni eða tækjaskráningu á verkefninu. Ekki er hægt að slá inn lausa línu með frjálsum texta og upphæð. Þetta gildir um útselt verk. Tilboðsreikningar eru úr línum í Tilboðsrukkun, sjá Rukka tilboðsverk. Hvernig reikningur er búinn til sérðu í Sölureikningar.
Bálkarnir
Kafli: „Bálkarnir“Línurnar raðast í bálka. Við hvern bálk er samtala hans án vsk.
-
Tímar: flokkaðir eftir starfsmanni, með klukkustundum og upphæð hvers og eins.
-
Akstur: ein lína á ferð. Lýsingin er ökutækið og akstursvaran. Sjá Akstur á sölureikning.
-
Tæki: tækjaskráningar og verkfæragjald. Bálkurinn sést í Allur pakkinn, og annars aðeins ef línur eru í honum. Sjá Tæki og verðlagning.
Sé kveikt á Reikna verkfæragjald sjálfkrafa í stillingum sölureikninga er verkfæragjaldið efsta línan í Tæki, reiknað sem hlutfall af tímunum. Á reikningnum sjálfum er þá rofinn Reikna verkfæragjald undir Valkostir, með reitnum Hlutfall af tímum (%), og þar kveikirðu eða slekkur á gjaldinu fyrir þennan reikning.
-
Efni: vörur af lager undir Lagervörur, og línur af aðfangareikningum sem hafa verið settar á verkefnið, ein fyrirsögn á hvern reikning (reikningsnúmer og birgir). Línur af kreditreikningi birgis dragast frá.
Sé kveikt á Sýna verkhluta á reikningum í StillingarVirkniSölureikningar endurtakast bálkarnir undir hverjum verkhluta, og línur án verkhluta fara undir Annað. Stillingin fylgir aðeins Allur pakkinn.

Efnislínur af áætluðum aðfangareikningi birtast ekki fyrr en úthlutunin hefur verið staðfest. Þá segir borði á nýjum reikningi hve margir slíkir reikningar bíða, með hlekknum Skoða. Sjá Áætlaðir efnisreikningar.
Breyta línu
Kafli: „Breyta línu“Smelltu í reit á línunni til að breyta honum. Breytingin á aðeins við línuna á reikningnum. Skráningin sjálf á verkefninu breytist ekki.
| Bálkur | Það sem má breyta |
|---|---|
| Tímar | Lýsing, Tímar, Taxti (án vsk.), Afsláttur |
| Akstur | Magn, Taxti (án vsk.) (á drögum Upphæð (án vsk.)), Afsláttur. Lýsingunni er ekki hægt að breyta. |
| Tæki | Lýsing, Magn, Einingaverð (án vsk.), Afsláttur |
| Efni | Lýsing, Magn, Einingaverð (án vsk.), Afsláttur kúnna |
Í Efni er líka dálkurinn Minn Afsláttur, sem er afslátturinn sem þið fenguð hjá birginum. Honum er ekki hægt að breyta og hann sést ekki á sendum reikningi. Línur af aðfangareikningum koma inn á listaverði birgisins, þ.e. verðinu áður en sá afsláttur dregst frá. Sé afsláttur skráður á línu aðfangareikningsins eftir á hækkar einingarverðið á sölureikningnum því, sjá Skrá afslátt á línu.
Allar línur á sölureikningi bera 24% VSK og ekkert VSK-val er á línu.

Í haus Tímar-bálksins eru þrír hnappar til viðbótar:
- Laga lýsingar: gervigreind lagar stafsetningu í lýsingum tímaskráninganna og þýðir þær á íslensku. Breytingarnar birtast í reitunum til yfirferðar og ekkert vistast fyrr en þú vistar reikninginn.
- Sjá aths.: athugasemdir sem fylgdu tímaskráningunum. Talan segir hve margar þær eru.
- +: ný tímaskráning beint á reikninginn, sjá Bæta við skráningu.
Taxtar
Kafli: „Taxtar“Taxtinn á tímalínu er sértaxti verkkaupans ef hann er til, annars útseldur taxti starfsmannsins. Merki við nafn starfsmannsins (Starfsmaður, Taxtahópur eða Allir) segir að sértaxti verkkaupans gildi og hvernig hann er skráður. Hvernig taxtar eru settir upp sérðu í Taxtar og taxtahópar.
Viltu annan taxta á alla tíma starfsmanns á reikningnum slærðu hann í Setja taxta við nafnið. Undir taxta sem hefur verið breytt stendur upphaflegi taxtinn, t.d. „Áður: 13.900“.
Er einhver lína með 0 í taxta spyr Unnur í glugganum Taxti er 0 áður en reikningurinn er vistaður, sendur, merktur sendur eða afskrifaður. Á drögum er ekki spurt við Vista breytingar.
Afsláttur og álagning á heilan bálk
Kafli: „Afsláttur og álagning á heilan bálk“Undir Afsláttur (%) hægra megin eru reitir fyrir Tímar, Akstur og Efni, og Tæki í Allur pakkinn. Prósentan fer á allar línur bálksins, nema þær sem þú hefur breytt sjálf(ur). Afsláttur á Tæki gildir líka um verkfæragjaldið.

Við Efni velurðu hvernig afslátturinn reiknast:
- Fastur: sama prósenta á allar efnislínur.
- Hlutfall: Afsláttur kúnna verður þetta hlutfall af Minn Afsláttur á hverri línu. Með 50% fær verkkaupinn 21% afslátt af línu þar sem innkaupsafslátturinn var 42%.
Sé verkkaupinn með sjálfgefinn afslátt fyllist reiturinn út á nýjum reikningi, og tákn við hann sýnir að gildið kom frá verkkaupanum. Sjá Verkkaupar.
Álagning (%) birtist aðeins ef kveikt er á Sýna álagningu á sölureikningum í StillingarVirkniSölureikningar. Þá bætist líka dálkurinn Álagning við línurnar.
Yfirvinna
Kafli: „Yfirvinna“Á nýjum reikningi er rofinn Rukka yfirvinnu undir Valkostir. Sé kveikt á honum fá yfirvinnutímar sérstaka línu á yfirvinnutaxta starfsmannsins. Sé slökkt eru allir tímar rukkaðir á venjulegum taxta. Rofinn er ekki á drögum.
Vanti yfirvinnutaxta á einhvern starfsmann birtist „Yfirvinnutaxta vantar á suma starfsmenn“ og reikningurinn vistast ekki fyrr en það er lagað eða slökkt á rofanum. Þetta á við starfsmenn sem eru ekki með sértaxta verkkaupans. Gildi sértaxti verkkaupans og hann er ekki með yfirvinnutaxta stöðvast vistun ekki. Þá rukkast yfirvinnan á dagvinnutaxta verkkaupans og viðvörun birtist efst í Tímar. Hvaða tímar teljast yfirvinna sérðu í Dagvinna og yfirvinna.
Bæta við skráningu
Kafli: „Bæta við skráningu“Plúsinn + við hvern bálk opnar skráningarglugga með verkefnið þegar valið: tímaskráningu, akstur, tækjaskráningu eða, við Efni, lagervöru. Skráningin fer bæði á verkefnið og á reikninginn. Plúsinn við Tæki fylgir aðeins Allur pakkinn. Á drögum eru plúsarnir óvirkir meðan óvistaðar breytingar eru á síðunni.
Séu tímar á reikningnum á dögum sem eru án aksturs birtist líka + Unnir dagar við Akstur. Hann bætir akstri við á þá daga, sjá Akstur á sölureikning.
Á drögum er hnappurinn Sækja skráningar efst á síðunni. Talan á honum er fjöldi óreikningsfærðra skráninga á verkefninu sem eru ekki á drögunum, óháð dagsetningu. Hann opnar glugga þar sem allt er valið. Smelltu á ✕ vinstra megin við það sem á ekki að fara með og svo á Bæta við. Nýju línurnar fá merkið NÝ.
Vara sem er ekki til á lager
Kafli: „Vara sem er ekki til á lager“Efni kemst á reikning annaðhvort af lager eða af aðfangareikningi sem er settur á verkefnið. Viltu rukka fyrir vöru sem er ekki til hefurðu tvær leiðir:
- stofna vöruna undir Lager og skrá hana á verkefnið, sjá Skrá efni af lager;
- skrá aðfangareikninginn handvirkt á verkefnið, sjá Skrá aðfangareikning.
Taka línu af
Kafli: „Taka línu af“Færðu bendilinn yfir vinstri enda línunnar og smelltu á ✕. Línan verður yfirstrikuð. Smelltu svo á Vista breytingar (eða sendu reikninginn). Þá fer línan af reikningnum og skráningin verður aftur óreikningsfærð, svo hún kemur inn á næsta reikning. Það er enginn sérstakur eyða-hnappur á línu.
Var reikningurinn búinn til með Rukka yfirvinnu fara dagvinnu- og yfirvinnulína sömu tímaskráningar alltaf saman af.
Línu af sendum reikningi tekurðu af með því að endurkalla reikninginn fyrst, sjá Reikningur var sendur. Hvað nú?.