Fara í efni

Fylgiskjöl og PDF

Hvernig þú lætur skjöl og myndir fylgja sölureikningi, forskoðar PDF-fylgiskjalið sem Unnur býr til og hvert það fer þegar reikningurinn er sendur.

Þegar sölureikningur er sendur býr Unnur til PDF-fylgiskjal með öllum línum hans. Þú getur líka látið önnur skjöl fylgja, til dæmis teikningu, úttekt eða mynd af verkstað. Fylgiskjölin eru í kaflanum Fylgiskjöl hægra megin á reikningnum.

Fylgiskjöl á drögum. Forskoða sjálfgert birtist aðeins á drögum.
Fylgiskjöl á drögum. Forskoða sjálfgert birtist aðeins á drögum.

Dragðu skrána inn í reitinn eða smelltu á hann til að velja hana. Aðeins PDF, PNG og JPG eru leyfð.

Skjal sem er þegar í skjölum eða myndum verkefnisins sækirðu svona:

  1. Smelltu á Sækja af verkefninu undir Fylgiskjöl.

  2. Veldu skrár á flipanum Skrár og myndir á flipanum Myndir. Augað hægra megin opnar forskoðun.

    Glugginn Veldu skrár eða myndir úr verkefninu, með eina teikningu valda.
    Glugginn Veldu skrár eða myndir úr verkefninu, með eina teikningu valda.
  3. Smelltu á Bæta við valið.

Glugginn sýnir allar skrár verkefnisins, en aðeins PDF, PNG og JPG fara á reikninginn. Öðrum skrám, t.d. Word-skjölum, er sleppt án viðvörunar. Hafi skrá fleiri útgáfur fer nýjasta útgáfan.

Á nýjum reikningi vistast fylgiskjölin þegar reikningurinn er vistaður. Á drögum vistast þau strax. Á meðan reikningurinn er í drögum geturðu eytt fylgiskjali með hnappinum við það. Á sendum reikningi er hvorki hægt að bæta við né eyða.

Forskoða PDF-fylgiskjalið

Kafli: „Forskoða PDF-fylgiskjalið“

Á drögum er línan Forskoða sjálfgert neðst undir Fylgiskjöl. Smelltu á táknið hægra megin í línunni og PDF-skjalið opnast í nýjum flipa, merkt DRÖG þvert yfir síðuna. Forskoðunin sýnir drögin eins og þau voru síðast vistuð, svo vistaðu breytingar fyrst.

Efsti hluti PDF-forskoðunar á drögum: merki, aðilar, samtölur, gjalddagi og eindagi, og svo línurnar.
Efsti hluti PDF-forskoðunar á drögum: merki, aðilar, samtölur, gjalddagi og eindagi, og svo línurnar.

Efst á skjalinu er merki fyrirtækisins, sem þú setur inn í StillingarFyrirtækiMerki fyrirtækis. Þar fyrir neðan eru verktakinn, verkkaupinn og verkefnið, samtölur með og án VSK, gjalddagi og eindagi, og svo línurnar í sömu bálkum og á reikningnum.

Útlitið er stillt fyrir öll fylgiskjöl fyrirtækisins í StillingarVirkniSölureikningar:

  • Útlit á fylgiskjali: hvort samtölurnar standi efst (Heildartölur efst), neðst (Heildartölur neðst) eða hvergi (Engar heildartölur).
  • Hópa efni eftir aðfangareikningum á fylgiskjali: efnið skiptist eftir aðfangareikningi með samtölu fyrir hvern. Efni af lager eða handskráð fer undir „Annað efni“. Sé slökkt er allt efni í einni töflu í dagsetningarröð.
  • Sýna verkhluta á reikningum: línurnar flokkast líka eftir verkhlutum á fylgiskjalinu. Fylgir aðeins Allur pakkinn.
Útlit á fylgiskjali í stillingum sölureikninga.
Útlit á fylgiskjali í stillingum sölureikninga.

Á hverjum reikningi er svo rofinn Sýna afslátt undir Valkostir. Sé kveikt á honum er afslátturinn sér dálkur á fylgiskjalinu. Sé slökkt er hann dreginn frá einingarverðinu.

Þegar reikningurinn er sendur

Kafli: „Þegar reikningurinn er sendur“

Þegar reikningurinn er sendur eða merktur sendur verður PDF-fylgiskjalið til. Það birtist undir Fylgiskjöl með merkinu Sjálfkrafa, og því er ekki hægt að eyða.

Sendur reikningur. Fylgiskjalið sem Unnur bjó til er merkt Sjálfkrafa.
Sendur reikningur. Fylgiskjalið sem Unnur bjó til er merkt Sjálfkrafa.

PDF-fylgiskjalið og fylgiskjölin þín fara með reikningnum í bókhaldskerfið:

  • Payday, Regla, Konto, Uniconta og Tölvupóstur á bókara fá PDF-fylgiskjalið og hvert fylgiskjal fyrir sig.
  • DK Plus fær allt sameinað í eitt PDF-skjal. Sé það stærra en 15 MB fer aðeins PDF-fylgiskjalið sjálft.
  • Catacloud fær hvorki PDF-fylgiskjalið né önnur fylgiskjöl.

Með Merkja sem sendan fer ekkert í bókhaldskerfið. Sjá líka Studdar bókhaldstengingar.

Afrit í skjölum verkefnisins

Kafli: „Afrit í skjölum verkefnisins“

Afrit af PDF-fylgiskjalinu vistast líka á verkefninu, í möppunni Reikningar undir Skjöl. Skráin heitir eftir verknúmeri og tímabili reikningsins, t.d. „Fylgiskjal 26-041 1.9.2026–30.9.2026.pdf“. Starfsmenn sjá hana ekki. Sjá Skjöl og möppur.

Mappan Reikningar á verkefni 26-041 með fylgiskjölum tveggja sendra reikninga.
Mappan Reikningar á verkefni 26-041 með fylgiskjölum tveggja sendra reikninga.

Sé reikningurinn endurkallaður og sendur aftur kemur nýtt afrit í stað þess gamla. Sjá Reikningur var sendur. Hvað nú?.