Fara í efni

Sölureikningar

Sölureikningur er búinn til úr því sem er skráð á verkefnið og hefur ekki farið á reikning. Hér sérðu flipana, hvernig reikningur verður til og hvað drög, Merkja sem sendan, afskrift og Eyða drögum gera.

Sölureikningur í Unni er settur saman úr tímum, akstri, efni og tækjum sem eru skráð á verkefnið og hafa ekki enn farið á reikning. Þegar hann er sendur fer hann í bókhaldskerfið ykkar.

Aðeins Stjórnandi og Skrifstofumaður sjá Sölureikningar í valmyndinni. Sölureikningar eru í báðum pökkunum: Einfaldi pakkinn og Allur pakkinn.

Í vinnslu: verkefnin sem eiga eitthvað óreikningsfært, með tímabili og upphæð eftir tegund.
Í vinnslu: verkefnin sem eiga eitthvað óreikningsfært, með tímabili og upphæð eftir tegund.
  • Í vinnslu: verkefni af tegundinni Útselt sem eiga óreikningsfærða tíma, akstur, efni eða tæki. Frá og Til eru fyrsta og síðasta dagsetningin á því sem bíður.
  • Drög: reikningar sem hafa verið vistaðir en ekki sendir.
  • Sendir: sendir reikningar, nýjasti efst, með Sent dags. og Sent af.
  • Afskrifaðir: afskrifaðir reikningar. Í Tilvísun stendur tilvísunin sem var slegin inn við afskriftina, eða tilvísun reikningsins ef ekkert var slegið inn.

Verkefni af tegundinni Rekstrar birtast aldrei á Í vinnslu. Sé Allur pakkinn í áskriftinni og til tilboðsverk í vinnslu birtast spjöldin Útselt og Tilboð efst til hægri, og tilboðsverkin eru undir Tilboð. Hvernig þau eru rukkuð sérðu í Rukka tilboðsverk.

  1. Opnaðu SölureikningarÍ vinnslu og smelltu á línu verkefnisins, t.d. á nafn verkkaupans. Heiti verkefnisins er tengill á verkefnissíðuna, ekki á reikninginn.

    Viltu bara rukka ákveðið tímabil geturðu valið það í Tímabil áður. Sama tímabil fylgir inn á reikninginn í Sía eftir tímabili. Tímabilið vistast í vafranum og gildir áfram á Í vinnslu og á næstu nýju reikningum þar til þú hreinsar það með ✕ í reitnum. Vanti verkefni á Í vinnslu skaltu því fyrst hreinsa Tímabil, og vanti skráningar á nýjan reikning skaltu hreinsa Sía eftir tímabili.

  2. Reikningurinn opnast með öllu óreikningsfærðu á verkefninu, flokkuðu í bálkana Tímar, Akstur og Efni. Bálkurinn Tæki bætist við í Allur pakkinn, og annars ef verkfæragjald er reiknað. Allt er valið. Til að láta línu bíða færirðu bendilinn yfir vinstri enda hennar og smellir á ✕. Línan verður yfirstrikuð og skráningin bíður næsta reiknings.

    Tímar af stimpilklukku sem stöðvaðist sjálfkrafa koma ekki á reikninginn fyrr en lokatíminn hefur verið lagaður, þó að þeir teljist með í upphæðinni á Í vinnslu. Sjá Ef gleymist að stimpla sig út.

    Nýr reikningur. Verkkaupinn og samtölur efst, bálkarnir fyrir neðan og reitir reikningsins hægra megin.
    Nýr reikningur. Verkkaupinn og samtölur efst, bálkarnir fyrir neðan og reitir reikningsins hægra megin.
  3. Farðu yfir línurnar og reitina hægra megin, t.d. Tilvísun, Athugasemd og dagsetningarnar. Línurnar eru útskýrðar í Línur á sölureikningi og dagsetningarnar og sendingarrofarnir í Sending reiknings og netföng verkkaupa.

  4. Smelltu á Búa til og senda, eða á Vista sem drög til að klára síðar.

Tilvísun fyllist með ytra verknúmeri verkefnisins ef það er skráð, sjá Stofna verkefni. Athugasemd er auð nema kveikt sé á Setja verkefnislýsingu sem athugasemd í StillingarVirkniSölureikningar. Þá fyllist hún með lýsingu verkefnisins. Hvort tveggja má laga, og hvort tveggja fer með reikningnum í bókhaldskerfið.

Sama reikning má líka opna af verkefnissíðunni, í spjaldinu Sölureikningar, með því að smella á línuna merkta Í vinnslu.

Sé Sía eftir tímabili notuð birtist borði ef fleiri skráningar eru á verkefninu utan tímabilsins, t.d. „Skráningar eru á verkefninu fyrir valið tímabil.“

Á drögum heita hnapparnir Eyða drögum, Vista breytingar og Senda reikning. Opnaðu drögin af flipanum Drög.

Hnapparnir neðst á drögum, með rofanum Loka verkefni.
Hnapparnir neðst á drögum, með rofanum Loka verkefni.

Undir hnöppunum er rofinn Loka verkefni. Sé kveikt á honum færist verkefnið í stöðuna Lokið þegar reikningurinn er sendur eða merktur sendur. Vafrinn man hvort þú kveiktir á honum síðast.

Eyða drögum eyðir reikningnum. Allt sem var á honum, tímar, akstur, efni, lagervörur og tæki, verður aftur óreikningsfært. Verkefnið birtist þá aftur á Í vinnslu og færslurnar má setja á nýjan reikning. Sendum reikningi er ekki hægt að eyða.

Merkja sem sendan og afskrifa

Kafli: „Merkja sem sendan og afskrifa“

Í valmyndinni með punktunum þremur efst til hægri, bæði á nýjum reikningi og á drögum, eru Stillingar sölureiknings, Merkja sem sendan og Afskrifa.

Valmyndin með punktunum þremur á reikningi.
Valmyndin með punktunum þremur á reikningi.
  • Merkja sem sendan: reikningurinn fær stöðuna sendur og fer á flipann Sendir, en hann fer ekki í bókhaldskerfið og enginn tölvupóstur er sendur. Notaðu þetta ef reikningurinn var gerður annars staðar, t.d. beint í bókhaldskerfinu, eða ef ekkert bókhaldskerfi er tengt. PDF-fylgiskjalið verður samt til. Án tengds bókhaldskerfis er ekki hægt að endurkalla reikning sem hefur verið merktur sendur, sjá Endurkalla reikning.
  • Afskrifa: reikningurinn fer á flipann Afskrifaðir og ekkert er sent. Línurnar teljast áfram reikningsfærðar og koma ekki aftur inn á nýjan reikning. Notaðu þetta fyrir vinnu sem á ekki að rukka. Eiga færslurnar að fara á reikning síðar skaltu frekar eyða drögunum.

Stillingar sölureiknings opnar sömu stillingar og eru í StillingarVirkniSölureikningar. Breyting þar gildir fyrir alla nýja reikninga fyrirtækisins, ekki bara þennan.

  1. Veldu Afskrifa í valmyndinni með punktunum þremur.
  2. Skrifaðu ástæðuna í Tilvísun (má sleppa) ef þú vilt. Hún kemur í stað tilvísunar reikningsins og sést á flipanum Afskrifaðir. Sé reiturinn auður helst tilvísun reikningsins.
  3. Viltu að Unnur vari við verkkaupanum næst geturðu hakað við Flagga og nafn hans. Sjá Flögg á verkkaupum.
  4. Smelltu á Afskrifa.
Glugginn Afskrifa reikning.
Glugginn Afskrifa reikning.

Afskrift má bakfæra: opnaðu reikninginn á Afskrifaðir og smelltu á Afturkalla afskrift. Hann verður þá aftur að drögum. Hafi tilvísun verið skrifuð við afskriftina stendur hún áfram í Tilvísun á drögunum og upphaflega tilvísunin kemur ekki aftur, svo lagaðu hana áður en þú sendir reikninginn. Sendan reikning þarf að endurkalla áður en hægt er að afskrifa hann, sjá Reikningur var sendur. Hvað nú?.