Valmyndin, tilkynningar og hjálp
Hvernig valmyndin á vefnum virkar, hvar tilkynningar birtast og hvar þú finnur hjálp á hverri síðu.
Hér er farið yfir það sem er eins á öllum síðum vefsins: valmyndina, tilkynningarnar, hjálpina og útlitið sem hver notandi velur fyrir sig.
Valmyndin
Kafli: „Valmyndin“Valmyndin er vinstra megin. Í henni sést aðeins það sem hlutverkið þitt og pakki fyrirtækisins leyfa. Verkstjóri og Starfsmaður sjá aðeins Verkefni, Tímar, Lager, Tæki og Akstur í efri hluta valmyndarinnar. Nánar í Hlutverk og réttindi.

Merkin aftan við nöfnin:
- Talan við Verkbeiðnir er fjöldi innsendra verkbeiðna sem bíða afgreiðslu.
- Talan við Undirverktakar er fjöldi aðkeyptra verka sem eru ekki enn komin á verkefni hjá ykkur.
- Nýtt við Póstur og Skjöl merkir að þessir hlutar eru nýir í Unni. Þeir sjást aðeins hjá fyrirtækjum þar sem þeir hafa verið virkjaðir, eins og Undirverktakar.
Neðst í valmyndinni eru Tilkynningar, Stillingar og Útskráning, og þar fyrir neðan nafn fyrirtækisins. Ef þú ert í fleiri en einu fyrirtæki skiptirðu á milli þeirra þar, sjá Innskráning og lykilorð. Stillingar sjá aðeins Stjórnandi og Skrifstofumaður.
Meðan uppsetningu fyrirtækisins er ólokið er liðurinn Uppsetning efst í valmyndinni, sjá Uppsetning skref fyrir skref. Gátlistinn Komast í gang getur líka birst neðst í henni, sjá Komast í gang.
Fella saman og breyta breidd
Kafli: „Fella saman og breyta breidd“- Smelltu á Fella saman (tvöföldu örina efst) til að sýna aðeins táknin. Nafnið birtist þegar bendillinn er yfir tákni og fjöldi tilkynninga sést á bjöllunni. Smelltu á litla merkið efst til að opna valmyndina aftur.
- Dragðu hægri brún valmyndarinnar til að breikka hana eða mjókka. Ef þú dregur hana langt til vinstri fellur hún saman, og tvísmellur á brúnina setur sjálfgefnu breiddina aftur.
Vafrinn man hvernig þú skildir við valmyndina. Í síma er hún falin og opnast með hnappinum efst til vinstri. Hún lokast sjálf þegar þú opnar síðu.
Tilkynningar
Kafli: „Tilkynningar“Bjallan Tilkynningar er neðst í valmyndinni. Talan á henni er fjöldi ólesinna tilkynninga frá okkur hjá Unni. Hjá Stjórnanda og Skrifstofumanni bætast við fjarverubeiðnir og breytingarbeiðnir sem bíða samþykkis. Ef ekkert er að sýna sést bjallan ekki.
Smelltu á bjölluna til að opna yfirlit. Þar eru allt að þrjár færslur úr hverjum flokki: Fjarverubeiðnir bíða samþykkis (elstu beiðnirnar fyrst), Breytingarbeiðnir bíða samþykkis og tilkynningar (nýjustu fyrst). Smelltu á beiðni til að fara þangað sem hún er afgreidd. Séu beiðnirnar fleiri en þrjár birtist til dæmis „+2 fleiri beiðnir“, sem opnar allan listann.

Þegar bjallan er opnuð merkjast allar tilkynningar lesnar. Beiðnirnar standa þar til þær hafa verið afgreiddar.
Þegar tilkynningar eru í yfirlitinu er Sjá allar tilkynningar neðst í því og opnar síðuna Tilkynningar. Þar eru allar tilkynningarnar, þær nýjustu efst, merktar Almennt, Nýjung, Viðhald eða Uppfærðir skilmálar. Ólesnar tilkynningar eru auðkenndar.
Hjálp
Kafli: „Hjálp“Við fyrirsögn margra síðna, til dæmis Verkefni, Tímar og Sölureikningar, er lítið i-tákn. Það opnar hjálparspjald hægra megin með leiðbeiningunum um síðuna.

Örin efst í spjaldinu opnar greinina í nýjum flipa. Spjaldið lokast með ×, Esc-takkanum eða smelli utan þess, og líka þegar þú ferð á aðra síðu.
Stjórnandi og Skrifstofumaður fá stundum ábendingu neðst í hægra horninu, til dæmis þegar ný síða er opnuð í fyrsta sinn. Lesa meira opnar leiðbeiningarnar í hjálparspjaldinu. Þegar þú lokar ábendingunni með × birtist hún þér ekki aftur í þessu fyrirtæki, sama í hvaða tæki þú ert.

Spjallbólan neðst í hægra horninu er bein lína til þjónustunnar okkar. Ef fyrirtækið er með aðstoðarmanninn er hans bóla yst í horninu og spjallbólan við hliðina. Þú getur líka sent okkur póst á [email protected].
Stundum birtist spjald neðst á skjánum með stuttri spurningu frá okkur. Senda sendir svarið. Ekki núna lokar spjaldinu og sama spurning kemur ekki aftur.
Þema og tungumál
Kafli: „Þema og tungumál“Stjórnandi og Skrifstofumaður velja útlit vefsins í StillingarMínar stillingar.
- Þema: Ljóst eða Dökkt. Breytingin tekur gildi strax.
- Tungumál: Íslenska eða English. Síðan hleðst aftur á nýja tungumálinu.

Valið vistast í vafranum sem þú notar en ekki á aðganginn. Í öðrum vafra eða annarri tölvu þarftu að velja aftur. Appið hefur sína eigin tungumálastillingu, sjá Meira, stillingar og tilkynningar í appinu.
Óvistaðar breytingar
Kafli: „Óvistaðar breytingar“Þegar þú ert að vinna í nýjum sölureikningi, drögum að sölureikningi eða Laun-flipanum undir Tímar og ferð af síðunni án þess að vista spyr Unnur fyrst í glugganum Óvistaðar breytingar. Vera áfram heldur þér á síðunni. Yfirgefa fer af síðunni og breytingarnar glatast.