Tímar og fjarvera
Stimpilklukkan, rangar skráningar, veikindi, orlof og rauðir dagar.
Starfsmaður gleymdi að stimpla sig út
Kafli: „Starfsmaður gleymdi að stimpla sig út“Stimpilklukka sem hefur gengið í 18 klukkustundir stöðvast sjálfkrafa og starfsmaðurinn fær tilkynningu í símann. Lokatíminn verður 18 klst. eftir að klukkan var ræst, og skráningin fer ekki á sölureikning fyrr en tíminn hefur verið lagaður, í appinu eða á vefnum.
Sé klukkan enn í gangi getur Stjórnandi eða Skrifstofumaður stöðvað hana á Tímar: smelltu á punktana þrjá aftast í línunni og veldu Stöðva tímamælingu. Lokatímann lagarðu svo með Breyta.
Nánar í Stimpilklukkan.
Starfsmaður finnur ekki verkefnið í appinu
Kafli: „Starfsmaður finnur ekki verkefnið í appinu“Þegar starfsmaður skráir tíma í appinu sér hann aðeins verkefni sem hann hefur aðgang að og sem eru ekki í stöðu úr flokkunum Lokið eða Hætt við. Opnaðu verkefnið á vefnum. Sé lás við myndirnar á spjaldinu Mönnun sjá aðeins þeir sem eru í mönnuninni verkefnið, og þá bætir Stjórnandi eða Skrifstofumaður starfsmanninum við með + á spjaldinu. Úthlutun í Vikuskipulag bætir honum ekki í mönnunina.
Nánar í Starfsmaður finnur ekki verkefnið.
Tímar voru skráðir á rangt verkefni
Kafli: „Tímar voru skráðir á rangt verkefni“Opnaðu Tímar, smelltu á punktana þrjá aftast í línunni og veldu Breyta. Veldu rétt verkefni í Verkefni og smelltu á Vista. Margar skráningar færirðu í einu með Velja línur fyrir ofan töfluna og Færa á verkefni neðst á skjánum.
Skráningu sem er komin á sölureikning, líka drög, er ekki hægt að færa fyrr en línan hefur verið tekin af reikningnum.
Nánar í Færa skráningar og sameina verkefni.
Hvernig skráir starfsmaður veikindi eða orlof?
Kafli: „Hvernig skráir starfsmaður veikindi eða orlof?“Í appinu fer starfsmaðurinn í MeiraFjarvera, ýtir á Skrá fjarveru, velur Týpu og daga og ýtir á Senda inn. Á vefnum er það TímarFjarverur og +. Þegar beiðnin hefur verið samþykkt skráir Unnur tímana sjálf. Fjarveran sést líka í töflunni í Vikuskipulagi, bæði samþykkt og sú sem bíður samþykkis.
Fyrst þarf Stjórnandi eða Skrifstofumaður að kveikja á fjarveru undir StillingarTímaskráningFjarvera. Nánar í Fjarvera: veikindi, orlof og frí.
Af hverju vantar rauðan dag hjá starfsmanni?
Kafli: „Af hverju vantar rauðan dag hjá starfsmanni?“Rauðir dagar skrást aðeins sjálfkrafa ef kveikt er á fjarveru og á Skrá rauða daga sjálfkrafa undir StillingarTímaskráningFjarvera. Starfsmaðurinn þarf að vera virkur og með Tímavinna í Starfsmannategund. Rauði dagurinn verður að lenda á virkum degi, og starfsmaður sem á fjarverubeiðni sem bíður eða er samþykkt yfir daginn fær hann ekki.
Rauðir dagar sem voru liðnir þegar kveikt var á stillingunni skrást ekki. Nánar í Rauðir dagar.