Fara í efni

Lyklar: endurnýtanlegar verðeiningar

Lykill er verðeining sem þú skilgreinir einu sinni, til dæmis tengill sem er frágenginn eða fermetri af raflögn, og setur svo inn í tilboð með magni.

Lykill er verð á einni einingu, til dæmis „Tengill, tvöfaldur – frágenginn“ á stykki, sem skiptist á tíma, akstur, efni og tæki. Þú setur lykilinn inn í tilboð og slærð inn magnið, og Unnur fyllir út allar línurnar sem fylgja honum.

Lyklar eru hluti af tilboðum og fylgja því aðeins Allur pakkinn. Stjórnandi og Skrifstofumaður sjá þá.

Lyklarnir eru á flipanum Lyklar á síðunni TilboðLyklar. Í listanum sérðu einingu hvers lykils, hvernig hann er byggður upp í dálkinum Tegund (Úr vörum með fjölda lína, eða Hlutföll) og í dálkinum Skipting hvernig verðið skiptist á tíma, akstur, efni og tæki. Haltu músinni yfir lit í súlunni til að sjá flokkinn og prósentuna. Einingaverð er verð lykilsins án VSK.

Flipinn Lyklar. Súlan í Skipting sýnir hvernig verð hvers lykils skiptist á flokka.
Flipinn Lyklar. Súlan í Skipting sýnir hvernig verð hvers lykils skiptist á flokka.

Niðurhalstáknið hægra megin við síuna sækir listann sem Excel-skjal.

Lyklar eru af tveimur tegundum og þú velur tegundina efst í glugganum:

  • Vörur: þú setur saman línurnar sem fara í eina einingu og verð lykilsins er summa þeirra. Hentar þegar þú veist hvað fer í verkið, til dæmis 0,4 klst. og einn tengil á hvern tengil sem er settur upp.
  • Hlutföll: þú slærð inn verð á einingu og skiptir því á flokka með prósentum. Hentar þegar þú verðleggur eftir reynslu, til dæmis fermetraverð á raflögn.
  1. Farðu í TilboðLyklar og smelltu á + efst til hægri. Glugginn Nýr lykill opnast með Vörur valið.
  2. Skrifaðu Nafn og veldu Einingu: stk, m², m, m³, kg, tonn, l, klst, dagur, vika, mánuður, ferð eða heild.
  3. Bættu við línum í flokkana Tímar, Akstur, Efni og Tæki. Smelltu í reitinn Leita eða skrifa…, veldu úr tillögunum eða skrifaðu eigin lýsingu, sláðu inn magn og ýttu á Enter. Tillögurnar eru þær sömu og í tilboðum, sjá Tilboðsvörur. Magnið er það sem fer í eina einingu lykilsins.
  4. Verð lykils efst uppfærist með hverri línu. Smelltu á Búa til.
Nýr lykill af tegundinni Vörur: 0,4 klst. rafvirkja og einn tengill. Verð lykils er summa línanna.
Nýr lykill af tegundinni Vörur: 0,4 klst. rafvirkja og einn tengill. Verð lykils er summa línanna.

Lykill af tegundinni Vörur verður að hafa að minnsta kosti eina línu. Lýsingu, magni og einingarverði línu má breyta beint í töflunni áður en þú vistar, og × eyðir línunni.

  1. Smelltu á + á flipanum Lyklar og veldu Hlutföll efst í glugganum.
  2. Skrifaðu Nafn og veldu Einingu.
  3. Veldu undir Upphæð hvort þú slærð verðið inn Með VSK eða Án VSK (sjálfgefið) og sláðu það inn í Verð á einingu. Unnur sýnir hina upphæðina fyrir neðan.
  4. Skrifaðu prósentu við Tímar, Akstur, Efni og Tæki. Krónuupphæð hvers flokks birtist til hægri. Prósenturnar verða að vera samtals 100%. Annars birtist Samtals hlutfall með summunni og ekki er hægt að vista.
  5. Smelltu á Búa til.
Hlutfallalykill: 9.500 kr. á m² án VSK sem skiptist 60% á tíma, 5% á akstur og 35% á efni.
Hlutfallalykill: 9.500 kr. á m² án VSK sem skiptist 60% á tíma, 5% á akstur og 35% á efni.

Verðið er alltaf vistað án VSK. Allir lyklar eru með 24% VSK.

Smelltu á lykil í listanum til að opna Breyta lykli. Þar breytirðu nafni, einingu og línum eða hlutföllum og smellir á Vista. Ekki er hægt að skipta um tegund á lykli sem er til. Hlutfallalykill opnast alltaf með verðinu án VSK.

Til að eyða lykli smellirðu á Eyða í sama glugga og staðfestir.

Í útlitinu Flokkað er flokkurinn Lyklar efstur í hverjum verkhluta. Ef þú notar Flöt tafla smellirðu fyrst á flokkinn í dálkinum Flokkur í nýju línunni neðst og velur Lyklar.

  1. Smelltu í reitinn Leita… og veldu lykil. Listinn sýnir einingu og verð hvers lykils.
  2. Sláðu inn magn, til dæmis fjölda fermetra, og ýttu á Enter. Ef þú sleppir magninu er það 1.
Lykill valinn í nýju línunni og magnið slegið inn. Verðið kemur úr lyklinum og reiturinn er læstur.
Lykill valinn í nýju línunni og magnið slegið inn. Verðið kemur úr lyklinum og reiturinn er læstur.

Unnur setur línur lykilsins inn í tilboðið, margfaldaðar með magninu. Hver lína fær lýsinguna „nafn lykils: lýsing línu“. Lykill sem er 0,3 klst. á stykki gefur þannig 25,2 klst. þegar þú setur inn 84 stykki.

Í ritlinum birtist lykillinn sem ein röð. Smelltu á örina við nafnið til að sjá línurnar á bak við hann.

Lykillinn Tengill, tvöfaldur – frágenginn útfelldur: tímar rafvirkja, tenglar og smáefni fyrir 84 stykki.
Lykillinn Tengill, tvöfaldur – frágenginn útfelldur: tímar rafvirkja, tenglar og smáefni fyrir 84 stykki.
  • Magn á lyklaröðinni er ekki hægt að breyta. Breyttu magni einstakra lína í útfelldu röðunum, eða eyddu lyklinum og settu hann inn aftur með nýju magni.
  • Afsl.% á lyklaröðinni gildir um allar línur lykilsins.
  • Lýsingu og einingarverði lína úr lykli er ekki hægt að breyta í tilboðinu.
  • × á lyklaröðinni eyðir lyklinum og öllum línum hans úr tilboðinu, án staðfestingar. × á útfelldri línu eyðir aðeins þeirri línu.
  • Ef þú setur sama lykil oftar en einu sinni í sama verkhluta sameinast línurnar í eina lyklaröð, og × eyðir þeim öllum. Ef magnið var ólíkt stendur — í Magn og Einingarverð á röðinni. Settu lykilinn frekar inn einu sinni með heildarmagninu.

Undir Útlitsstillingar í hliðarstikunni velurðu Lyklar í sér hóp (sjálfgefið) eða Lyklar dreifðir. Með Lyklar dreifðir fara línur lykilsins í flokkana Tímar, Akstur, Efni og Tæki eins og aðrar línur. Valið sést aðeins þegar tilboðið inniheldur lykla og breytir bara því hvernig ritillinn birtist þér í þessum vafra. Í tölvupósti, PDF-skjali og á svarsíðu verkkaupans eru línur lykla alltaf flokkaðar með öðrum línum af sama tagi.

Flokkurinn Lyklar í tilboðinu tekur ekki við texta. Þar er aðeins hægt að velja lykla sem eru til. Ef enginn lykill er til stendur þar „Lyklar eru búnir til undir Lyklar og birtast svo hér.“ Línur sem þú skrifar sjálf(ur) fara í hina flokkana.

Ég hækkaði verð á lykli en tilboðið er óbreytt. Verðið afritast inn í tilboðið þegar lykillinn er settur inn. Endurhlaðaðu síðuna (F5), eyddu lyklinum úr tilboðinu og settu hann inn aftur til að fá nýja verðið. Án endurhleðslu getur gamla verðið komið aftur. Það er aðeins hægt meðan tilboðið er í drögum.

Nýr lykill sést ekki í tilboðinu. Lyklalistinn er sóttur þegar þú opnar fyrsta tilboðið eftir að síðan hleðst, og hann uppfærist ekki þótt þú búir til lykil á eftir. Endurhlaðaðu síðuna (F5) og þá birtist lykillinn.