Fara í efni

Verkbeiðnir og tilboð

Verkbeiðnir frá verkkaupum og tilboð sem verða að verkefnum.

Hvernig geta verkkaupar sent okkur verkbeiðni?

Kafli: „Hvernig geta verkkaupar sent okkur verkbeiðni?“

Smelltu á Deila hlekk efst á Verkbeiðnir og veldu leið:

  • Almennur hlekkur fyrirtækisins: sami hlekkur fyrir alla, t.d. á heimasíðuna.
  • Senda SMS/tölvupóst: einnota hlekkur á einn viðtakanda. Hann gildir fyrir eina beiðni í 14 daga.
  • Hlekkur fyrir verkkaupa: fastur hlekkur fyrir verkkaupa sem sendir ykkur oft beiðnir.

Sá sem opnar hlekkinn fyllir út stutt form, og beiðnin birtist undir VerkbeiðnirBeiðnir. Stjórnandi og Skrifstofumaður sjá verkbeiðnir á vefnum. Nánar í Hlekkir og form fyrir verkbeiðnir.

Hvernig verður samþykkt tilboð að verkefni?

Kafli: „Hvernig verður samþykkt tilboð að verkefni?“

Á Tilboð smellirðu á spjaldið Samþykkt og opnar tilboðið. Smelltu á Búa til verkefni í hliðarstikunni. Verkefnið verður til strax með heiti tilboðsins og viðtakandanum sem verkkaupa, og þú ferð beint á það. Staðsetningu, dagsetningar og mönnun fyllirðu út sjálf/ur.

Tilboð fylgja aðeins Öllum pakkanum. Nánar í Svar verkkaupa og samþykkt tilboð.