Áskrift og pakkar
Hvað fylgir Einfalda pakkanum og Öllum pakkanum, hvernig mánaðarverðið reiknast, hvernig þú skiptir um pakka eða segir upp, og hvaða eiginleikar eru ekki virkir hjá öllum.
Áskriftin ræður hvaða hlutar Unnar fyrirtækið hefur. Þú sérð hana, skiptir um pakka og segir upp í StillingarFyrirtækiÁskrift. Stjórnandi og Skrifstofumaður hafa aðgang að flipanum.
Staða áskriftarinnar
Kafli: „Staða áskriftarinnar“Efst stendur pakkinn ykkar og staða hans:
- Prufutími: nýtt fyrirtæki byrjar á 30 daga prufutíma. Borði sýnir hve margir dagar eru eftir og hvenær prufutímanum lýkur. Þegar honum lýkur verður áskriftin Virk af sjálfu sér, í sama pakka.
- Virk: með dagsetningunni sem hún varð virk.
- Afturkölluð: búið er að segja áskriftinni upp.

Mánaðarverðið er grunngjald pakkans og gjald fyrir hvern starfsmann. Starfsmaður telst með ef hann gerði að minnsta kosti fimm skráningar í síðasta almanaksmánuði (tíma, akstur, efni af lager, tæki eða myndir), sama hvaða hlutverk hann hefur. Hjá nýju fyrirtæki stendur því 0 fjöldi starfsmanna þar til mánuðurinn sem það byrjaði í er liðinn. + Verðsundurliðun sýnir hvernig verðið skiptist og afslætti ef einhverjir eru. Verðin eru án virðisaukaskatts.
Reikningar fyrir áskriftina
Kafli: „Reikningar fyrir áskriftina“Áskriftin er rukkuð eftir á, mánuð fyrir mánuð. Reikningurinn kemur frá okkur úr Payday sem rafrænn reikningur, og krafa fylgir honum í netbankann. Sé ekki hægt að senda rafrænan reikning fer hann í tölvupósti, venjulega á netfangið sem var gefið upp þegar fyrirtækið var skráð. Reikningarnir sjást ekki í Unni. Vanti þig afrit skaltu hafa samband í spjallinu eða á [email protected].
Pakkarnir
Kafli: „Pakkarnir“| Hluti | Einfaldi pakkinn | Allur pakkinn |
|---|---|---|
| Tímaskráning, akstur, sölureikningar, tenging við bókhald | Já | Já |
| Efnisstýring (Efni og aðfangareikningar) og lager | Já | Já |
| Verkskipulag | Já | Já |
| Rafrænir reikningar (móttaka frá birgjum) | Já | |
| Tilboð | Já | |
| Verkhlutar | Já | |
| Tæki (verkfæri) | Já | |
| Birgjar | Já | |
| Staðsetning við stimplun | Já | |
| Tenging við póst | Já |
Verkefni, starfsmenn, verkkaupar, fjarvera, breytingarbeiðnir og verkbeiðnir fylgja báðum pökkunum. Á flipanum Áskrift heitir Einfaldi pakkinn Einfaldi. Rafrænir reikningar fylgja honum ekki, þó að lýsingin á kortinu nefni þá. Á korti Alls pakkans er Verkkaupavefur merktur Kemur bráðum.
Skipta um pakka
Kafli: „Skipta um pakka“Farðu í StillingarFyrirtækiÁskrift og flettu niður í Skipta um pakka. Núverandi pakki er merktur Núverandi, og undir Innifalið í pakka sést hvað fylgir hvorum.

Pakkarnir tveir. Verðin eru gerð ólæsileg á myndinni. -
Smelltu á Breyta í þennan pakka á hinum pakkanum. Í glugganum sést nýja mánaðarverðið, reiknað með núverandi fjölda starfsmanna.
-
Smelltu á Skipta um pakka.
Breytingin tekur gildi strax, líka í prufutímanum. Ef þú ferð úr Öllum pakkanum í Einfalda pakkann hverfa liðirnir Tilboð, Tæki, Birgjar og Póstur úr valmyndinni og fliparnir Rafræn reikningsskil, Póstur og Staðsetning við stimplun úr Stillingum. Verkhlutar hverfa líka: síður verkhluta lokast, ekki er hægt að velja verkhluta þegar verkefni er stofnað og rofinn um verkhluta á sölureikningum hverfur.
Segja upp áskrift
Kafli: „Segja upp áskrift“Neðst í StillingarFyrirtækiÁskrift smellirðu á Segja upp áskrift.
-
Staðfestu með Segja upp.
Áskriftin verður þá Afturkölluð. Þú getur ekki virkjað hana aftur sjálf/ur.
Eiginleikar sem eru ekki virkir hjá öllum
Kafli: „Eiginleikar sem eru ekki virkir hjá öllum“Sumt er í prófun og aðeins virkt hjá þeim fyrirtækjum sem hafa beðið um það. Það bætist ofan á pakkann, og sumt þarf auk þess Allan pakkann:
- Aðstoðarmaðurinn Unnur
- Staðsetning við stimplun (líka Allur pakkinn)
- Póstur (líka Allur pakkinn)
- Verkkaupavefurinn (líka Allur pakkinn)
- Skýrsla verkefnis
- Undirverktakar
- Liðurinn Skjöl í valmyndinni, sjá Skjöl og möppur