Fara í efni

Taxtar og taxtahópar

Útseldi taxtinn ræður verðinu á tímum starfsmanns á sölureikningi. Taxtahópar halda utan um hann fyrir marga í einu, og verkkaupi á sérsamningi getur fengið eigin taxta.

Útseldi taxtinn er verðið án vsk. sem tímar starfsmanns eru rukkaðir á. Hann er skráður á starfsmanninn, og taxtahópur er leiðin til að halda sama taxta á mörgum starfsmönnum í einu. Aðeins Stjórnandi og Skrifstofumaður geta stofnað taxtahópa og breytt töxtum.

Hvaðan verðið á tímanum kemur

Kafli: „Hvaðan verðið á tímanum kemur“

Tímaskráning geymir engan taxta, bara tímana. Verðið er fundið þegar tímarnir fara á sölureikning, og þá gildir fyrsti taxtinn sem á við í þessari röð:

  1. sértaxti verkkaupans fyrir starfsmanninn,
  2. sértaxti verkkaupans fyrir taxtahóp starfsmannsins,
  3. sértaxti verkkaupans fyrir Allir starfsmenn,
  4. útseldur taxti starfsmannsins.

Sértaxtar verkkaupa eru útskýrðir neðar á síðunni.

Þar til tímarnir eru komnir á reikning er alltaf notaður taxtinn eins og hann er núna. Breytirðu taxta í dag fá allir óreikningsfærðir tímar nýja verðið, líka tímar frá síðasta mánuði. Línur sem eru komnar á sölureikning, líka á drög, halda sínu verði.

Taxtahópur er hópur starfsmanna með sama útselda taxta, til dæmis Rafvirkjar eða Nemar. Hver starfsmaður er í einum taxtahópi í mesta lagi. Hóparnir eru á flipanum StarfsmennTaxtahópar, og dálkurinn Hópur í starfsmannalistanum sýnir taxtahóp hvers starfsmanns.

Taxtahópar með dagvinnu- og yfirvinnutaxta og fjölda starfsmanna í hverjum hópi
Taxtahópar með dagvinnu- og yfirvinnutaxta og fjölda starfsmanna í hverjum hópi
  1. Farðu í StarfsmennTaxtahópar og smelltu á + efst til hægri.
  2. Fylltu inn Nafn hóps og Taxti (án vsk.). Lýsing og Útseldur yfirvinnutaxti (án vsk.) eru valfrjáls.
  3. Veldu starfsmenn í hópinn undir Starfsmenn.
  4. Smelltu á Búa til taxtahóp.

Starfsmennirnir sem þú valdir fá taxta hópsins strax. Sé einhver þeirra í öðrum taxtahópi færist hann yfir, og viðvörun í glugganum segir frá því áður en þú vistar.

Þú getur líka stofnað taxtahóp úr glugganum Nýr starfsmaður eða Breyta starfsmanni, með + Búa til taxtahóp í reitnum Taxtahópur.

Breyta taxta fyrir alla í hópnum

Kafli: „Breyta taxta fyrir alla í hópnum“
  1. Farðu í StarfsmennTaxtahópar, smelltu á ⋮ við hópinn og veldu Breyta. Á síðu hópsins er sama aðgerð undir ⋮ efst til hægri.

  2. Breyttu Taxti (án vsk.) og eftir atvikum Útseldur yfirvinnutaxti (án vsk.).

  3. Smelltu á Vista taxtahóp.

    Breyta taxtahópi. Taxti (án vsk.) og Útseldur yfirvinnutaxti (án vsk.) gilda fyrir alla í hópnum.
    Breyta taxtahópi. Taxti (án vsk.) og Útseldur yfirvinnutaxti (án vsk.) gilda fyrir alla í hópnum.

Allir í hópnum fá nýja taxtann um leið og þú vistar. Breytirðu aðeins nafni eða lýsingu hópsins breytist ekkert hjá starfsmönnunum. Hafi hópurinn engan yfirvinnutaxta halda starfsmennirnir þeim yfirvinnutaxta sem þeir hafa.

Bæta í hóp og taka úr hópi

Kafli: „Bæta í hóp og taka úr hópi“

Smelltu á hópinn í listanum til að opna síðu hans. Þar er spjaldið Starfsmenn í hópi.

  • Bæta við: smelltu á + á spjaldinu, veldu einn eða fleiri undir Veldu starfsmenn og smelltu á Bæta við. Þeir fá taxta hópsins strax.
  • Taka úr hópi: smelltu á ⋮ við starfsmanninn og veldu Fjarlægja starfsmann úr hópi. Starfsmaðurinn heldur þeim taxta sem hann hafði í hópnum.

Óvirkir starfsmenn og skrifstofumenn eru ekki í boði þegar starfsmenn eru valdir í hóp.

Aðeins er hægt að eyða tómum hópi. Eyða í listanum og Eyða taxtahópi á síðu hópsins eru óvirk meðan einhver er í hópnum, og óvirkir starfsmenn teljast með. Taktu þá fyrst úr hópnum á síðu hópsins. Hafi verkkaupi sértaxta fyrir hópinn eyðist hann líka, og glugginn segir hve marga sértaxta það á við.

Taxtahópur starfsmanns er valinn í reitnum Taxtahópur undir Útseld vinna þegar hann er stofnaður eða honum breytt. Í fellilistanum eru taxtahóparnir með dagvinnutaxta, Handvirkur taxti og + Búa til taxtahóp.

Reiturinn Taxtahópur í glugganum Breyta starfsmanni
Reiturinn Taxtahópur í glugganum Breyta starfsmanni

Starfsmaður í taxtahópi hefur alltaf taxta hópsins. Til að gefa honum annan taxta velurðu Handvirkur taxti. Þá fer hann úr hópnum og reitirnir Útseldur taxti (án vsk.) og Útseldur yfirvinnutaxti (án vsk.) birtast með núverandi taxta hans. Breyttu þeim og smelltu á Vista starfsmann.

Sértaxtar fyrir verkkaupa

Kafli: „Sértaxtar fyrir verkkaupa“

Sé verkkaupi á sérsamningi, til dæmis með lægra tímagjaldi, geturðu sett honum eigin taxta. Þeir gilda þegar tímar á verkefnum hans fara á sölureikning.

  1. Opnaðu verkkaupann undir Verkkaupar. Spjaldið Taxtar fyrir þennan verkkaupa er á flipanum Yfirlit.

  2. Smelltu á Bæta við taxta.

  3. Veldu í fellilistanum hvort taxtinn gildir fyrir Allir starfsmenn, einn taxtahóp eða einn starfsmann.

  4. Settu inn Dagvinna og, ef við á, Yfirvinna. Sé Yfirvinna tóm gildir dagvinnutaxtinn líka um yfirvinnutíma.

    Sértaxtar Nesbyggðar fyrir fjóra taxtahópa. Undir hverjum reit sést grunnverðið og mismunurinn.
    Sértaxtar Nesbyggðar fyrir fjóra taxtahópa. Undir hverjum reit sést grunnverðið og mismunurinn.

Enginn vista-hnappur er á spjaldinu. Taxtarnir vistast sjálfkrafa þegar allar línur eru fullgerðar, það er þegar valið hefur verið fyrir hvern línan gildir og dagvinnan er hærri en 0. Ruslafatan við línuna eyðir henni. Undir Áhrif á N starfsmenn sérðu hverjir fá sértaxta og hvaðan hann kemur.

  • Yfirvinnutaxtinn er notaður þegar kveikt er á Rukka yfirvinnu á sölureikningi. Þá fá yfirvinnutímar sér línu á yfirvinnutaxta, en annars fara allir tímar á venjulega taxtann. Hvernig tímar skiptast í dagvinnu og yfirvinnu er í Dagvinna og yfirvinna.
  • Reiturinn Setja taxta við nafn starfsmanns á reikningnum setur sama taxta á allar línur hans á þeim reikningi. Taxti starfsmannsins breytist ekki. Sé kveikt á Rukka yfirvinnu breytist aðeins dagvinnutaxtinn, og yfirvinnutaxtanum breytirðu í hverri yfirvinnulínu.
  • Taxti er ekki valinn á tímaskráningunni sjálfri. Á sölureikningnum geturðu hins vegar breytt taxta hverrar tímalínu fyrir sig. Sjá Línur á sölureikningi.