Rafrænir reikningar
Hvernig þú sækir um móttöku rafrænna reikninga frá birgjum gegnum Unimaze, hvað gerist eftir umsóknina og hvenær reikningarnir berast.
Rafrænir reikningar frá birgjum geta borist beint inn í Unni sem aðfangareikningar. Til þess þarf að sækja um móttöku gegnum Unimaze einu sinni. Eftir það koma reikningarnir sjálfkrafa undir EfniAðfangareikningar, og þú setur þá á verkefni eins og lýst er í Úthluta aðfangareikningum.
Móttakan fylgir Allur pakkinn. Flipinn Rafræn reikningsskil sést aðeins hjá fyrirtækjum með þann pakka, og aðeins Stjórnandi og Skrifstofumaður komast í stillingarnar.
Sækja um móttöku
Kafli: „Sækja um móttöku“Farðu í StillingarTengingarRafræn reikningsskil. Unimaze er þegar valið í Þjónustuaðili.
-
Hakaðu við Ég tek á móti rafrænum reikningum í bókhaldskerfinu mínu.
-
Smelltu á Sækja um móttöku.

Hnappurinn Sækja um móttöku verður virkur þegar hakað er við.
Unnur sendir umsóknina til Unimaze í tölvupósti og þú færð afrit. Til þess þarf netfang að vera skráð á þig sem starfsmann. Annars stöðvast umsóknin með villunni „Skrá þarf netfang á forráðsmann áður en sótt er um Unimaze aðgang.“
Staðfesta umsóknina
Kafli: „Staðfesta umsóknina“Eftir umsóknina stendur Beðið eftir staðfestingu frá Unimaze á flipanum. Móttakan virkjast ekki fyrr en þú hefur staðfest beiðnina við Unimaze.
- Finndu afritið af umsóknarpóstinum í pósthólfinu þínu og svaraðu því til að staðfesta beiðnina fyrir hönd fyrirtækisins.
- Smelltu á Ég hef staðfest við Unimaze í Unni.

Fékkstu ekki afritið smellirðu á Fékkstu ekki afrit af umsóknarpóstinum?. Þá birtist tilbúinn staðfestingarpóstur til [email protected] með nafni fyrirtækisins og þínu nafni. Afritaðu hann með Afrita texta eða opnaðu hann í póstforritinu með Opna tölvupóstforrit.
Þar til þú smellir á Ég hef staðfest við Unimaze birtist áminningin Aðgerðar þörf — rafrænir reikningar á Mælaborð. Klára núna opnar flipann.
Þegar þú hefur staðfest stendur enn Beðið eftir staðfestingu frá Unimaze, en undir því stendur að beðið sé eftir að Unimaze virki aðganginn og sendi aðgangsorð. Þá er þínum hluta lokið. Í umsókninni er Unimaze beðið að senda aðgangsorðin til okkar hjá Unni. Þegar þau eru komin inn verður staðan Virkt.

Ertu þegar með aðgangsorð frá Unimaze?
Kafli: „Ertu þegar með aðgangsorð frá Unimaze?“Smelltu á Ertu með aðgangsorð frá Unimaze? Sláðu þau inn hér, eða á Slá inn aðgangsorð ef umsóknin er þegar farin. Settu inn Notendanafn og Lykilorð og smelltu á Vista. Staðan verður þá Virkt.
Þegar móttakan er virk
Kafli: „Þegar móttakan er virk“Unnur sækir nýja rafræna reikninga einu sinni á sólarhring, að nóttu. Viltu fá þá strax smellirðu á hringörina (Samstilla aðföng) efst til hægri á Efni.
Sé móttakan ekki virk birtist borðinn „Tengdu rafræna reikningaþjónustu til að fá aðföng sjálfkrafa.“ efst á aðfangareikningunum, með tenglinum Opna stillingar.
Rafrænir sölureikningar
Kafli: „Rafrænir sölureikningar“Unimaze-tengingin í Unni tekur aðeins á móti reikningum. Rafrænir sölureikningar fara út úr bókhaldskerfinu með rofanum Senda rafrænan reikning, sjá Sending reiknings og netföng verkkaupa.
Payday getur hafnað sendingunni með þessum villum:
- „Rafræn reikningasending er ekki enn virk í Payday. Staðfesta þarf skilmála Unimaze í tölvupósti sem barst frá Unimaze.“ Leitaðu að póstinum frá Unimaze, staðfestu skilmálana og sendu reikninginn aftur.
- „Viðskiptavinur tekur ekki við rafrænum reikningum. Athugaðu stillingar viðskiptavinar í bókhaldskerfinu.“ Lagaðu viðskiptamanninn í Payday, eða slökktu á Senda rafrænan reikning og sendu reikninginn í tölvupósti.
Engir rafrænir reikningar berast
Kafli: „Engir rafrænir reikningar berast“- Stendur Virkt undir StillingarTengingarRafræn reikningsskil? Sjáist hnappurinn Ég hef staðfest við Unimaze áttu eftir að staðfesta umsóknina, sjá Staðfesta umsóknina. Sé hann horfinn er beðið eftir að Unimaze virki aðganginn. Dragist það, sendu okkur línu á [email protected].
- Smelltu á Samstilla aðföng til að sækja strax.
- Sendir birgirinn reikninginn rafrænt? Reikningar sem koma sem PDF í tölvupósti berast ekki þessa leið. Þá skráirðu þá handvirkt, sjá Skrá aðfangareikning.
Gangi ekkert af þessu, sendu okkur línu á [email protected].