Fara í efni

Meira, stillingar og tilkynningar í appinu

Hvað er undir Meira í appinu, hvernig þú breytir stillingum, skiptir um fyrirtæki og skráir þig út, og hvaða tilkynningar berast í símann.

Meira er síðasti hnappurinn í neðstu stikunni. Þar eru skírteinið þitt, stillingar appsins, fjarvera og vikuáætlunin, og hjá Stjórnanda líka breytingarbeiðnir og verkbeiðnir.

Meira hjá starfsmanni. Vikuáætlunin er fyrir neðan reitina.
Meira hjá starfsmanni. Vikuáætlunin er fyrir neðan reitina.
  • Skírteini: hver þú ert og hjá hvaða fyrirtæki, sjá hér fyrir neðan.
  • Stillingar: tungumál, starfsmannastillingar, fyrirtækjaval og útskráning, sjá hér fyrir neðan.
  • Fjarvera: umsóknir um frí, veikindi og aðra fjarveru. Sjá Fjarvera. Sé fjarvera ekki virk hjá fyrirtækinu er reiturinn grár og appið segir „Fjarvera er ekki virk. Stjórnandi getur kveikt á henni í stillingum á vefnum.“
  • Breytingarbeiðnir: aðeins hjá Stjórnanda. Þar samþykkir hann eða hafnar breytingum sem starfsmenn gera á tímum sínum. Sjá Breytingarbeiðnir.
  • Verkbeiðnir: aðeins hjá Stjórnanda. Talan á reitnum er fjöldi beiðna í stöðunni Innsent. Sjá Verkbeiðnir.
  • GPS: aðeins ef staðsetning við stimplun er virk hjá fyrirtækinu. Þar samþykkir þú söfnunina og sérð hvar þú stimplaðir þig inn og út. Sjá Staðsetning við inn- og útstimplun.

Fyrir neðan reitina er Vikuáætlun með verkunum sem þér hefur verið úthlutað í vikunni, dag fyrir dag. Örvarnar fletta á milli vikna. Ýttu á verk til að sjá lýsinguna, og Skrá tíma opnar nýja tímaskráningu á verkefninu, eða stimpilklukkuna ef fyrirtækið bannar handvirka tímaskráningu. Úthlutanirnar gerir stjórnandi á vefnum, sjá Vikuskipulag.

Skírteini sýnir fyrirtækið sem þú vinnur hjá, nafnið þitt, starfsheiti, kennitölu, tegund ráðningar (Starfsmaður eða Verktaki), hlutverk, símanúmer og netfang. Upplýsingunum breytir stjórnandi á vefnum.

Skírteini starfsmanns
Skírteini starfsmanns

Prófílmyndina setur þú sjálf/ur inn. Ýttu á hringinn eða myndavélartáknið og veldu mynd. Hún má vera PNG, JPEG eða HEIC og mest 10 MB. Þegar mynd er komin breytirðu henni með blýantinum og eyðir henni með rauðu ruslatunnunni.

MeiraStillingar skiptist í þessa hluta:

Stillingar hjá starfsmanni sem er í einu fyrirtæki
Stillingar hjá starfsmanni sem er í einu fyrirtæki

Núverandi fyrirtæki birtist aðeins ef þú ert starfsmaður hjá fleiri en einu fyrirtæki. Veldu fyrirtæki í listanum og appið hleðst aftur með gögnum þess. Með rofanum Opna þetta fyrirtæki við innskráningu opnast það fyrirtæki alltaf fyrst. Það val gildir líka á vefnum.

Starfsmannastillingar:

  • Tungumál: íslenska, enska, pólska, rússneska eða rúmenska. Valið gildir aðeins í þessum síma. Heiti stillinganna fyrir neðan eru alltaf á íslensku.
  • Bæta við akstri í tímaskráningu, Sjálfgefinn hamur tímaskráningar, Sýna lagerskráningar og Sýna tækjaskráningar: ráða því hvað sést þegar þú skráir tíma. Hvað hver gerir er í Starfsmannastillingar.

Breyting vistast um leið og þú velur, og „Stillingar vistaðar“ birtist. Stjórnandi getur læst stillingu fyrir allt fyrirtækið á vefnum. Appið sýnir ekki hvaða stillingar eru læstar: ef þú breytir læstri stillingu birtist villa og gamla gildið kemur aftur eftir augnablik.

Ítarstillingar opnar Persónuverndarstefna og Eyða aðgangi.

Útskrá skráir þig út eftir staðfestingu. Meðan þú ert útskráð/ur berast engar tilkynningar í símann.

  1. Farðu í MeiraStillingarÍtarstillingar.
  2. Ýttu á Eyða aðgangi.
  3. Ýttu aftur á Eyða aðgangi í glugganum Eyða aðgangi varanlega?

Unnur sendir tilkynningar í símann. Síminn þarf að leyfa appinu að senda tilkynningar, og þú þarft að vera innskráð/ur. Ef þú ýtir á tilkynningu opnast appið. Í appinu er hvorki listi yfir eldri tilkynningar né stillingar fyrir þær.

Tilkynning Hver fær hana
Áminning um tímaskráningu Starfsmenn sem hafa skráð minna en 4 klst. þann dag, ef fyrirtækið notar áminninguna
„2 verk úthlutað í dag“ (fjöldinn breytist) Starfsmenn sem eiga úthlutað verk í Vikuskipulagi, ef morguntilkynningin er á
Áminning um innstimplun Þeir sem hafa notað stimpilklukkuna síðustu 30 daga, hafa ekkert skráð þann dag og eru ekki í samþykktri fjarveru
Áminning um útstimplun og „Stimpilklukkan er enn í gangi“ Þeir sem eru enn innstimplaðir
„Úpps, þú gleymdir að stimpla þig út“ Þeir sem gleymdu klukkunni í gangi og hún var stöðvuð sjálfkrafa
Ný breytingarbeiðni, Ný eyðingarbeiðni, Ný fjarverubeiðni Stjórnendur. Skrifstofumenn fá þær líka hafi þeir skráð sig inn í appið, en afgreiða beiðnirnar á vefnum
Breytingarbeiðni (eða Eyðingarbeiðni) samþykkt eða hafnað Starfsmaðurinn sem sendi beiðnina
Fjarverubeiðni samþykkt, hafnað eða afturkölluð Starfsmaðurinn sem sótti um

Áminningarnar velur Stjórnandi eða Skrifstofumaður á vefnum í StillingarTilkynningar. Sjá Áminningar og morguntilkynning.