Fara í efni

Velkomin í Unni

Hvað Unnur gerir, munurinn á vefnum og appinu, hver gerir hvað og hvar er best að byrja.

Unnur er verkbókhald fyrir verktaka. Öll vinna er skráð á verkefni, hvort sem það eru tímar, akstur, efni eða tæki, og úr skráningunum gerirðu sölureikninga sem fara áfram í bókhaldskerfið.

Unnur er bæði vefur og app, og þú skráir þig inn í báðum með sama símanúmeri og lykilorði.

Á vefnum, app.unnurverk.is, heldur skrifstofan utan um verkefni, starfsmenn, verkkaupa, reikninga og stillingar. Valmyndin er vinstra megin. Í henni sést aðeins það sem hlutverkið þitt og pakki fyrirtækisins leyfa, og sumir liðir, til dæmis Póstur og Skjöl, sjást aðeins ef kveikt hefur verið á þeim hjá fyrirtækinu.

Appið er fyrir iPhone og Android og er ætlað þeim sem eru á vettvangi. Þar skrá starfsmenn tíma, með stimpilklukku eða handvirkt, og akstur, efni og tæki á verkefnin.

Vefurinn. Valmyndin er til vinstri og verkefnalistinn er opinn.
Vefurinn. Valmyndin er til vinstri og verkefnalistinn er opinn.

Hver starfsmaður fær eitt af fjórum hlutverkum hjá fyrirtækinu, og hlutverkið ræður því hvað hann sér og má gera.

Hlutverk Á vefnum Í appinu
Stjórnandi Allt kerfið, líka starfsmenn, reikningar og stillingar Já
Skrifstofumaður Sami aðgangur og Stjórnandi, en ekki er hægt að skrá tíma á hann Nei
Verkstjóri Verkefni, Tímar, Lager, Tæki og Akstur. Getur líka stofnað verkefni Já, og getur stofnað verkefni
Starfsmaður Verkefni, Tímar, Lager, Tæki og Akstur Já

Sumt fylgir aðeins Öllum pakkanum, til dæmis Tæki (Verkfæri á pakkaspjaldinu) og Tilboð, og sést ekki hjá fyrirtækjum í Einfalda pakkanum. Nánar í Hlutverk og réttindi og Áskrift og pakkar.

Ef þú ert að koma fyrirtæki inn í Unni byrjarðu á að skrá fyrirtækið. Strax á eftir opnast uppsetningin, sem fer með þér í gegnum fyrsta verkefnið, starfsmennina og bókhaldstenginguna. Þegar henni er lokið sýnir gátlistinn Komast í gang á mælaborðinu hvað er eftir.

Ef þú vinnur hjá fyrirtæki sem notar Unni nú þegar skráir stjórnandi þar þig sem starfsmann með símanúmerinu þínu. Þú sækir appið og stofnar aðgang með sama númeri. Aðganginn má líka stofna á vefnum, sjá Innskráning og lykilorð.

Við fyrirsögn margra síðna á vefnum er lítið i-tákn sem opnar leiðbeiningarnar um síðuna. Finnurðu ekki svarið geturðu skrifað okkur í spjallbólunni neðst í hægra horninu á vefnum eða sent póst á [email protected]. Ef bóla aðstoðarmannsins er líka í horninu er hún yst og spjallbólan við hliðina á henni. Um valmyndina, tilkynningarnar og hjálpina á vefnum er fjallað í Valmyndin, tilkynningar og hjálp.