Fara í efni

Uppsetning skref fyrir skref

Uppsetningarálfurinn fer með þér í gegnum fyrsta verkefnið, starfsmennina, appið og tengingarnar, og þú mátt sleppa því sem bíður.

Þegar þú hefur skráð fyrirtækið opnast uppsetningarálfurinn. Hann fer yfir það sem þarf til að starfsmenn geti byrjað að skrá tíma og þú að senda reikninga. Aðeins Stjórnandi og Skrifstofumaður sjá álfinn.

Í fyrsta skipti sem álfurinn er opnaður í vafranum tekur hann allan skjáinn. Efst í hægra horninu er Loka uppsetningu í bili ef þú vilt skoða kerfið fyrst.

Uppsetningarálfurinn í fullum skjá. Skrefin eru í listanum vinstra megin.
Uppsetningarálfurinn í fullum skjá. Skrefin eru í listanum vinstra megin.

Skrefin eru í listanum vinstra megin og þú getur smellt á hvert þeirra sem er. Neðst í hverju skrefi eru ‹ Til baka, Sleppa og Áfram.

  • Verkefni og Starfsmenn: Áfram er óvirkt þar til skrefið er klárað. Ef þú vilt geyma það smellirðu á Sleppa.
  • Bókhaldskerfi og Reikningar: ef þú smellir á Áfram án þess að klára telst skrefinu sleppt.
  • Appið, Áminningar og Bóka fund: hér er ekkert að klára og enginn Sleppa-hnappur.

Skref sem þú sleppir fær strik í listanum í stað haks. Þú getur alltaf opnað það aftur og klárað það. Hakið segir hins vegar ekki alltaf að skref sé klárað: öll skref á undan því sem þú ert á fá hak, líka þau sem þú smelltir fram hjá í listanum.

Skrefin koma í þessari röð. Ef þú valdir Payday eða Catacloud sem bókhaldskerfi þegar þú skráðir fyrirtækið er Bókhaldskerfi fremst.

Smelltu á Bæta við verkefni. Þá opnast sami gluggi og þegar verkefni er stofnað með + á síðunni Verkefni, sjá Stofna verkefni. Skrefið er klárað um leið og eitt verkefni er komið.

Smelltu á Bæta við starfsmanni fyrir hvern starfsmann. Ef taxta vantar á einhvern stendur Setja taxta í línunni hans. Smelltu á það til að opna Breyta starfsmanni.

Starfsmannaskrefið. Ólöf á eftir að fá taxta.
Starfsmannaskrefið. Ólöf á eftir að fá taxta.

Þú ert sjálf/ur fyrsti starfsmaðurinn, svo skrefið klárast þegar þú hefur bætt við að minnsta kosti einum öðrum.

Ef bókhaldskerfið er þegar tengt birtist líka hnappurinn Sækja úr bókhaldskerfinu, sem sækir starfsmannalistann þaðan. Það virkar aðeins með DK og Payday.

Hér er QR-kóði sem þú skannar með símanum, og hnappar í App Store og Google Play. Starfsmenn skrá tíma, akstur og efni í appinu, svo það borgar sig að prófa það sjálf/ur.

Veldu kerfið í Þjónustuaðili: Payday, DK Plus, Regla, Konto, Catacloud, Uniconta eða Tölvupóstur á bókara. Þegar tengingin er vistuð sækir Unnur verkkaupana úr bókhaldskerfinu (nema þegar Tölvupóstur á bókara er valinn). Hvernig hvert kerfi er tengt stendur í Studdar bókhaldstengingar.

Þetta skref fylgir aðeins Öllum pakkanum. Hér sækir þú um móttöku rafrænna reikninga, svo reikningar frá birgjum berist beint inn í Unni. Veldu kerfi í Þjónustuaðili, hakaðu við Ég tek á móti rafrænum reikningum í bókhaldskerfinu mínu og smelltu á Sækja um móttöku. Ef þú ert þegar með aðgangsorð frá Unimaze smellirðu frekar á Ertu með aðgangsorð frá Unimaze? Sláðu þau inn hér. Sjá Rafrænir reikningar.

Kveiktu á Senda áminningar um tímaskráningu og veldu hvenær starfsmenn fá áminningu um að skrá tíma. Í byrjun er slökkt á öllum áminningum. Hvert val vistast um leið, og þessu má breyta síðar í StillingarTilkynningar. Sjá Áminningar og morguntilkynning.

Hér bókar þú kynningarfund með okkur. Þetta skref er valfrjálst. Veldu dag og tíma í dagatalinu. Fundurinn er 45 mínútur. Nafn, Fyrirtæki og Netfang eru forútfyllt. Undir Hvar viltu hittast? velur þú á netinu (Google Meet), hjá okkur í Grósku í Reykjavík, á Strandgötu 1 á Akureyri eða Hjá mér, og þá þarf að fylla út Heimilisfang. Smelltu svo á Staðfesta bókun.

Síðasta skrefið. Dagur valinn og lausir tímar birtast til hægri.
Síðasta skrefið. Dagur valinn og lausir tímar birtast til hægri.

Að hætta í miðju og koma aftur

Kafli: „Að hætta í miðju og koma aftur“

Þú þarft ekki að klára allt í einu. Meðan uppsetningu er ólokið er Uppsetning efst í valmyndinni, og þar opnast álfurinn inni í venjulega viðmótinu.

Uppsetning efst í valmyndinni. Tvö af fjórum aðalskrefum eru afgreidd, svo þar stendur 50%.
Uppsetning efst í valmyndinni. Tvö af fjórum aðalskrefum eru afgreidd, svo þar stendur 50%.
  • Prósentan sýnir hve mörg af skrefunum Verkefni, Starfsmenn, Bókhaldskerfi og Reikningar eru kláruð eða sleppt. Í Einfalda pakkanum er ekkert Reikningar-skref, svo þar telja aðeins hin þrjú. Appið, Áminningar og Bóka fund teljast ekki með.
  • Þegar þú kemur aftur opnast álfurinn á fyrsta af þessum skrefum sem er hvorki klárað né sleppt.
  • Sleppt skref gilda fyrir fyrirtækið, svo annar stjórnandi sér sömu stöðu.

Þegar þú ferð út úr álfinum án þess að hafa bókað fund býðst þér að bóka fund með okkur. Það gerist einu sinni í hverri heimsókn, og ekki ef þú ferð út af skrefinu Bóka fund. Smelltu á Nei takk ef þú vilt það ekki.

Á síðasta skrefinu smellirðu á Ljúka uppsetningu. Það má gera þótt skrefum hafi verið sleppt. Þá opnast mælaborðið og Uppsetning hverfur úr valmyndinni. Í staðinn birtist gátlistinn Komast í gang, og daginn eftir glugginn Gerðu kerfið að þínu. Hvort tveggja er útskýrt í Komast í gang.

Það sem þú slepptir klárar þú síðar á sínum stað. Verkefni og starfsmenn skráir þú á síðunum Verkefni og Starfsmenn. Bókhaldskerfið er undir StillingarTengingarBókhaldskerfi og rafrænu reikningarnir undir StillingarTengingarRafræn reikningsskil.