Birgjar
Birgjar eru fyrirtækin sem þú kaupir efni af. Hér sérðu birgjalistann, birgjasíðuna og hvernig þú stýrir hvert reikningar frá birgi fara og hvort vörurnar hans fara á lager.
Undir Birgjar eru allir birgjar sem hafa sent fyrirtækinu reikning. Þar sérðu hve mikið hefur verið keypt af hverjum og stillir hvert reikningar frá honum eiga að fara.
Birgir verður til sjálfkrafa þegar fyrsti reikningurinn frá honum berst rafrænt, eða þegar þú velur Stofna nýjan birgi við skráningu reiknings. Það er enginn hnappur til að stofna birgi á birgjasíðunni og ekki hægt að eyða birgi. Sjá Skrá aðfangareikning.
Birgjalistinn
Kafli: „Birgjalistinn“
Kortin efst sýna upphæðir með VSK á völdu Tímabil:
- Heildarupphæð reikninga: allir reikningar.
- Úthlutað á verkefni: reikningar í stöðunni Úthlutað.
- Farið í rekstur: reikningar í stöðunni Rekstur.
- Óúthlutað: reikningar í stöðunni Í bið eða Áætlað.
Kreditreikningar leggjast við upphæðirnar eins og aðrir reikningar. Í fyrsta sinn sem þú opnar síðuna er Tímabil frá 1. janúar til dagsins þá. Vafrinn man það eftir það, svo lokadagurinn færist ekki fram af sjálfu sér. Breyttu Tímabil til að sjá nýrri reikninga.
Í töflunni sérðu fjölda reikninga frá hverjum birgi á tímabilinu og dagsetningu þess síðasta. Merkið Óúthlutað þýðir að einhver reikningur frá birginum á tímabilinu bíður úthlutunar. Staða er Virkur eða Rekstur, sjá Reikningar beint í rekstur. Leitin finnur birgja eftir nafni og kennitölu. Smelltu á birgi til að opna birgjasíðuna.
Birgjasíðan
Kafli: „Birgjasíðan“Efst er nafn birgisins, kennitala og staða. Þar fyrir neðan eru Stillingar og listi yfir Aðfangareikningar frá birginum. Stillingarnar vistast um leið og þú breytir þeim.

Í listanum Aðfangareikningar eru allir reikningar frá birginum á tímabilinu, óháð stöðu. Þú getur valið verkefni og staðfest áætlað verkefni beint í listanum, og sett reikning í rekstur með punktunum þremur aftast í röðinni. Smelltu á reikningsnúmerið til að opna reikninginn. Í fyrsta sinn er Tímabil frá fyrsta degi síðasta mánaðar til loka þessa mánaðar, og vafrinn man það eftir það.
Sjálfvalið verkefni
Kafli: „Sjálfvalið verkefni“Kaupir þú nánast alltaf af birginum fyrir sama verkið, t.d. þjónustusamning, geturðu valið verkefni sem reikningar frá honum fara á. Það gildir aðeins um rafræna reikninga og aðeins þegar ekkert verknúmer finnst á reikningnum. Finnist verknúmer gengur það fyrir.
- Opnaðu birgjann og smelltu á Veldu sjálfvalið verkefni undir Stillingar.
- Veldu verkefnið. Efst er Rekstur, síðan Rekstrarverkefni og loks Útseld verkefni og tilboð.
- Ákveddu hvort Setja sjálfkrafa á verkefnið á að vera á. Rofinn kviknar sjálfkrafa þegar þú velur verkefni í fyrsta sinn.
- Hafi verkefnið fleiri en einn verkhluta og rofinn er á velurðu Sjálfvalinn verkhluti.

Svona fara nýir rafrænir reikningar frá birginum:
| Stilling | Hvað gerist |
|---|---|
| Setja sjálfkrafa á verkefnið af | Reikningurinn fær stöðuna Áætlað á verkefninu og þú staðfestir hann. |
| Setja sjálfkrafa á verkefnið á | Reikningurinn fer beint á verkefnið og verður Úthlutað. |
| Rofinn á en enginn verkhluti valinn á verkefni með fleiri verkhluta | Reikningurinn fær stöðuna Áætlað. |
| Rekstrarverkefni valið og rofinn á | Reikningurinn fer á rekstrarverkefnið í stöðunni Rekstur. |
Sé rekstrarverkefni valið fær birgirinn stöðuna Rekstur. Hvernig þú staðfestir áætlaðan reikning er í Áætlaðir efnisreikningar. Til að hætta við sjálfvalið verkefni opnarðu reitinn og velur Hreinsa sjálfvalið verkefni efst í listanum.
Reikningar beint í rekstur
Kafli: „Reikningar beint í rekstur“Fyrir birgi sem selur aðeins það sem fer ekki á verk, eins og eldsneyti eða símaþjónustu, velurðu Rekstur efst í Sjálfvalið verkefni. Rafrænir reikningar frá honum fara þá beint í stöðuna Rekstur, nema verknúmer finnist á reikningnum.

Birgirinn fær stöðuna Rekstur í listanum. Hann hverfur þá úr reitnum Birgir í glugganum Nýr aðfangareikningur. Sjá Birgirinn er ekki í listanum.
Vörur birgis á lager
Kafli: „Vörur birgis á lager“Í reitnum Lager á birgjasíðunni stýrir þú hvort vörur frá birginum verði að lagervörum.
- Sjálfvirk stofnun lagervara: þegar rofinn er á verða línur með vörunúmeri á nýjum rafrænum reikningum frá birginum að lagervörum, og lagervörur sem eru til fyrir fá nýja verðið. Birgðastaðan breytist ekki. Sé rofinn af uppfærist samt verð á lagervörum sem eru til fyrir.
- Flytja inn í lager: stofnar lagervöru fyrir hvert vörunúmer sem hefur komið á reikning frá birginum, með verðinu af nýjasta reikningnum. Lagervörur sem eru til fyrir fá líka verðið af nýjasta reikningnum. Birgðastaðan breytist ekki. Staðfestu í glugganum sem opnast.
Lagervörunum er lýst í Lagervörur og birgðastöðunni í Birgðahald og bókhaldskerfi.